Póllinn - maí 2023, Blaðsíða 63
Á miðvikudeginum var haldið í Háskólann í Maryland þar sem fyrsta heimsókn DC var, þar
tók íslenskur prófessor við stjórnmálafræði deildina og kynnti okkur fyrir skólanum, við
urðum svo heppin og fengum að fylgjast með seminar hjá doktorsnema í stjórnmálafræði
kynna verkefni sitt. Ég verð að viðurkenna að aldrei nokkurn tímann hefur mér liðið jafn
heimskum á ævinni.
Fimmtudagurinn var ekki ósvipaður hinum dögunum, við fórum í Þinghúsið, töluðum við
starfsmann Fulltrúadeildar og enduðum svo daginn á Utanríkisráðuneytinu. Á föstudeginum
var farið í skoðunarferð í Hæstarétt Bandaríkjanna, heimsókn í Alþjóðabankann og
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn svo tók seinasta heimsókn ferðarinnar við þar sem okkur var boðið
í Sendiráð Íslands. Þessi vika hafði verið nokkuð stíf og þegar þangað var komið þá var
bjórinn og vínið sem í boði var kærkomið, sum okkar gengu full djarft til borðs sem kom í
ljós eftir heimsóknina þegar gestir veitingastaðs fengu að upplifa stórglæsilegan barráttusöng
fullra Íslendinga. Eftir heimsóknina þá var stór hluti eins og kýr að vori að fagna frelsinu og
hef ég það frá áreiðanlegum heimildum að ölvunin hafi farið yfir velsæmdarmörk hjá
sumum. Á laugardeginum voru tvö afmælisbörn en eftir föstudagsdrykkjuna þá var orkan af
skornum skammti í mannskapnum þrátt fyrir miklar yfirlýsingar um heljar veislu um
kvöldið. Sunnudagurinn var heimferðardagur, eftir langa ferð var einstaklega þægilegt að
skríða um borð í vél Icelandair og loksins fá íslenskt vatn.
Gunnar Bjarki Ólafsson
61