Gátt - 2013, Síða 12
12
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
má spyrja hverra lausna sé skynsamlegt að grípa til varðandi
eldri konurnar, til dæmis þær sem eru 45–65 ára, í þeirri við-
leitni að hækka hlutfall þeirra sem ljúka námi. Það er sérstakt
viðfangsefni. Vandinn er síðan tvíþættur hvað varðar yngri
konurnar og sá sami og nefndur var fyrir karla. Annars vegar
þarf að lækka 20% gólfið almennt, en athygli vekur að það
skuli vera í nánast sama hlutfalli hjá körlum og konum. Þrátt
fyrir að námsvalið á framhaldsskólastigi sé mjög ólíkt þá er
niðurstaðan mjög lík. En konurnar eru komnar miklu nær
þessu lágmarki eða gólfi þegar við 25 ára aldurinn en karlar.
En hver er undirliggjandi þróun, meðal annars fyrir til-
stilli þeirra kerfa sem vinna nú samstillt að því að bæta
stöðuna? Þar sem kappkostað er að láta kerfin vinna saman,
meðal annars með því að byggja brýr á milli þeirra, er ekki
auðvelt að svara afdráttarlaust hvaða kerfi ræður ferðinni
þegar ástandið batnar. Mynd 4 er fengin með því að skoða
skólasókn einstakra aldurshópa karla og kvenna yfir rúman
áratug, þ.e. frá 1999–2011 og mæla meðalaukningu í stærð
hans. Til að gera langa sögu stutta er aukningin mest rétt
rúmlega 1% á ári hjá 18 ára piltum, sem er þá í heild ríflega
10% á þessu tímabili sem um ræðir, en á bilinu 0,7 til 1%
hjá stúlkum, að undanskildum þeim yngstu – en skólasókn
þeirra er þegar nálægt 100% þannig að sú tala getur ekki
hækkað mikið. Þannig eru bæði kynin talsvert að sækja í sig
veðrið hvað varðar almenna skólasókn. Það sama á við um
hópa eldra fólks þótt vöxturinn sé minni og ekki sýndur á
myndinni. Þetta eru góðar fréttir.
Á hinn bóginn kemur svolítið önnur mynd úr gögnum
vinnumarkaðskönnunar Hagstofunnar en þar er ekki að sjá
að fjöldi þeirra sem ljúka námi aukist sem þessu nemur.
Vandinn skv. þessum gögnum virðist hjá báðum kynjum vera
sá að fá fólk til að ljúka námi. Þetta kemur fram á mynd
5, sem er erfið í túlkun en þar virðist koma fram bakslag í
námslokin hjá yngsta hópi kvenna á allra síðustu árum, þrátt
fyrir að skólasóknin sé að aukast, eins og sjá má á mynd 4.
Á hinn bóginn virðast nemendur í elsta hópnum ljúka námi
á þeim tíma sem búist var við. Konurnar eru nokkurn veginn
komnar að námslokum fyrir þrítugt, en karlmennirnir draga
það lengur. Ef myndir 4 og 5 eru skoðaðar saman virðist
almenn skólasókn vera að aukast en það er samt eins og fólk
ljúki ekki endanlega námi sínu. Gögnin sýna annars vegar að
sókn í nám eykst en hins vegar að fjöldi nemenda sem lýkur
námi aukist ekki, jafnvel minnki. Þetta þarf að kanna nánar.
H V A Ð V E R Ð U R N Æ S T A Á R A T U G -
I N N E Ð A Á R A T U G I N A ?
Skólakerfið hefur ekki breyst mikið á undanförnum árum, en
samt meira en sýnist. Tvenn nýleg lög virðast skipta mestu
máli fyrir það efni sem hér er rætt, þ.e. lögin um framhalds-
skóla frá 2008 og lögin um framhaldsfræðslu frá 2010. Inn
í þetta fléttast svo þróun helstu stofnana þessara tveggja
kerfa sem nú spila að einhverju leyti saman og takast á við
sama viðfangsefnið en á ólíkum forsendum; viðfangsefnið
er að tryggja sem flestum þjóðfélagsþegnum fullgilt próf
úr framhaldsskóla sem veitir rétt til starfa eða áframhald-
andi náms; tryggir jafnframt ákveðið jafnræði í menntun í
samfélaginu og hefur ekki aðeins það markmið að tryggja
lágmarksmenntun allra heldur að skapa grundvöll símennt-
unar og starfsþróunar. Það er því að áhugavert að reyna að
bera saman þessi tvö kerfi.
Í framhaldsskólakerfinu eru tvö stofnanaleg stjórnunar-
lög, þ.e. ráðuneytið og framhaldsskólarnir sjálfir og nokkuð
ljóst hvað heyrir til friðar hvors, þótt lögin frá 2008 hafi aukið
sjálfstæði skólanna; hve mikið sjálfstæðið verður kemur
smám saman í ljós. Að vísu má segja að sumar starfsein-
ingar framhaldsskóla með mjög fjölbreyttar námsbrautir séu
nokkuð sjálfstæðar en það er látið liggja á milli hluta hér.
Í framhaldsfræðslukerfinu eru lögin þrjú, þ.e. símennt-
unarmiðstöðvarnar, Fræðslusjóður með tilstyrk Fræðslumið-
stöðvarinnar og loks ráðuneytið sem fer með yfirstjórn mála.
Jafnframt má hafa hugfast að símenntunarmiðstöðvarnar
sinna margar verkefnum sem eru utan vébanda Fræðslusjóðs
Mynd 3. Hlutfall fólks sem hefur ekki lokið framhaldsskólanámi, stúdents-
prófi, sveinsprófi eða hliðstæðri menntun eftir aldri og kyni.
0
10
20
30
40
50
60
20–24 ára
25–29 ára
30–34 ára
35–39 ára
40–44 ára
45–49 ára
50–54 ára
55–59 ára
60–64 ára
H
lu
fa
ll
%
a
f
al
d
u
rs
h
ó
p
i
Konur Karlar
Byggt á gögnum Hagstofu; Vinnumarkaðskönnun, okt. 2013