Póllinn - maí 2023, Blaðsíða 55

Póllinn - maí 2023, Blaðsíða 55
Samræmi Þetta frumvarp á sér ekki fyrirmynd í stefnum annarra ríkja sama hvað sumir stjórnmálamenn halda fram. Jafnvel nágrannar okkar í Danmörku sem eru með ströngustu útlendingastefnu Evrópu ganga ekki jafn langt. Þar er lágmarksþjónusta aldrei felld niður. Raunverulegt markmið breytingarinnar á 6.gr. er að þvinga fólk til að fara „sjálfviljugt“ úr landi þegar stjórnvöld geta ekki flutt það nauðugt. Meginmarkmið 1.gr um heimild til flýtimeðferðar, sem býr til skilgreininguna á endurtekinni umsókn, virðist eingöngu hafa verið gerð sem afsökun til að hafna beiðnum. Að útrýma beiðnum um endurupptöku mála er ekki í samræmi við ákvæði Evróputilskipunarinnar sem vísað er til. Það að afnema rétt til endurupptöku máls meinar fólki um rétt sinn að sækja aftur um vegna nýrra gagna eða upplýsinga. Ætli það sé einhver tenging á milli þessarar tillögu og þeirrar staðreyndar að oft vinnist mál í endurupptöku eftir neikvæðan lokaúrskurð? Áhyggjur Íslendinga En auðvitað er skiljanlegt að þetta litla eyríki hafi einhverjar áhyggjur. Heyrst hefur að það sé alltof mikil vinna að breyta kerfinu. Hins vegar hefur móttaka flóttafólks frá Úkraínu sýnt að ekki þurfi að gera neinar lagabreytingar til þess að auka skilvirkni kerfisins til muna. Og sumir spyrja sig ef til vill, en hvað með kostnaðinn sem fylgir hælisleitendum sem íslenskir borgarar munu þurfa að greiða með sköttunum sínum? Þá er staðreyndin sú að breytingarnar sem þetta frumvarp reynir að innleiða munu verða til þess að einstaklingum sem eru hér árum saman án þess að fá niðurstöðu í máli sínu mun fjölga. Frumvarpið eyðileggur ákvæði sem sett voru sérstaklega til að leysa það vandamál. Kostnaður við uppihald og þjónustu eykst fyrir vikið. Það er peningur sem hefði getað verið nýttur til að bæta samfélagið og styrkja innviði landsins. Eða bara einfaldlega brenna þá, hefði nánast verið betri nýting. En peningar eru ekki allt. Þetta er fólk. Allt fólk er jafnt, en sumt fólk er jafnara en annað Við sem Ísland elskum að státa okkur af því að vera jafnréttindaparadís en síðan eru stjórnvöldin okkar að koma í gegn frumvörpum eins og þessu? Ekki er tekið tillit til sérstöðu fatlaðra, hinsegin og trans einstaklinga. Það er sorgleg staðreynd að þetta frumvarp mun ekki hafa áhrif á öll á sama hátt og því getum við ekki boxað alla sem „útlendinga“, meta þarf hverja umsókn á sínum eigin forsendum. 8. grein frumvarpsins gerir Útlendingastofnun heimilt að senda fólk hvert sem þeim sýnist eftir synjun umsóknar. Löndin myndu ekki þurfa að vera skilgreind sem örugg ríki og ekki einu sinni vera með aðild að Flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna. Þrátt fyrir að Útlendingastofnun telji eitt ríki öruggt þýðir það ekki að það ríki sé öruggt fyrir alla einstaklinga. Einkunn Íslands hjá Rainbow Europe telur stöðu hinsegin flóttafólks vera frekar góða. Samt sendum við fólk til landa eins og Ungverjalands þar sem nánast enga lagalega vernd fyrir hinsegið fólk er að finna því það er talið „öruggt“ af Útlendingastofnun. Frumvarpið mun gera þeim mun auðveldara að vísa fólki til landa sem munu brjóta á réttindum þeirra. Af hverju er íslenska ríkið að bregðast skyldu sinni með því að senda aftur einstaklinga í hættulegar og ómannúðlegar aðstæður? „Land tækifæranna“ Ættum við ekki frekar að fjárfesta í innviðum? Eða aðlögun fólks að samfélaginu? Af hverju erum við að eyða tímanum okkar í að koma í gegn ómannúðlögum lögum frekar en eitthvað sem gagnast fólki í raun? Við héldum að við værum land tækifæranna, en það á greinilega bara við fyrir suma. Við skorum á stjórnvöld að stöðva þessa lögleiðingu mannréttindabrota undir eins. Askur Hrafn Hannesson Íris Björk Ágústsdóttir (Höfundar eru meðlimir Fellum Frumvarpið) Þann 15. mars var Útlendingafrumvarpið samþykkt á Alþingi með 38 atkvæðum gegn 15. en ekki með ólögum eyða en sumt fólk er jafnara en annað 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Póllinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.