Úrval - 01.09.1960, Blaðsíða 15
BARNUM, HINN FRÆGI SÝNINGARMAÐUR
ÚRVAL
í rúmið og Eng sofnaði vært
Um klukkan fjögur kom einn
sonur Engs inn til þess að líta
eftir bræðrunum, og sá þegar
að frændi hans, Chang, var
dauður. Eng vaknaði við hávað-
ann, leit á líkið og fékk þegar
ofsalegan taugakrampa. Þegar
var sent eftir lækni, en nokkur
stund leið þar til hann kom því
að hann bjó í þriggja mílna
fjarlægð eða svo, og þá var líf
Engs fjarað út. Líkskoðun
leiddi í ljós að lifrar þeirra og
blóðrás var sameiginlegt, og að
hinir síömsku tvíburar urðu að
lifa samtengdir eða alls ekki.
* * *
JUMBO.
Barnum, sem alltaf leit frem-
ur á sig sem safneiganda og
sýningarstjóra en sirkusmann,
hafði náð mesta gengi sem
hann hlaut, áður en hann tók
að fást við sirkusmál. Það var
aðeins síðustu tuttugu ár æv-
innar, sem hann helgaði sig
„segldúk og sagi“, og varð ekki
fullkominn sirkuseigandi fyrr
en eftir sextugt.
Eina verulega afrek Barnums
á þessu sviði, var þegar hann
keypti fílinn Jumbo. Þykkskinn-
ungurinn hafði verið tekinn í
Afríku nær nýfæddur; þaðan
var hann sendur til Parísar, en
þótti vaxa seint, og var seldur
dýragarðinum í London. Þau
sautján ár, sem hann var þar, óx
hann stöðugt. Árið 1882 var
hann tólf fet á herðakamb og
sex og hálf smálest á þyngd.
Dagsfæða Jumbos var 200 pund
af heyi, 15 brauðhleifar, hafrar,
kex, laukur, ávextir, fimm-sex
stórar vatnsfötur og pottur af
viskýi.
I janúar 1882 bauðst umboðs-
maður Barnum í Englandi til
þess að kaupa Jumbo, en dýra-
garðsstjórinn varð hneikslað-
ur yfir uppástungunni. Það
runnu þó á hann tvær grím-
ur þegar honum voru boðin
f 2000 fyrir fílinn, og þar við
bættist að Jumbo var á því
erfiða aldursskeiði karlfíla, sem
kallað er ,,must“. Hann var van-
stilltur og hætt við að á hann
rynni berserksgangur og því
hættulegur. Svo fór að dýra-
garðsstjórnin ákvað að selja
Jumbo.
Barnum leigði skip til þess að
flytja fílinn, og lá það á Temsá.
Matthew Scott, vörður Jumbos,
leiddi hann út úr dýragarðinum,
en þegar fíllinn kom út á
strætið í umferðina og ókunn-
uglegt umhverfi, blés hann og
cskraði af óánægju og lagðist
niður á götuna. 1 Englandi varð
grátur og' gnístran tanna, en
umboðsmaður Barnums sendi
skeyti: „Jumbo liggur á göt-
unni og fæst ekki til hreyfa sig.
Hvað skal gera?“ „Láttu hann
liggja í viku ef hann vill. Þetta
er bezta auglýsing, sem hugsast
getur,“ svaraði Barnum um
hæl.
Barnum hugkvæmdist að
smíða stórt búr, opið í báða
9