Gátt - 2013, Page 17
17
Þ R Ó U N F R A M H A L D S F R Æ Ð S L U N N A R
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
kann, veit og getur. Hæfniramminn á að endurspegla allt
nám og skapa þarf grundvöll til að meta starfsnám og bók-
nám sem jafngilt nám.
Nú er gert ráð fyrir að hæfniramminn verði að fullu inn-
leiddur árið 2015. Ljóst er að ef sú tímasetning á að halda
reynir mikið á samráð og samstarf þeirra sem málið varðar
til að yfirfærsla samkvæmt nýjum lögum geti gengið vel og
áfallalaust fyrir sig. Það kallar á að undirbúningur varðandi
verklag verði vandaður um leið og byggt verði á þeirri reynslu
sem fengist hefur m.a. hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og
símenntunarmiðstöðvum.
Mikilvægt er að breyta viðhorfi fólks á mati á námi og
þarf atvinnulífið að koma meira að þeirri mótun. Ramminn
gefur okkur tækifæri til samtals milli atvinnulífs og skóla
með það í huga að meta störf og starfsreynslu á þrep með
raunfærnimati. Samræða og gott samhengi milli óformlega
og formlega menntakerfisins er forsenda þess að byggja brýr
milli þessara tveggja kerfa og miðað við markmið rammans
um að gera nám gegnsærra þarf að huga betur að óform-
lega kerfinu. Þá þarf einnig að fara fram samræða milli hags-
munaaðila sem miðar að því að útfæra með hvaða hætti
meta á menntun á sviði verk- og tæknigreina á efri þrepum
hæfnirammans þannig að þrepin nái ekki aðeins yfir hefð-
bundið akademískt nám á háskólastigi.
Innleiðing á hæfniþrepum kallar á nýja nálgun og
breytta hugsun. Samtök launafólks þurfa að líta í eigin barm
og skoða hvernig má virkja atvinnulífið og aðkomu sína að
innleiðingu hæfnirammans. Það eru hagsmunir allra að góð
samstaða náist um réttar leiðir sem á endanum munu leiða
til hagsbóta fyrir menntakerfið og þjóðfélagið í heild sinni.
H E I M I L D I R :
CEDEFOP (2010). Skills supply and demand in Europe: Medium-term forecast
up to 2020. Luxembourg: office for Official Publications of the European
Communities. Sótt 16. september 2013 af http://www.cedefop.europa.eu/
EN/Files/3052_en.pdf
Mennta-og menningarmálaráðuneytið 2013. Viðmið um gerð námskráa
í framhaldsfræðslu. Sótt 16. september 2013 af http://www.mennta-
malaraduneyti.is/media/MRN-pdf/Vidmid-um-gerd-namskraa-i-fram-
haldsfraedslu.pdf
Samanburður hæfniramma um íslenskt menntakerfi og hæfniramma Evrópu-
sambandsins. Útdráttur úr skýrslu „Referencing the Icelandic National
Qualification Framework til the European Qualifications Framework for
Lifelong Learning“. Sótt 16. september 2013 af. http://www.mennta-
malaraduneyti.is/media/MRN-pdf/Utdrattur_islensk-haefnividmid-og-
haefnirammi-ESB_v2_ogk.pdf
U M H Ö F U N D I N N
Eyrún Valsdóttir er deildarstjóri Fræðsludeildar ASÍ og
skólastjóri Félagsmálaskólans. Hún er með B.ed.-gráðu frá
Kennaraháskóla Íslands, M.Paed.-gráðu frá Háskóla Íslands
og MA-gráðu í náms- og starfsráðgjöf frá sama skóla. Hún
starfaði áður sem náms- og starfsráðgjafi í Tækniháskóla
Íslands (THÍ) og eftir sameiningu THÍ og HR sem forstöðu-
maður markaðs- og kynningarsviðs. Þar áður vann hún í 17
ár hjá VISA (nú Valitor) samhliða námi.
A B S T R A C T
The needs and demands of the market place are chang-
ing, competition between countries for knowledge, skills
and innovation is becoming keener, both at work and in
education. At the same time wage-earners make increased
demands for training and advancement. The challenges
which systematically confront us are constantly growing and
it is vital to work purposefully towards a prosperous and
thriving society of the future - a society which guarantees
a good standard of living and suitable work opportunities
for all.
In cooperation with strategic planners in educational
matters at all stages of learning and at educational estab-
lishments of all levels, education professionals in Iceland
have acquired valuable knowledge and experience in the
development and practice of education. The highly effective
developmental work now being carried out within the Euro-
pean Union, introducing competence frameworks with the
objective of promoting mutual recognition of qualifications
between countries and possibilities for individuals to pursue
recognised educational qualifications abroad offers many
opportunities for the future.