Póllinn - maí 2023, Blaðsíða 50
Á síðustu árum hefur Kína aukið umsvif sín alþjóðlega og vakið mikla tortryggni, og undrun
meðal Vesturlandabúa. Kína hefur á þrjátíu árum tekist að lyfta yfir 700 milljónir borgara
sinna úr fátækt og búið til eitt öflugasta efnahagskerfi í heiminum og er farið að nálgast
Bandaríkin í framleiðslu. Þrátt fyrir mikinn árangur þá eru ýmis vandamál í Kína. Eitt stórt
málefni hefur verið verulega umdeilt í Kína og það er búsetu kerfið þeirra Hukou.
En hvað er Hukou? Þrátt fyrir það að Kína sé fjölmennasta land í heimi þá frétta
Vesturlandabúar lítið af innanríkis pólitík Kína, þ.e.a.s. ef það snýst ekki um flokksdeilur eða
hernaðarbrölt landsins. Í stuttu máli snýst Hukou um það að þú sem þegn landsins ert með
skrásettan búseturétt í ákveðnu fylki eða héraði. Þar hefur þú aðgang að þeim réttindum sem
fylgir því að vera borgari í landinu, eins og rétt til skólagöngu eða heilbrigðistryggingum.
Óánægjan á kerfinu felst í því að það er sérlega erfitt að flytja búseturétt sinn þar sem þarf
sérstaka ástæðu fyrir að flytja, t.d. ef að aðili giftist öðrum aðila frá því fylki sem þú ert að
flytja til þá mátt þú flytja ríkisfangið þitt þangað. Hins vegar mátt þú ekki flytja ef að ástæðan
þín fyrir flutningunum sé leit að betri atvinnutækifærum.
Hukou á uppruna sinn að rekja til forn Kína en á þeim tíma kallaðist kerfið Huji og var leið
fyrir keisarann að skrásetja borgara sína, og vita hvar þeir byggju. Í kjölfar sigurs
kommúnistanna á þjóðernissinnum í borgarastyrjöldinni árið 1949 var mikil áhersla lögð á
að iðnvæða landið, en meirihluti Kína bjó í sveitum og störfuðu við landbúnað. Vissulega
vantaði mannafla til þess að iðnvæða landið en að sama skapi þá var ekki boðlegt að
sveitirnar tæmdust. Hukou var þar með leið til þess að stjórna flæði fólks innanlands og
koma í veg fyrir að allir flyttu sig til borganna.
Frá ákveðnu sjónarhorni þá virkaði Hukou. Þrátt fyrir það að meirihluti kínversku
þjóðarinnar búi í austurhluta landsins, nálægt eða við sjóinn þá búa enn þá níutíu milljón
manns í vesturhluta landsins. Kerfið kom í veg fyrir það að landbúnaður í Kína yrði lagður
niður að miklu leyti og gerði það að verkum að ríkisstjórnin gat betur skipulagt
efnahagsþróun landsins. Einnig hefur kerfið þann kost að ef þú t.a.m flytur út í sveit þá er
ríkisstjórnin skuldbundin því að útvega þér landareign ókeypis þar sem að allar landareignir
voru gerðar upptækar í kjölfar byltingarinnar og deilt meðal fólksins. Þar með getur aðili
fengið landareign til þess að rækta á miklu auðveldari máta heldur en hér á Vesturlöndum.
Hukou
Deyjandi kerfi
48