Gátt - 2013, Side 16
16
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
(stundum nefnt fagháskólastig). Með þessari röðun í þrep
eru dregnar fram mismunandi kröfur um hæfni nemenda að
loknu námi án tillits til þess hvort námið er bóknám, listnám
eða starfsnám. Þrepin gefa vísbendingu um viðfangsefni og
námskröfur auk þess að vera upplýsandi fyrir nemendur,
atvinnulíf og næsta skólastig sem tekur við nemendum að
loknu námi. Námslok á fjórða þrepi einkennast af aukinni
sérhæfingu í tengslum við stjórnun, leiðsögn, þróun eða
nýsköpun. Þrep fimm, sex og sjö ná yfir háskólastigið.
Allt nám að loknum grunnskóla er skilgreint í náms-
skrám sem hæfni er nemandinn öðlast og námsgreinar og
námsbrautir raðast á mismunandi hæfniþrep. Hæfniþrepin
skapa nýjar forsendur til að tryggja samfellu í námi nemenda
á ólíkum skólastigum og í framhaldsfræðslu. Með hæfni-
rammanum er inntakið í náminu metið að jöfnu, hvort sem
það er stundað innan eða utan hins formlega skólakerfis en
það gerir flutning nemenda milli skólastiga og námsleiða
markvissari og greiðari.
Hæfniramminn skapar skilyrði og hvetur til nýsköpunar
og nýrrar hugsunar við uppbyggingu og skipulag náms og
þeirrar færni sem því er ætlað að veita. Hann getur stuðlað
að gagnsæi almennt, gefur einstaklingum möguleika á að
sjá stöðu sína og möguleika til náms. Hann getur einnig
gert vinnu starfsmanna innan menntakerfisins markvissari
og auðveldað fyrirtækjum að meta og bera saman hæfni
umsækjenda og starfsmanna. Í leiðbeiningum um gerð
námsskráa í framhaldsfræðslu, sem gefin eru út af mennta-
og menningarmálaráðuneytinu, er talað um að hæfniþrepin
eigi að mynda ramma um stigvaxandi kröfur án tillits til
innihalds. Þar er gert ráð fyrir að nám í framhaldsfræðslu
tengist að jafnaði hæfniþrepum 1–4. Þá er jafnframt lýsing
á viðkomandi hæfniþrepum í reglugerðarígildi Aðalnámskrár
framhaldsskóla frá 2011. Hæfniþrepin tengjast ekki tilteknu
skólastigi, fræðsluaðila eða fræðsluformi heldur gefa þau
vísbendingu um viðfangsefni og námskröfur og er ætlað að
tryggja stíganda í náminu og viðurkenningu óháð því hvar
nám hefur farið fram.2
Raunfærnimatið er afar stór þáttur í heildarsamhenginu.
Brýnt er að formlega skólakerfið samþykki matið til stytt-
ingar á námi. Við innleiðingu hæfnirammans opnast leiðir
að frekara námi fyrir fólk með litla formlega menntun. Enn á
eftir að taka á ýmsum álitamálum í tengslum við menntun í
2 http://www.menntamalaraduneyti.is/media/MRN-pdf/Vidmid-um-gerd-
namskraa-i-framhaldsfraedslu.pdf
atvinnulífinu og vilji er til að nýta hæfnirammann til að auka
hlut raunfærnimats og gera tengingu framhaldsfræðslu við
formlega menntakerfið skýrari.3
Nýleg lög um framhaldsfræðslu, ásamt heildarendur-
skoðun á lagaumhverfi íslensks menntakerfis var ætlað að
styrkja heildstæða stefnu í menntamálum þar sem horft er
á menntakerfið sem eina heild frá leikskóla til háskóla, til
framhaldsfræðslu og til óformlegrar menntunar sem fer fram
utan skólakerfisins. Þar sem markmið laganna er að stuðla
að hærra menntunarstigi þjóðarinnar má spyrja hvort það
vægi sem óformlega skólakerfið fær innan hæfnirammans
sé í samræmi við það.
S A M V I N N A O G S V E I G J A N L E I K I
Framhaldsfræðslu á vettvangi atvinnulífsins hefur vaxið
fiskur um hrygg og er nú margháttuð og umfangsmikil.
Mikilvægt er að huga að heildarmyndinni og að ekki verði
litið á nám í framhaldsskólanum og fullorðinsfræðslunni sem
tvö aðskilin og ósamræmanleg kerfi. Heildarsamtök aðila
vinnumarkaðarins þurfa að koma að innleiðingu rammans
í ljósi þess að niðurstaðan varðandi innleiðingu hér á landi
getur haft mikil áhrif á stöðu og þróun starfsmenntunar og
starfsþjálfunar í landinu til framtíðar.
Ef allir koma að borðinu myndast sameiginleg sátt um
mat á námi og þá um leið almenn viðurkenning á notagildi
hæfnirammans. Aukin samvinna allra hagsmunaaðila er
mikilvæg sérstaklega með tilliti til breiðari notkunar og skil-
greiningar áður en hæfniramminn verður staðfestur. Þar
verði m.a. horft til mats á óformlegu námi; farið verði yfir
hvort fjölga eigi þrepunum og skilgreina betur styttri náms-
brautir í framhaldsfræðslu með það í huga að brúa bil milli
skólastiga. Þá verði einnig skoðað hvernig grunn- og fram-
haldsnám (fagháskólastig) á sviði verk- og tæknigreina að
loknum framhaldsskóla eigi að raðast innan viðmiðunar-
rammans.
Það er mjög mikilvægt að innleiðing íslenska hæfni-
rammans muni leiða til þess að verk- og tæknimenntun og
starfsnám almennt öðlist þann sess sem því ber. Aukinn
sveigjanleiki eflir samkeppnishæfni vinnuafls og markmið
hæfnirammans er ekki að leggja áherslu á lengd náms eða
tegund fræðslustofnunar heldur á það hvað einstaklingurinn
3 Sbr. útdrátt úr skýrslu „Referencing the Icelandic National Qualification
Framework til the European Qualifications Framework for Lifelong
Learning“.