Póllinn - maí 2023, Blaðsíða 29
Skiptinemi
Hvað er helsta menningarsjokkið?
Ég veit ekki hvort ég fékk mikið menningarsjokk þegar ég kom fyrst til Amsterdam. Helstu
„sjokkin“ fyrir mig voru bara nokrrir litlir hlutir. Það fyrsta sem ég tók eftir var hversu ódýrt
áfengið var, og að það sé hægt að kaupa áfengi í matvörubúðum. Jú, arkítektúrinn og
samgöngukerfið hér er mun betra en á Íslandi, en ég vissi það fyrirfram.
Hvað ertu að læra og hvernig er námið? Er skólastofnunin og kennararnir öðruvísi?
Ég er að læra stjórnmálafræði í Vrije Universiteit Amsterdam. Að mínu mati er námið
töluvert erfiðara en heima, skólinn er með meira magn af lesefni en HÍ ef hægt er að trúa
því. Það sem gerir námið kröfuharðast fyrir mig þó er í raun hvernig áfangarnir og
skólakerfið er uppsett. Hver önn er skipt í þrjár „lotur“. Fyrstu loturnar taka um það bil sex
vikur, sú þriðja tekur um það bil þrjár vikur. Mælt er með að vera í tveim áföngum í fyrstu
tveim en aðeins einum áfanga í þriðju. Þetta kerfi hefur sína kosti og galla, en persónulega
finnst mér mjög erfitt að læra fyrir krefjandi áfanga á aðeins sex vikum. Helsti kosturinn þó
er að prófatíðin er mun styttri í hvert sinn, sem er mjög gott fyrir andlega heilsu.
Kennararnir eru að mestu leyti mjög skemmtilegir og flestir virðast hafa gaman af starfi sínu.
Hvernig er fólkið og menningin?
Því miður get ég sagt afskaplega lítið um hollenska menningu, þar sem nær allir sem ég þekki
eru einnig alþjóðlegir nemendur og eru frá allstaðar í heiminum. En fólkið hér er lang besti
parturinn. Ég hef kynnst sumum af mínum allra bestu vinum hér sem ég mun vera í
samskiptum við í langan tíma. Ég er með góða herbergisfélaga og var í stórum og frábærum
vinahóp með fólki allstaðar frá. Flest af þessu fólki bjó í sömu byggingu og ég sem var
geðveik upplifun. En helsti gallin við þetta er að nær allir sem ég þekkti voru í skiptinámi í
einungis sex mánuði. Þar sem ég verð hér í rúmt ár varð nokkuð erfitt að aðlagast sama
umhverfinu með allt öðru fólki. En nú ég er að ná að kynnast nýja fólkinu nokkuð vel.
Hvers saknar þú mest?
Akkúrat núna sakna ég mest fólksins sem ég kynntist á fyrstu önninni hér. En það sem ég
sakna mest frá Íslandi er að þurfa ekki að kaupa inn mat og elda sjálfur. En auðvitað sakna
líka ég vina minna, fjölskyldunni og fólkinu í stjórnmálafræði í hí!
Finnst þér þú sjá Ísland í öðru ljósi?
Já, ég held það. Helst bara hversu skrítin við raunverulega erum. Ég get nú borið saman
allskonar menningarlega og stjórnarfarslega hluti í öðrum löndum. Það er erfitt að segja
hvort ég sjái Ísland í betra eða verra ljósi heldur áður að ég kom. En ég myndi segja að ég sé
betur styrkleika og veikleika Íslands samanborið við önnur lönd. Að vera íslenskur er mjög
auðveld leið til að brjóta ísinn í samskiptum, þar sem það eru góðar líkur að ég er fyrsti
Íslendingurinn sem fólk hittir.
Samúel Ingi Daníelsson
Íslendingur í Hollandi
27