Úrval - 01.09.1960, Síða 78
TJRVAL
HVERNIG VERÐA MENN HUNDRAÐ ÁRA?
vindlinga. Fyrir fimmtán árum
steinhætti hann að reykja, og
er þannig einn þeirra seytján
af hundraði hverju, sem hætt
hafa reykingum. Hann tók ekki
nærri sér að segja skilið við
þær. Hann sagði við sjálfan sig:
„að þetta væri bara illur ávani,“
og átti svo ekki meira við það.
Einungis átján hinna 250
kvenna hafa stundað tóbaks-
reykingar, en hinsvegar hafa 71
af hundraði karlmanna reykt í
hálfa öld eða lengur. Aðeins 15
af hundraði hafa reykt vind-
linga, og af þeim hafa tveir
þriðju tekið upp vindla- og
pipureykingar í staðinn, — og
þeir reykja ekki ofan í sig. Er
það vafalaust skýringin á því,
hversu fátt af þessu fólki er
með háan blóðþrýsting eða
hjartaveilu.
Skal þess getið að einungis
13 af hundraði hafa kennt
hjartabilunar og fæstir þeirra
fundið til þess fyrr en á ní-
ræðisaldri. Það er og hreinasta
furða að 65 af hundraði skuli
hafa eðlilegan blóðþrýsting.
Það af gamla fólkinu, sem
ekki er í algjöru bindindi, hefir
kunnað að drekka í hófi. Margt
af því skoðar vínanda sem eins
konar læknislyf. Rúmlega önn-
ur hver kona og fjórði hver
karlmaður hefir aldrei bragðað
áfengi.
„Ég drakk viský,“ segir
Thomas Murphy. „Ég vildi ekki
eyðileggja magann í mér með
öli.“ Hann er 109 ára gamall
skíðhöggvari og hætti ekki
störfum fyrr en hann var orð-
inn 83ja ára. I raun réttri hefir
hann aldrei drukkið sig fullan
af viský. Hann drakk aldrei
nema nokkur glös á mánuði, og
er nú steinhættur víndrykkju.
Sama er að segja um 61 af
hundraði kvenna og 80 af
hundraði karla þeirra er rætt
var við.
Einn 106 ára gamlan f járhirði
heyrðum við setja fram eink-
ar frumlega ástæðu fyrir því að
hætta að neyta áfengis. Hann
heitir Hank Gooch og hefir
ekki snert dropa í 56 ár. Þegar
hann var fimmtugur, fékk hann
sér einu sinni heldur mikið neð-
an í því og varð veikur. „Það
er bjánaskapur að fylla sig af
því, sem gerir mann veikan,“
sagði karl.
Hvað hefir svo arfgengin
mikið að segja? 73 hundraðs-
hlutar þessara 402 gamalmenna
hafa átt föður eða móður, syst-
ur eða bróður, sem orðið hafa
áttræð, og 39 af hundraði hafa
átt náin skyldmenni, eitt eða
fleiri, sem náð hafa níræðis-
aldri. Einnig að þessu leyti er
Rhetts læknir miðlungsmaður.
Foreldrar hans voru að vísu
63 ára er þau létust, en
bræður hans tveir urðu, annar
92 en hinn 96 ára að aldri, og
systir hans áttræð. Önnur amma
hans og þrír frændur urðu 90
ára og eldri.
Annars hafði meir en helm-
ingur af foreldrum þessa gamla
72