Gátt - 2013, Page 10

Gátt - 2013, Page 10
10 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 kerfi var í mörgum greinum ófullburða eða varla til (nema í iðngreinum) og þar sem það var við lýði var það stundum staðnað og virkaði ekki vel. Þar við bættist að sumar starfs- greinar endurnýjuðu starfshætti sína hægt; aðrar lokuðu sig af þannig að lærlingar komust ekki að. Margar starfsgreinar fela í sér sífellt meiri sérhæfingu þannig að nám á einum vinnustað gefur ekki þá breidd sem almennur fagundirbúningur krefst. Skólarnir hafa þar að auki með höndum það sérhæfða verkefni, með tilheyrandi fagfólki og aðstöðu, að undirbúa nemendur undir tilteknar starfsgreinar og gera það iðulega mjög faglega. Ofan á þetta bætist sú staðreynd að inn í margar starfsgreinar fléttast æ fleiri tæknileg eða bókleg viðfangsefni sem krefjast annars konar undirbúnings en starfsvettvangurinn býður upp á. Þannig virðist þetta vera eðlileg og skynsamleg þróun. En tilefni þess að nefna þetta hér er samt hin hlið málsins, sem er ókostur þess að slíta nám til starfs úr tengslum við vinnustaðinn og einnig sá vandi sem skapast ef gagnrýna má skólana á svipaðan hátt og atvinnuvettvanginn. Hversu gagnlegur sem tiltekinn tæknilegur og bóklegur grunnur annars er, þykir starfsþróun á vettvangi bráðnauðsynleg, ekki aðeins í upphafi starfs heldur einnig alla tíð eftir það. Það er því næsta verkefni þeirra sem vilja lifandi samfélag og atvinnulíf að huga að þróun (fullorðins)fræðslu í atvinnu- lífinu sjálfu, í vinnunni, og slík þróun verði hluti af starfinu en ekki aðeins aðdragandi að því (þ.e. nám áður en starfið hefst). Þetta þýðir að vinnustaðurinn ásamt starfsfólkinu verður aftur að axla verulegan hluta ábyrgðar á sífelldri menntun eða starfsþróun. Hinn þráður skólasögunnar sem ég tek hér upp snýst um það sem skóli metur hjá nemanda sínum. Það er faglegt og skynsamlegt af skóla að taka til mats einmitt þau verkefni sem hann hefur sjálfur skipulagt og lagt fyrir; hann prófar eða metur sitt efni. Viss vandi hefur skapast af því að hann hefur ekki talið sig hafa umboð eða forsendur til að meta neitt annað, þar á meðal ekki þekkingu sem kemur annars staðar að (þ.e. utan skólanna). Fyrir margt löngu þótti algjör- lega nauðsynlegt að nemandi í hvaða starfsnámi sem var hefði reynslu af starfsvettvangi áður en hann hæfi námið. Nú er krafan um þetta að mestu horfin þótt það þyki samt góður kostur að nemandi þekki eitthvað til. En umskiptin hafa orðið svo mikil að það kunna að vera áhöld um hvort telja eigi nokkuð það sem nemandi kann að hafa í farteski sínu sem einhvers virði hafi það ekki verið unnið á forsendum skólans. Að vísu held ég að margir sem starfa í skóla myndu almennt leggja mikið upp úr góðri starfsreynslu, þótt erfiðara sé að meta hana formlega inn í skólastarfið. Nú verður áhugavert að sjá hvort sú uppreisn æru sem starfsþekking fær fyrir tilstilli raunfærnimatsins dugi til að breyta verulega stöðu slíkrar þekkingar innan skólakerfisins. En einnig innan atvinnulífsins, þar verður að meta hana líka. Í dagblöðum marga undanfarna áratugi hefur oft mátt finna auglýsingar þar sem krafan var skýr: „Eingöngu vanur maður kemur til greina“, en síðan hefur fjölgað smám saman kröfum um almenna menntun án þess að reynsla komi endilega við sögu. Fyrst var nefnt að „verslunar- (eða gagnfræða-) eða stúdentspróf [væri] æskilegt“, síðan „stúdentspróf æskilegt“ og síðar hefur „háskólamenntun æskileg“ unnið á. Fróðlegt verður að fylgjast með því hvort raunfærnimat hefur einhver áhrif á viðhorf til bakgrunns umsækjenda um störf með því að gefa starfsreynslu formlegri og þar með sterkari stöðu, ekki aðeins í skólakerfinu heldur einnig í atvinnulífinu. F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U - L Í F S I N S O G S Í M E N N T U N A R M I Ð - S T Ö Ð V A R Skipulögð fræðsla utan skólakerfisins var talsverð en samt ósamhæfð seinni hluta 20. aldar. Ríkisútvarpið stóð fyrir tungumálakennslu næstum frá stofnun 1930; Bréfaskóli var starfræktur og Námsflokkar frá 1940, fyrst í Reykjavík en síðar víðar (starfræktir á yfir 20 stöðum á landinu um 1980) og farskólar voru stofnsettir í tengslum við nokkra fram- haldsskóla upp úr 1980, en voru samt utan skólakerfisins. Öldungadeildir voru líka starfræktar í allmörgum framhalds- skólum en þær voru innan skólakerfisins. Utan skólakerfisins en tengdar því voru endurmenntunarstofnanir háskóla, ýmsir sérstakir skólar sem ekki veittu formlegar prófgráður en samt mikilvæga starfsmenntun og síðan vitaskuld allar fræðslu-, starfsþróunar-, mannauðs- eða símenntunardeildir fyrir- tækja. Farskólar voru stofnaðir í tengslum við framhaldsskóla á árunum upp úr 1988 (fyrst á Austurlandi það ár en síðan fylgdu margir í kjölfarið). Þeir voru á gráu svæði og eiginlega fyrir utan skólakerfið. Símenntunarmiðstöðvar voru síðan stofnaðar áratug síðar, þær fyrstu rétt fyrir aldamótin, sums staðar beinlínis á grundvelli farskólanna. Þær áttu sér sjálf- stæða tilvist utan skólakerfisins, en segja má að með lögum um framhaldsfræðslu séu þær nú komnar inn í menntakerfið. Símenntunarmiðstöð Suðurnesja var sú fyrsta, stofnuð 1997. Þeim fjölgar enn og eru fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.