Úrval - 01.09.1960, Side 67
FURÐUVERK FORNALDAR V.
Um 4700 f. Kr. skipaði fara-
óinn Khufu eða Keops svo fyrir
að reisa skyldi sér grafhýsi við
Ghizeh, en sá staður var þar
skammt frá í Egyptalandi, sem
nú stendur Kairó. Grafhýsi kon-
unga og stórmenna voru pýra-
mídar eða upptyppingar, og
höfðu margir verið reistir þeg-
ar Keops lét byrja á sínum, og
höfðu grafhýsin farið stækk-
andi, en þessi varð þó stærstur.
Hann stendur á þrettán ekrum
lands, en í hann fóru 5.309.000
smálesttir af grjóti. Hann er
brefalt stærri en Péturskirkjan
í Róm, og 50 fetum hærri. Verk-
ið var að mestu unnið í nauð-
ungarvinnu, og um skeið störf-
uðu að því 100 þúsund manns.
T'íu ár tók að leggja veg frá
fjöllunum þar sem grjótið var
tekið, en 20 ár að auki að reisa
pýramídann. Steinar voru 30
feta langir og meira, en svo
vel felldir saman, að vart sjást
samskeyti. Má gera sér í hugar-
lund hvert átak það hefur verið
hinum mannlegu maurum að
strita með þessi björg um 500
mílna veg í steikjandi sól
Egyptalands, og koma þeim fyr-
ir stall af stalli. Herodotus (f.
um 490 f. Kr.) kom til Egypta-
lands, og hefur mest sagt frá
mannvirkjum þessum. Hann var
mikill sagnfræðingur, en jafn-
framt slúðurbytta, og segir m.
a. að Keops hafi orðið auralaus
IJRVAL
og reyndi flest til þess að ráða
bót á því. Eitt var það að hann
lét dóttur sína stunda skækju-
lifnað og taka ríflega fyrir,
enda viðskiptavinir ekki af
verri endanum. En auk gjalds
tók stelpa stein af hverjum,
sem hana lá. Hún var að afla
sér grjóts í upptypping fyrir
sjálfa sig!
Keops-pýramídinn, og raunar
aðrir, er hreinasta meistara-
verk útreikninga og tækni, og
þá ekki síður skipulagningar,
því að nærri má geta hvað þurft
hefur til þess að halda tugum
þúsunda manna að verki í þrjá-
tíu ára striti við pýramídann,
þótt sjálfsagt hafi ekki verið
mulið undir þá, sem þrælkaðir
voru og kúgaðir til starfans.
Allt var þetta gert til þess að
búa hinum ,,ódauðlegu“ dauðu
heimkynni, en að auki fengu
þeir með sér skrúða skartsmik-
inn, firn dýrgripa og tækja til
þess að nota í „öðru“ lífi,
komnir til ódáinslanda á ferju,
sem einnig var stungið inn í
þessi dauðsmanns-grjótbákn.
Pýramídarnir urðu fyrirmyndir
grafa um alla Evrópu, og sér
þess víða staði þótt í smáu sé,
og hreint er það allt agnarve-
sælt borið saman við hið lang-
elsta og lang-mesta af hinum
sjö furðuverkum fornaldar,
Keops-pýramídann í Egypta-
landi.
61