Póllinn - maí 2023, Blaðsíða 33

Póllinn - maí 2023, Blaðsíða 33
Ritskoðun sögunnar Fá virðast vita af þessari nasískri sögu Útlendingastofnunar og er það engin furða þar sem markvisst hafa greinar sem gagnrýna stofnunina og sögu hennar horfið úr birtingu. Það er ástæða þess að höfundur kýs að birta greinina nafnlaust. Útlendingastofnun var gagnrýnd fyrir harkalega stefnu í útlendingamálum í grein Jóns Bjarka Magnússonar „Stefnan að halda landinu lokuðu“ í DV árið 2014. Árið 2023 virðist lítið hafa breyst. Í þessari grein Jóns Bjarka eru umsagnir eða tilvitnanir í aðra sérfræðinga. Rithöfundurinn Auður Jónsdóttir lýsir stefnu íslenskra yfirvalda á eftirfarandi hátt. „Það ber að vísa öllum úr landi sem er mögulega hægt að senda burt á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þó að það sé ekkert sem segi okkur beri að gera svo veljum við að gera það.“ Búið er að fjarlægja þessar greinar af síðum DV en hægt er að finna þær á tímarit.is. Árið 2009 birtist grein í DV eftir Hauk Má Helgason þar sem skerpt var á nasískum rótum Útlendingastofnunar. Í greininni velti hann því fyrir sér hvort uppruni Útlendingastofnunar gæti að einhverju leyti skýrt þá hörku sem stofnunin hefur sýnt útlendingum enn í dag. Hefur stofnunin gert upp við sína fortíð eða er hún enn að leitast við að halda fátæku, lituðu aðkomufólki frá Íslandi? Vísað var í þessa grein Hauk Más í umfjöllun Wikipedia um Útlendingastofnunina. Sú vísun hefur verið fjarlægð síðan þá. Á núverandi Wikipediusíðu er er fyrirvari um að efni síðunnar sé umdeilt vegna athugasemdum um hlutleysi. Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, neitaði því að nasísk eða fasísk vinnubrögð væru viðhöfð hjá stofnunni. Einnig viðurkenndi hún í viðtali sem hún veitti Pressunni að Agnar hefði fengið þjálfun hjá SS-sveitum nasista en tók fram að henni væri ekki kunnugt um hvað hann hefði viðhafst þar. Þá sagði hún að tilraunir hefðu verið gerðar til þess að „laga umfjöllunina“ en án árangurs. Viðhorf Útlendingastofnunnar Kristín Völundardóttir hefur verið forstjóri Útlendingastofnunar síðan 2010. Í útvarpsviðtali við RÚV sagði hún að vegna of langra málsmeðferða væri of aðlaðandi fyrir fólk að koma til Íslands og fá frítt fæði og húsnæði ef það þykist vera hælisleitendur. Forveri hennar, Haukur Guðmundsson, hafði svipað viðhorf og lét hann ummælin að hælisleitendur „gætu bara farið á hótel“ árið 2008 og varði umdeilda fjöldahandtöku á gistiheimili sama ár þar sem hælisleitendur höfðu verið með fölsuð skilríki. Árið 2013 varði Davíð Oddsson, sem þá var orðinn ritstjóri Morgunblaðsins, leka á persónuupplýsingum hælisleitenda til fjölmiðla. Innanríkisráðuneyti Hönnu Birnu Kristjánsdóttir var seinna rannsakað fyrir þetta mál, sem hlaut nafnið Lekamálið. Hann varaði einnig við því að útlendingar sæktu í of auknum mælum í velferðarkerfi Íslendinga. Kærunefnd útlendingamála Árið 2021 skipaði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi dómsmálaráðherra, Þorstein Gunnarsson í embætti formanns kærunefndar útlendingamála. Hann var áður staðgengill forstjóra Útlendingastofnunar og hafði lengi starfað hjá stofnunni. Kærunefnd útlendingamála á að vera sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem hefur það hlutverk að rannsaka og úrskurða í kærumálum sem falla undir útlendingalög, einkum hvað varðar dvöl og búsetu innflytjenda hér á landi og rétt til alþjóðlegrar verndar. Vegna fyrri tengsla Þorsteins við stofnunina hefur hlutleysi hans legið undir ámæli. Framkvæmd úrskurðanna er þó í höndum Útlendingastofnunar og Ríkislögreglustjóra. Það þykir umdeilt og ekki standast stefnu nefndarinnar um hlutleysi. Gefin var út yfirlýsing með áhyggjum yfir þessari ráðningu. Meðal þeirra sem skrifuðu undir yfirlýsinguna eru Félag hernaðarandstæðinga, Félagið Ísland-Palestína, No Borders Iceland, Röskva – samtök félagshyggjufólks við HÍ, Vaka - hagsmunafélag stúdenta, Samtökin '78, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Hallgrímur Helgason rithöfundur. Í henni kom meðal annars fram að „með þessu [sé] grafið undan grunnstoðum lýðræðislegs réttarríkis og réttarvitund þegna þess.“ Skipan Þorsteins yfir áfrýjunarnefnd sem tekur til úrskurðar mál frá stofnuninni sem hann stýrði áður hefur því vakið gagnrýni. Sema Erla Serdar, stofnandi Solaris, hjálparsamtaka hælisleitenda á Íslandi, sagði skipun Þorsteins koma á óvart í ljósi þess að hann hefði verið í forsvari fyrir „mjög harkalega og fólksfjandsamlega stefnu“ Útlendingastofnunar. Hinn raunverulegi flóttamannavandi er Útlendingastofnun. Fólk sem vill njóta öryggis er það ekki. Þetta er stofnunarvandi, þetta er samfélagsvandi, þetta er viðhorfsvandi og þetta er orðræðuvandi. Að lokum legg ég til að Útlendingastofnun verði lögð niður. 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Póllinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.