Póllinn - May 2023, Page 43

Póllinn - May 2023, Page 43
Q-félagið Hvort sem þú ert hinsegin eða ert óörugg/ur/t með kynhneigð og/eða kynvitund þína þá er Q fyrir þig. Félagið er fyrir öll sem láta sig málefni hinsegin fólks varða. Markmið félagsins er að gefa hinsegin (LGBTQIA+) stúdentum tækifæri til að hittast, veita þeim stuðning og auka samheldni þeirra. Auk þess að vera sýnilegt afl innan háskóla og í forsvari þegar málefni hinsegin einstaklinga ber á góma. Þau beita sér í réttindabaráttu hinsegin fólks innan og utan háskóla. Þau stuðla að aukinni fræðslu, kennslu, umræðu og rannsóknum um málefnið innan sem flestra deilda háskóla. Vefsíða: queer.is Netfang: queer@queer.is Insta: @qfelag Hægt er að gerast meðlimur og fá Q-kort sem veitir afslætti og fríðindi AFS AFS eru alþjóðleg sjálfstæð félagasamtök sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Samtökin bjóða upp á þvermenningarleg námstækifæri þar sem hægt er að öðlast þá þekkingu, færni og skilning sem þarf til að vinna að réttlátari og friðsamari heimi. Ef þig langar að kynnast fólki alls staðan að úr heiminum, öðlast menningarlæsi og hjálpa ungu fólki í skiptinámi, þá gæti AFS verið fyrir þig. Insta: @afsiceland og @rvkdeild_afs FB: AFS Skrifstofan Vefsíða: afs.is Rauði krossinn Rauði krossinn á Íslandi er hluti af alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans þar sem starfa yfir 14 milljónir sjálfboðaliða. Á Íslandi starfa um 2300 sjálfboðaliðar um allt land. Verkefnin eru fjölbreytt og flest geta fundið verkefni við hæfi og nýtt hæfni sína og þekking samfélaginu til góða. Hægt er að sækja um sjálfboðaliðastörf á vefsíðu þeirra. Til dæmis er hægt að aðstoða við íslenskukennslu, gerast leiðsöguvinir til að stuðla að gagnkvæmri félagslegri aðlögun og margt fleira spennandi! Vefsíða: raudikrossinn.is/sjalfbodalidar Hugrún geðfræðslufélag Félagið hefur það að markmiði að fræða ungt fólk um geðheilbrigði, geðraskanir og úrræði, sem og að auka samfélagslega vitund. Á hverju ári býðst háskólanemendum tækifæri á að starfa sem fræðarar fyrir hönd Hugrúnar. Þeir þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði og ljúka þjálfun áður en þeir mega halda geðfræðslufyrirlestra. Fræðarar Hugrúnar eru í sjálfboðavinnu og ferðast um land allt í framhaldsskóla til að fræða ungmenni um geðheilbrigði, geðraskanir og úrræði sem standa til boða. Hægt er hægt að skrá sig á þau reglulega á Facebook síðu þeirra Fræðarastarf Hugrúnar er gefandi, lærdómsrík og skemmtileg reynsla. Í þokkabót gefur starfið góða þjálfun í því að halda fyrirlestra og koma fram . Þetta er fyrir háskólanema sem eru undir 35 ára aldri þar sem þetta er jafningjafræðsla. FB: Hugrún-geðfræðslufélag Vefsíða: gedfraedsla.is Ung Norræn Ungmennadeild Norræna félagsins á Íslandi. Þau eru hópur ungmenna sem hefur áhuga á norrænu samstarfi og vilja stuðla að auknu samstarfi milli Norðurlanda. Starf þeirra innifelur skemmti-,fræðslu- og menningarviðburðum, vitundarvakningu um ágóða norræns samstarfs auk hagsmunabaráttu gagnvart stjórnvöldum, bæði á Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Opið fyrir fólki á aldrinum 16-30 ára. Netfang: unf@norden.is Insta: @ungnorraen FB: Ung Norræn 41

x

Póllinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.