Póllinn - maj 2023, Side 42
UNWomen
UNWomen á Íslandi hefur ungmennaráð. Ungmennaráð UN Women fræðir og eflir ungmenni í
málefnum kvenna og jafnréttis í fátækari löndum og stríðsátakasvæðum. Það er opin öllum
ungmennum 16-30 ára
Insta: @ungmennaradunwomen
Hjálparsamtök innan
og utan frá: Kynning á
sjálfboðastarfi
Námið tekur stundum yfir líf okkar. Hins vegar er margt hægt að gera utan þess sem gleymist stundum.
Sjálfboðaliðastarf er mjög gefandi (og lítur vel út á ferilskrá). Margir stjórnmálafræðinemar eru meðlimir í
stjórnmálahreyfingum og stúdentahreyfingum sem er eðlilegt þar sem það er nátengt okkar áhugasviði en það eru líka
aðrir möguleikar sem fólk veit ekki endilega af. Hérna eru nokkur störf sem er hægt að bjóða sig fram í og láta gott af sér
leiða. Hvort sem það er að fara í stjórn eða mæta á viðburði og styrkja starfið þannig. Þetta er að sjálfsögðu ekki
tæmandi listi en ef þig langar að gerast sjálfboðaliði og veist ekki hvert þú átt að leita þá er þetta góð byrjun!
Ungmennaráð Barnaheilla (Ungheill)
Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök sem hafa það að markmiði að vinna að
mannréttindum barna. Save the Children starfa í yfir 120 löndum með 25.000 starfsmenn og vinna samtökin að
réttindum og velferð barna með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi. Ungmennaráðið er fyrir fólk 13-
25 ára. Hlutverk ungmennaráðsins er að hvetja ungt fólk til þátttöku, hafa áhrif á sitt samfélag og berjast fyrir
mannréttindum barna.
Insta: @ung.heill
Amnesty International
Amnesty International eru alþjóðleg mannréttindahreyfing rúmlega tíu milljón einstaklinga í meira en 150 löndum.
Starf þeirra miðast á að vernda fólk hvar sem er í heiminum, þar sem brotið er á mannréttindum, réttlæti, frelsi eða
reisn. Til að læra meira um starfsemi, markmið og stefnu AI er hægt að skoða vefsíður þeirra amnesty.is og
amnesty.org. Ungliðahreyfingin þeirra er opin fyrir öllum 16-25 ára. Einnig er háskólahreyfing Amnesty líka til.
Hún er opin fyrir öllum háskólanemum á Íslandi.
Insta: @amnesty_unglidar og @haskolaamnesty
Netfang: unglidar.amnesty@gmail.com og amnestyhaskolahreyfing@gmail.com
Ungir umhverfissinnar
Frjálsu félagasamtökin Ungir umhverfissinnar (UU) voru stofnuð árið 2013. Tilgangur félagsins er að vera
vettvangur ungs fólks (15-35 ára) á Íslandi til að láta gott af sér leiða í umhverfismálum. Þau vilja hvetja til upplýstrar
umræðu um umhverfismál og berjast fyrir sjálfbærri þróun, náttúruvernd og grænu hagkerfi.
Vefsíða: umhverfissinnar.is - Hægt er að skrá sig í félagið á vefsíðunni þeirra
Insta: @ungirumhverfissinnar
Femínistafélag Háskóla Íslands
Femínistafélag Háskóla Íslands er þverpólitískt félag háskólanema sem berjast fyrir jafnrétti allra
kynja innan háskólans sem og utan. Félagið berst fyrir aukinni fræðslu og meðvitund um
kynjamisrétti innan háskólans bæði fyrir nemendur og starfsfólk, auk þess veita fræðslu, og gefa
nemendum sem upplifa jaðarsetningu stuðning og berst stöðugt fyrir bættri stöðu þeirra.
FB: Femínistafélag Háskóla Íslands
Insta: @feministarhi
40