Póllinn - May 2023, Page 65
Það er afar ólíklegt að þessi staða komi upp, það hefur gerst allnokkrum sinnum að það muni
litlu í kjörmannaráðinu og réðust þá úrslitin á einu fylki þar sem mjótt var á munum. Það
hefur einu sinni gerst að enginn frambjóðandi fái meirihluta kjörmanna en það var árið 1824
þegar John Quincy Adams var kjörinn forseti.
Þetta fyrirkomulag hefur gert það að verkum að forsetakosningar eru nánast
undantekningarlaust alfarið keppni milli tveggja frambjóðenda, á fyrstu árum lýðveldisins
voru Demókratíski Repúblikanaflokkurinn og Sambandssinnaflokkurinn þeir flokkar sem
öttu kappi um forsetaembættið, síðar tóku Demókrataflokkurinn og Viggar við.
Demókrataflokkurinn er enn í dag annar af stærstu flokkum Bandaríkjanna en Viggar
lognuðust út af með tímanum og tók Repúblikanaflokkurinn stall þeirra í kerfinu.
Sjaldséð er að frambjóðandi utan stóru flokkanna tveggja nái miklu fylgi í kosningum en þó
eru nokkur dæmi um það. Theodore Roosevelt bauð sig fram undir merkjum
Framfaraflokksins í kosningunum 1912 eftir ósætti við eftirmann sinn og fyrrum undirmann
William Howard Taft.
Nýlegasta dæmið um sterkan þriðja frambjóðanda var þegar milljarðamæringurinn Ross
Perot vann 18.9 prósent atkvæða á landsvísu í forsetakosningunum 1992 þegar Bill Clinton
vann sigur á George H. W. Bush sitjandi forseta. Erfitt er að fullyrða í dag hvort Ross Perot
hefði gert út um vonir Bush um endurkjör. Perot var stuðningsmaður Ronald Reagan alla
hans forsetatíð og studdi Bush í kosningunum 1988. Snörp efnahagslægð gekk yfir
Bandaríkin í upphafi tíunda áratugarins og varð það til þess að Ross Perot fór að gagnrýna
efnahagsstefnu Bush harðlega, um tíma mældist Perot efstur í könnunum en ákvað að draga
framboð sitt til baka, í september sama ár hætti Perot við að hætta við framboð sitt og tók
þátt í forsetakappræðunum þar sem hann stóð sig með prýði. Í kosningunum fékk hann
síðan 18.9 prósent atkvæða á landsvísu en engan kjörmann. Margir telja að hann hefði kostað
George H.W Bush sigurinn 1992 en samkvæmt áreiðanlegum gögnum þá tók hann álíka
mikið fylgi frá Bush og Clinton.
Björn Gústav Jónsson
nær meirihluta
63