Póllinn - maj 2023, Side 18
COP27 var haldið í ferðamanna- og ráðstefnubæ syðst á Sinaískaga við Rauðahafið. Húsin
þar eru á litin eins og eyðimerkursandur og eru nær öll jafn há þannig að hægt er að horfa
yfir allan bæinn frá útsýnisstað. Öll húsin virðast innan við tuttugu ára, en virðast mörg tóm.
Risastór verslunarmiðstöð, á stærð við fjórar Kringlur, var heldur tómleg þar sem aðeins
fjórða hvert verslunarhólf var opið. Stórar súlur og styttur í egypskum stíl úr plasti stóðu
tignarlega við innganginn. Fjöldi verslanarekanda og veitingamanna reyndu að lokka til sín
það örfáa fólk sem átti leið hjá. Nóvember er óvinsæll tími til þess að ferðast hingað enda er
meðalhitinn aðeins um 21 gráða.
Í ár var þó heldur fleira fólk en í hefðbundnum nóvembermánuði enda stóð fyrir dyrum að
halda í bænum árlega loftslagsráðstefna þeirra 197 þjóða sem eiga aðild að rammasamningi
Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem var undirritaður í Ríó de Janeiro árið 1992.
COP27 stendur fyrir „Conference of the Parties“ og er 27. ráðstefnan í röðinni. Um 35
þúsund manns eru mætt til þess að fylgjast með viðræðum, fylgjast með og taka þátt í
viðburðum ásamt því að sækja málþing tengd rammasamningnum.
Ungir umhverfissinnar fengu styrk og leyfi frá ráðuneytum til þess að senda einn fulltrúa á
ráðstefnuna. Þeir létu þó styrkinn duga til þess að senda tvo fulltrúa, forseta og varaforseta.
Við lendingu á flugvellinum í Sharm El-Sheikh var fjöldinn allur af starfsfólki merkt í bak og
fyrir COP27 og voru reiðubúin að aðstoða ringlaða COP-fara. Þegar út af flugvellinum var
komið kemur galvaskur drengur og spyr á hvaða hóteli við gistum. Þegar við svörum leiðir
hann okkur í rútuna sem fer með okkur þangað. Á leiðinni á hótelið fáum við að kynnast
mjög einkennilegu vegakerfi landsins. Það eru engin umferðarljós og engin mislæg
gatnamót. Það er ekki hægt að beygja til vinstri heldur bara til hægri og taka U-beygjur
einstaka sinnum.
Á hótelinu var mikið reynt að halda uppi stemningunni með tónlist og skemmtiatriðum en
með frekar dræmri aðsókn. Morgunmatur er innifalinn og góður. Mikið er um grænmeti
sem hentar vel, fyllt grænmeti, hrísgrjón, steikt grænmeti, baunaréttir, egypskt brauð o.fl.
Dagur í lífi COP-fara
Egill fór fyrir hönd Ungra Umhverfissinna á COP-27, Loftlagsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna sem haldin var í Egyptalandi síðastliðinn nóvember, og
skrifar hér um upplifun sína þar.
Beint fyrir framan hótelið voru stórar myndir af
forseta Egyptalands, Abdel Fattah El-Sisi, þar sem
hann horfir blíðum augum yfir bæinn með
blaktandi egypskan fána í bakgrunni. Strætisvagn
kom á hótelið á fimmtán mínútna fresti til þess að
skutla gestum á ráðstefnusvæðið. Í fyrstu var lofað
rafmagnsvögnum en raunin varð önnur og var
misjafnt hvers konar vagnar komu.
Jakkafataklæddir menn með sólgleraugu stóðu á
öllum götuhornum í steikjandi heitri sólinni að
fylgjast vel með gangandi vegfarendum.
16