Póllinn - mai 2023, Síða 51
Hins vegar þýðir það ekki að líf innan Hukou kerfisins hafi verið dans á rósum. Þrátt fyrir
það að Hukou hafi gert það að verkum að landsbyggðin þurkaðist ekki út þá hafa margir
gagnrýnt það að kerfið sé notað til þess að neyða fólk til þess að búa áfram í fátækustu
fylkjunum. Með því er komið í veg fyrir að fólk geti betrumbætt aðstæður sínar með að flytja
í annað fylki í leit að betri atvinnutækifærum. Þar sem að það er ekki hægt að færa búsetu
sína þá hafa mörg í fátækari héruðum landsins neyðst til þess að skilja börn sín eftir á meðan
þau fara til þess að vinna í ólöglega í borgum Kína. Ástæðan fyrir því að flest þessara aðila
skilja börnin sín eftir er að þau hafa einungis rétt á skólagöngu fyrir börnin sín í fylkinu sem
þau eru skráð í og þar með verða börnin að vera eftir, hvort sem að þau búa hjá ná fjölskyldu
sinni, vinum eða nágrönnum. Einnig gildir þessi regla fyrir foreldrana sem eru að vinna
ólöglega í borginni. Þau hafa ekki rétt á heilbrigðistryggingum, hafa ekki rétt til þess að
mennta sig í háskólanum á svæðinu, rétt til búsetu né húsaleigubóta o.s.frv. Þetta gerir það að
verkum að það verður til ákveðinn hópur íbúa sem verða hálfgerðir ólöglegir innflytjendur í
eigin landi.
Einnig hefur verið gagnrýnt að kerfið hafi verið notað til þess að koma í veg fyrir að
Uighurar og Tíbetar geti flutt sig úr þeim hluta landsins sem ríkisstjórnin vill að þau búi í.
Alveg síðan að Ísdrengurinn, eins og hann hefur verið kallaður, birtist á samfélagsmiðlum
árið 2019 sem sýndi aðstæður þeirra allra fátækustu í Kína og hvernig að kerfið sjálft er að
miklu leyti orðið úrelt. Ísdrengurinn eða Wang Fuman er einn af svokölluðum „left-behind
children“, sem eru börn sem hafa verið skilin eftir í héruðunum og fór myndbandið í
dreifingu þegar hann mætti í skólann þakinn ís eftir göngu hans í skólann. Eftir að
myndbandið fór í dreifingu þá hefur verið aukinn þrýstingur á að breyta reglum Hukou eða í
mörgum tilfellum leggja kerfið almennt niður.
Þar sem að Kína nútímans er iðnvætt, nútímalegt og kapítalískt þá er nánast óhugsandi að
kerfi, sem hefur verið óbreytt síðan að borgarastyrjöldinni lauk, sé enn þá til staðar og sé enn
notað til þess að hindra fólk frá því að rísa úr fátækt. Einnig er frjálst flæði fólks um landið
ekki slæmt fyrir efnahaginn, vissulega koma einhver erfið ár fyrir landsbyggðina þar sem að
fleiri aðilar flykkjast til borganna. skiljanlegt er af hverju þessi umræða hafi ekki farið af stað
fyrr. Flokkurinn hefur síðan þá lofað að betrumbæta Hukou og slaka á reglugerðum hvað
það varðar, en það er bara tímaspursmál hvenær kerfið verður lagt niður. Spurningin er hins
vegar þá hvað kemur í staðinn? Hukou hefur verið verulega gagnlegt fyrir flokkinn til þess að
stjórna þegnum sínum og er þar með erfitt að ímynda sér að CCP (kínverski
kommúnistaflokkurinn) muni einfaldlega gefa eftir vald sitt til þess að stjórna því hvar fólk
búi.
Auðólfur Már Gunnarsson
49