Póllinn - maj 2023, Side 14
Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir
Utanríkisráðherra á vettvangi
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur gegnt embætti
utanríkisráðherra frá lok árs 2021. Hún er lögfræðimenntuð og með
ágæta reynslu í pólitík. Í þessari útgáfu Pólsins förum við
,,alþjóðaleiðina‘‘ en í þeim anda er eflaust viðeigandi að spurja
utanríkisráðherra Íslands nokkurra spurninga út í starfið og
heimsmálin.
Hver voru fyrstu viðbrögð þín þegar þú fréttir
af innrásinni í Úkraínu? Varstu undirbúin
undir að þurfa að gegna svo stóru
ábyrgðarhlutverki fyrir svo stórt heimsmál?
Þegar ég tók við embætti utanríkisráðherra í
lok nóvember 2021 var mitt fyrsta verk að
sækja fund NATO í Riga. Þá þegar var mikil
umræða um að Rússar væru mögulega og
líklega að undirbúa innrás í Úkraínu. Vikurnar
á eftir héldu áfram að berast upplýsingar sem
sýndu hvernig Rússar voru að búa sig undir
mögulega innrás þótt margir hafi talið að
Rússnesk stjórnvöld myndu ekki láta til skara
skríða. Kvöldið fyrir hina örlagaríku nótt sem
þeir réðust svo inn, 24. febrúar, fékk ég
upplýsingar sem gerðu mér ljóst að líklega
myndi Rússland ráðast inn og heimsmyndin
væri breytt þegar ég vaknaði eða yrði vakin. Ég
var vakin þá nótt og mín fyrstu viðbrögð voru
yfirveguð sorg og mikill fókus á að anda djúpt
og vanda öll viðbrögð. Upplýsa almenning um
alvarleikann og að við stæðum frammi fyrir
breyttri heimsmynd, gríðarlegu bakslagi. Það
að stríð hafi brotist út í Evrópu þýddi að sú
heimsmynd sem var fyrir þessa nótt var ekki
lengur sú heimsmynd sem við værum nú stödd
í.
Í hreinskilni sagt kom mér á óvart hvað ég
hugsaði mikil til kynslóðar barna minna, að
þeirra æska og framtíð yrði myrkari en mín
eigin. Þá er ég kki að vísa til íslenskra barna
heldur allra. Það er okkur eðlislægt að trúa á
framfarir og það tók mig tíma að melta þessa
breyttu heimsmynd, þetta tilgangslausa stríð.
Þessa árás á þau gildi sem við verðum að geta
treyst á, lítið land eins og Ísland og heimurinn
allur. Rússar voru að þverbrjóta stofnsáttmála
Sameinuðu þjóðanna. j
Ég var búin undir það að gegna svo stóru
ábyrgðarhlutverki, já. Ég lít á þetta hlutverk sem
mikil forréttindi að fá að sinna fyrir hönd Íslands
og tek því alvarlega.
Það sem er að gerast í heiminum kann að vera
yfirþyrmandi fyrir marga… glundroði, stríð,
hatur og öfgar - hvernig kemur þú þér á jörðina
þegar allt virðist vera að fara úr böndunum?
Ég á satt að segja ekki erfitt með að halda mér
niðri á jörðinni almennt. Það þýðir ekkert annað,
missi maður það þá á maður of erfitt að vera
yfirvegaður í flóknum og/eða erfiðum
aðstæðum, einmitt þegar við þurfum helst að
vera yfirveguð. Þá missir maður frekar yfirsýn
og á erfiðara með að treysta eigin áttavita eða
innsæi. Þannig að jarðtenging er alltaf
skynsamleg og henni næ ég með samveru með
börnunum mínum, eiginmanni og fjölskyldu.
Vera heima hjá mér, fara í sund, gufu og kaldan
pott til að hreinsa hugann. Og passa að sofa alltaf
nóg, það eru mestu galdrarnir að vera útsofin, þá
er allt mögulegt.
12