Úrval - 01.09.1960, Síða 63
orman
íAncent ÍPeale:
Ferðu á mis við
það bezta ■ lífinu?
Það er orðið langt síðan ég
hefi heyrt mann blístra lag úti
á götu. Og þetta er ekki ein-
ungis mín athugun. Bill Arthur,
ritstjóri Look tímaritsins,
minntist á það um daginn. Bill
minnist æsku sinnar sem tíma,
þegar fólk virtist vita, hvernig
öðlast ætti meira gaman í líf-
inu, en það gerir í dag.
Hvað veldur því? Ef þessu
er þannig farið með þig, hvað
geturðu þá tekið til bragðs?
Hvað geturðu gert, til þess að
hljóta þá náttúrlegu, einlægu
gleði, sem kemur innan frá?
Líkamlegt ástand manns hef-
ur mikil áhrif á hæfileikann til
að njóta lífsins. Hæfileg hreyf-
ing og hæfileg hvíld eru nauð-
synleg skilyrði fyrir gleðirík-
um tilfinningum. Dr. Henry C.
Link, sálfræðingurinn, skoðaði
aldrei sjúkling sem var þung-
lyndur, án þess að fyrirskipa
fyrst: „Gangið hratt í kring-
um húsið, tíu sinnum. Það æfir
hreyfitaugar heilans og örfar
blóðrásina. Þegar þér komið
aftur, verðið þér miklu móttæki-
legri fyrir jákvæðar hugsanir."
Fyrsta skrefið, til þess að
öðlast hina dásamlegu tilfinn-
ingu sannrar lífsgleði, er því
það að meðhöndla líkama sinn
rétt. Næsta skref er að hugsa
rétt. Einn góður vinur minn
segir: ,,Ég hefi gert mér það
að fastri venju, að búast við
einhverri óvæntri ánægju á
hverjum degi og mér hefur oft-
ast orðið að þeirri trú minni.“
Þeir sem líta fram á leið
og vænta þess að sjá stóra hluti,
verða hamingjusamir. Marcus
Aurelius sagði: „Enginn maður
er hamingjusamur, sem heldur
sig ekki vera það.“ Ef hugurinn
er fullur af hatri eða eigingirni,
getur hið bjarta ljós gleðinnar
ekki síast í gegn. Það er mjög
þýðingarmikið að hreinsa burt
syndir og yfirsjónir, gleyma
þeim svo og halda áfram lífs-
braut sína: „Gleyma því, sem
að baki er, en seilast eftir því,
sem fyrir framan er“ (Fil. 3,14)
Það er að vera hygginn.
Elbert Hubbard sagði: „Vertu
gamansamur fram til klukkan
tíu á morgnana og þá mun hver
dagur færa þér gleði“. Henry
David Thoreau var vanur að
byrja hvern dag með því að
57