Gátt - 2010, Blaðsíða 68

Gátt - 2010, Blaðsíða 68
68 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0 L Í F I Ð M E Ð L E S b L I N d U V I Ð T A L V I Ð H E L g A I N g I M A R S S o N N E M A N d A Í F A R S K ó L A N o R Ð U R L A N d S V E S T R A gUÐNý jóHANNESdóTTIR Helgi tekur á móti blaðamanni á fallegu heimili sínu við Eskihlíð á Sauðárkróki. Við hittumst seinni part á sunnudegi og er Helgi nýkominn frá því að sækja hross yfir í Hjaltadal. Ég finn að Helgi er örlítið kvíðinn fyrir viðtalinu og segi hug- hreystandi að ég hafi enn sem komið er ekki misst viðmæl- anda. Við hlæjum bæði en eftir því sem líður á viðtalið geri ég mér grein fyrir ástæðum kvíða Helga, sem hugsar með hryllingi til skólagöngu sinnar. – Hún var bara martröð, það eru engin önnur orð yfir hana. Allt lesefni lá illa fyrir mér og í framhaldinu átti ég í erfiðleikum með allt nám. Ég hafði góða kennara inn á milli en síðan kom alltaf nýr kennari á hverju hausti og það var eins og upplýsingar um mig gengju aldrei á milli kennara og ég var alltaf kominn aftur á byrjunarreit. Ég var látinn lesa upp fyrir framan allan bekkinn sem var náttúrulega algjör martröð fyrir mig. Haust eftir haust var ég settur í þessar aðstæður sem í framhaldinu buðu upp á það einelti sem ég varð fyrir, rifjar Helgi upp. Sjálfur segist hann ekki hafa átt neina vini úr sínum árgangi og að hann hafi ekki haft áhuga á að fara á bekkjar- mót. Svo djúpt ristir lífsreynsla hans úr skóla, öllum þessum árum síðar. Það mætti kannski telja að viðmælandi minn væri kominn hátt á sjötugsaldur en svo er ekki. Helgi er ekki nema 38 ára gamall. Var aldrei boðið upp á neina greiningu? – Nei, ekki hér. Mágkona mömmu sem þá var kennari við Melaskóla kom henni í samband við sérkennara þegar ég var níu ára gamall. Við mamma fórum suður til Reykjavíkur í nokkra daga en sú ferð var algjörlega að frumkvæði mömmu. Ég var látinn taka próf þar sem ég skoraði lágt á sumum sviðum en á öðrum skoraði ég á við 14 ára ungling. Greiningin sem ég fékk hét Guðný Jóhannesdóttir Helgi Ingimarsson á Sauðárkróki hætti námi um áramót veturinn sem hann var í níunda bekk (nú tíundi bekkur), en hann hafði í gegnum alla sína skólagöngu barist við lesblindu án þess að fá hana nokkurn tímann viðurkennda. Hann upplifði sig alltaf sem bæði latan og illa gefinn í skólanum. Skólastjórinn spurði hvort hann ætlaði alla tíð að vera blettur á þjóð­ félaginu. Það var ekki fyrr en fyrir þremur árum að Helgi fékk uppreisn æru, er eiginkona hans skráði hann í lesblindugreiningu hjá Farskóla Norðurlands vestra. Viðtalið tók Guðný fyrir fréttablaðið Feyki, 30. september 2010. ekki lesblinda á þeim tíma en mamma fékk engu að síður plagg þess efnis að ég ætti í örðugleikum með lestur. Mamma fór með plaggið til skólastjórans en þar virðist það einungis hafa endað ofan í skúffu því haustið eftir byrjaði allt á sama veg. Ég var látinn lesa upp í tíma og kom algjörlega niður- brotinn heim. Mamma hafði þá samband við kennarann minn sem hafði aldrei séð plaggið. Þannig gekk þetta ár eftir ár að ég var pikkaður upp og gerður að fífli fyrir framan alla, aldrei var ég beðinn afsökunar heldur var mér látið líða eins og ég væri bæði latur og heimskur. Síðan var farið að taka mig út úr tímum og þá hófst söngur hjá samnemendunum sem fannst ósanngjarnt að ég færi úr tíma en ekki þeir. Ég einangraði mig því félagslega og leið mjög illa. Þegar ég hugsa til baka til skólagöngu minnar fæ ég einfaldlega hroll, segir Helgi. Æ T L A R Þ ú A Ð V E R A b L E T T U R á Þ j ó Ð F é L A g I N U ? Fermingarárið sitt fór Helgi að vinna hjá útgerðinni og vann hann þar tvö sumur. Haustið sem hann fór í níunda bekk vann hann með skólanum og um áramót ákvað hann að fara ekki aftur í skólann. – Öfugt við skólann leið mér vel í vinnunni. Þar var ég alls ekki útundan félagslega jafnvel þó vinnufélag- arnir væru allir eldri en ég. Ég fór að skrópa í skólann enda langaði mig ekki að vera þar, ég var farinn að sækja í að láta reka mig út úr tímum. Í eitt skipti sem ég hafði verið rekinn út tilkynnti ég skólastjóranum að ég væri hættur. Þá horfði hann á mig og sagði; – Ætlar þú að vera blettur á þjóð- félaginu? Þetta voru stór orð við ungling og lengi vel þorði ég ekki að segja mömmu hvað hann hefði sagt við mig. Ég hætti í skólanum en orð skólastjórans sátu í mér og gera enn. Við vorum tveir sem hættum í skólanum þennan vetur og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Gátt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.