Gátt - 2010, Qupperneq 71
71
A F S j ó N A R H ó L I
g á T T – á R S R I T – 2 0 1 0
A Ð S j á L j ó S I Ð Í M Y R K R I N U
Árið 2010 er tileinkað baráttu við fátækt og félagslega einangrun í Evrópu. Þjóðirnar 27 í Evrópusambandinu, auk
Íslendinga og Norðmanna ætla að takast á við fátæktina á ýmsan hátt. Á Íslandi var meðal annars hrint í fram
kvæmd sérstöku átaki til þess að veita ungu atvinnulausu fólki fleiri og fjölbreyttari tilboð um vinnu, menntun
eða annars konar virkni.
SIgRúN KRISTÍN MAgNúSdóTTIR
Atvinnuleysið á Íslandi hefur bitnað harðast á ungu fólki
undir 25 ára aldri. Um það bil 2.700 einstaklingar á aldr-
inum 16–24 ára voru á vordögum 2010 án atvinnu. Reynsla
annarra þjóða, meðal annars Finna, frá tíunda áratug síðustu
aldar hefur sýnt fram á að afar brýnt er að koma í veg fyrir
að ungt fólk verði utan gátta, afli sér hvorki menntunar né
sæki vinnu. Gerist það, mun atvinnuleysið hafa langvarandi
áhrif á líf þeirra og starfsframa. Til þess að koma í veg fyrir
að slíkt hendi þennan fjölmenna hóp á Íslandi setti félags- og
tryggingamálaráðuneytið fram markmið um að enginn verði
án atvinnu lengur en í þrjá mánuði, án þess að fá tilboð um
vinnu eða annars konar virkni. Markmiðinu skyldi náð fyrir
þennan aldurshóp fyrir 1. apríl 2010. Vinnumálastofnun var
falið að annast framkvæmd verkefnisins samkvæmt mark-
miðum þess. Stofnunin hefur unnið að verkefninu í samstarfi
við fagfélög, fyrirtæki, frjáls félagasamtök, skóla og sveitar-
félög. Nánari lýsing á átakinu er annars staðar í Gátt, í grein
Hrafnhildar Tómasdóttur sem ber sama heiti og átakið, Ungt
fólk til athafna.
T Æ K I F Æ R I N o g S A M S T A R F S -
A Ð I L A R
Strax á vordögum voru tilboðin ótal mörg og svo fjölbreytt að
auðvelt átti að vera að finna eitthvað sem hentaði hverjum
og einum. Hér má nefna að 40 einstaklingar hófu nám við
Fjölbrautarskólann í Breiðholti, þar sem boðið er upp á fjölda
námsleiða á sviði lista og starfsnáms. Sex hópar hafa lokið
námskeiðinu Vítamín, sem Hitt húsið stendur fyrir, til þess að
styrkja sjálfstraustið. 80 manns voru skráðir á vinnuvélanám-
skeið. 30 manns skráðu sig á námskeið í framreiðslu og bar-
þjónustu við Hótel- og matvælaskólann í Menntaskólanum
í Kópavogi. Þá hefur einnig verið mikill áhugi á starfi sjálf-
boðaliða fyrir Rauða krossinn, Íþróttasamband Íslands og
Ólympíunefndina. Í þessari grein er ætlunin að fjalla nánar
um tilboð sem Mímir-símenntun bauð upp á. Þar á bæ voru
valin sérstök verkefni í tengslum við átakið. Námsleiðirnar
voru lagaðar að þörfum markhópsins, ungu fólki undir 25
ára aldri, og hafa þær reynst vinsælar. Þeirra vinsælust var
námsleiðin Færni í ferðaþjónustu.
E R T Þ ú á A L d R I N U M 1 6 – 2 4 á R A
o g H E F U R á U N N I Ð Þ é R R é T T T I L
A T V I N N U L E Y S I S b ó T A ?
Þetta var spurningin sem unga fólkið þurfti að svara. Meðal
þeirra sem svöruðu henni játandi voru Helene van Doom og
Sverrir Örn Einarsson. Þau voru meðal þeirra sem völdu að
sækja námsleiðina Færni í ferðaþjónustu. Þeim var, eins og
mörgum öðrum atvinnulausum, boðið á kynningarfund þar
sem úrræðin voru kynnt. Sverrir segir ástæðu sína fyrir að velja
einmitt þessa leið vera þá að ferðaþjónusta sé atvinnugrein
í örum vexti um allan heim og það skapi tækifæri til starfa.
Sverrir lauk stúdentsprófi fyrir rúmu ári síðan en hann er ekki
búinn að ákveða hvað hann langar til að leggja fyrir sig í fram-
tíðinni. Hann var í skemmtilegu starfi en eftir að kreppan skall
á var honum sagt upp í kjölfar hagræðingar. Hann vildi nota
tækifærið til þess að afla sér nýrrar færni og þáði því boðið um
að vera með í Færni í ferðaþjónustu með þökkum.
– Ég hef áhuga á að ferðast og kynnast framandi menn-
ingu. Á ferðum mínum hefur mér orðið ljóst hve mikilvægt það
er að samræmi sé í þjónustunni.
– Mér finnst afskaplega gefandi að vinna með fólki og
fyrir fólk, segir Helene. Hún er líka í leit að atvinnu. Auk þess
að taka þátt í námsleiðinni Færni í ferðaþjónustu er hún í
fjarnámi til þess að ljúka stúdentsprófi. Hún upplýsir að
atvinnuleitendum sé heimilt að taka allt að 9 einingum á önn
í framhaldsskóla án þess að bæturnar skerðist. Þeir verða
sjálfir að greiða fyrir kennsluna en geta sótt um að fá endur-
greitt frá starfsmenntasjóði.
– Það er skemmtilegt að taka þátt námskeiðinu, kennsl-
unni er öðruvísi hagað en maður á að venjast í skólakerfinu.