Úrval - 01.09.1960, Blaðsíða 117
SVARTA RÓSIN
ÚRVAL
Veiztu hvað ég held? Að þetta
séu ensk augu!“
# # #
„Megi drottinn veita þér
hefðarsess í Paradís,“ sagði
Theodór. „Þessi á að vera þjónn
þinn,“ og hann ýtti fram kol-
svörtum strákling, sem brosti
breitt undir geysimiklum og
geysiskítugum vef jarhetti.
„Bi, Mahmoud ibn Asseult,"
sagði kauði, og lagði hönd á
brjóst.
„Það er nafn hans,“ sagði
prestur. „Mahmoud er bezti pilt-
ur. Viljugur og stelur öllu, sem
þú þarfnast.“
„Hvernig fór með systurina?“
„Hún fer í dag með lestinni,
eins og ég sagði.“
„Hún hefur þá sætt sig við
þetta?“
„Við hverju bjóstu? Anthem-
us lét fletta hana klæðum og
býddi hana sjálfur. Hinar syst-
urnar horfðu á, því að Anthem-
us veit að það særði hana meira
en hýðingin. Hún fékk tylft
högga, og hljóðaði alls ekki.“
Maragha.
Þeir áttu að hitta Bayan
skammt frá Maragha. Bayan
vildi flýta för sinni, og var
öskuvondur yfir því, að þurfa
að dragast með stúlkurnar.
Walter og Tristram vissu ekk-
ert frekar um Maryam, en Wal-
ter hafði séð hana einu sinni
þær vikur, sem liðnar voru frá
því lestin lagði upp frá Anti-
okkíu. Sandrok skall á lestina;
allir unnu af kappi við að tjalda
og ganga sem tryggilegast frá
öllu. Stúlka var að verki við
hlið Walters. Hún sagði eitt-
hvað, sem hann skildi ekki, og
þá notaði hún hina venjulegu
aðferð til þess að kynna sig,
lagði hönd á brjóstið, og sagði:
„Bi, Maryam.“
„Bi, Walter,“ svaraði hann,
en hún hrökk við, og sagði
„Wal-ter?“ þannig, að auðskil-
ið var að nafnið hafði þýðingu
fyrir hana. Síðan brosti hún og
bætti við: „Wal-ter, Lun-dun,“
og endurtók þetta með hrifn-
ingu: „Wal-ter, Lun-dun.“
Það var komið öskrandi rok,
og sandur farinn að lemja þau,
en þó heyrði Walter hana end-
urtaka orðin „London“ og
,.hjálp“, gegnum veðurgnýinn.
„Stúlkan er ensk,“ sagði
Walter síðar við Tristram.
„Faðir hennar var enskur,
Walter frá London. Hún biður
um hjálp. Heldurðu að hún geti
verið dóttir skjaldsveins föður
míns, Walters Standers?11
Tímans vegna gat þetta ver-
ið, en margir „Walter-ar“ frá
London tóku þátt í krossferð-
unum. Þeim félögum fannst þó
að þeir þyrftu að gera eitthvað
fyrir þessa stúlku.
# # #
Lu Chung, Fuglinn-sem-mat-
ar-gogginn-sinn, kom í heim-
sókn í tjaldið þeirra. Lu Chung
hafði verið einskonar farar-
111