Úrval - 01.09.1960, Síða 48

Úrval - 01.09.1960, Síða 48
ÚRVAL MANNSEYRAÐ þau hafa algera sérstöðu meðal beina mannslíkamans. Leiða þau hljóðbylgjurnar frá hljóðhimn- unni til sporlaga gluggans, sem er op til innra eyrans. Istaðið dinglar í fyrrnefnd- um „glugga“ og heldur hreyf- ingu á vökva þeim sem innra eyrað er fullt af. Verka hreyf- ingar þessar á þann f jölda hinna smágjörvu strengja sem áður hafa verið nefndir, en þeir hafa aftur með titringi sínum áhrif á heyrnarfrumur þær, er breyta hreyfingum í heyrnarverkanir, sem berast loks með heyrnar- taugunum upp til heilans. Hinn holi endi innra eyrans nefnist lcu'öungur. I honum liggja margir strengir, sem minna á slaghörpu: langir strengir fyrir lægri tóna og stuttir fyrir þá hærri. Álitið er, að sérstakur strengur sé þar fyrir hvern tón. Annar hluti innra eyrans er völundarhúsið. Eru það þrjú bogagöng sem fyllt eru vökva, og þetta er jafnvægislíffæri mannsins. Auk þess er og jafn- vægisins gætt með sjónfærum og viðbrögðum vöðvanna. Geta menn því komizt nokkurn veg- inn af, þótt þetta jafnvægistæki bili. Það er þó ekki með eyranu einu, sem við greinum hljóð, heldur leiðist það og eftir allri beinagrind mannsins. Reynið að bíta í vekjaraklukku, þó ekki of fast. Þér munuð þá heyra tifið skýrar en ella. Hávaði og tónar. Ef gripið er í fiðlustreng, heyrist tónn. Tónsveiflurnar verða ýmist sterkari eða veik- ari, eftir því hversu fast er gripið í strenginn, en tónhæðin er hin sama. Sé nokkru af strengnum haldið niðri með fingrinum, styttist sá hluti hans sem sveiflast. Hann titrar þá hraðar og við það myndast hærri tónn. Til þess að eyra mannsins geti yfirleitt greint tón, verður hann að hafa að minnsta kosti sextán sveiflur á sekúndu. Hæstu tónar sem til eru í hljómlist, hafa fimm þús- und sveiflur á sekúndu. Þeir nást aðeins á pikkólóflautu. Eyra mannsins getur numið tón, ef sveiflur hans eru frá 16 til 22.000 á sekúndu. Allra hæstu tónana heyra þó mjög fáir. Tóna með um það bil tutt- uðu þúsund sveiflum, greina flestir aðeins sem óþægilegan dyn í höfði. Með aldrinum minnkar næmleiki heyrnarinn- ar á háa tóna. Þegar sleginn er strengur, heyrist fyrst og fremst grunn- tónninn, er svarar til þess, að strengurinn titri. Ymsir minni hlutar hans titra þó útaf fyrir sig og mynda aukatóna er renna saman við grunntóninn. Það eru slíkir aukatónar, sem ráða hljómfegurð hvers hljóð- færis. Séu ýmsir ákveðnir tón- ar látnir renna saman, er hægt að framkalla hljóma, sem sér- 42
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.