Gátt - 2013, Side 19
19
Þ R Ó U N F R A M H A L D S F R Æ Ð S L U N N A R
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
Þarna erum við einmitt að nálgast punkt sem vert er að velta
aðeins fyrir sér: Hvernig getum við náð að formfesta svona
námsleið?
Hvernig getum við vottað þá þekkingar- og færniöflun
sem þegar hefur átt sér stað utan menntakerfisins og hvernig
náum við utan um þessa sérhæfingu? Þörfin fyrir sérhæfingu
eykst en umfang vinnumarkaðarins kallar aðeins á að örfáir
einstaklingar bætist við á ári hverju. Varla eru forsendur fyrir
því að þróuð sé heildstæð námsleið fyrir svo fáa einstaklinga?
V I Ð M I Ð A R A M M I / G E R Ð F Æ R N I -
V I Ð M I Ð A
Með reynslu FTR af þeim menntaverkefnum sem félagið
hefur tekið þátt í hefur alltaf orðið skýrara og skýrara í okkar
huga að í raun séu öll verkfærin til nú þegar til að smíða
lausn sem gagnast gæti þessum stóra hópi sem leitast var
við að teikna upp hér að framan.
Með því að raða saman þeim verkfærum og ferlum
sem þróuð hafa verið á undanförnum árum þá er hægt að
staðfesta þekkingu margra sem nú þegar sinna þessum
sérhæfðu störfum og þannig saxa aðeins á „ómenntaða“
hópinn. Þannig hækkum við menntunarstigið án þess að slá
af kröfum. Í framhaldi er síðan hægt að teikna upp oft óhefð-
bundnar og samsettar náms- eða matsleiðir fyrir þá sem
hyggja á áframhaldandi hæfniuppbyggingu.
Samnefnarinn felst í fyrsta skrefinu: Hvaða þekking og
hæfni þarf að vera til staðar til að sinna viðkomandi starfi?
Hvaða þættir eru sameiginlegir skyldum störfum og hvað
felst í sérhæfingu? Með gerð færniviðmiða, eða viðmiða-
ramma sem afmarkar þann hóp sem fjallað er um hverju
sinni, er hægt að draga þetta fram.
Í þeim verkefnum sem við höfum komið að hefur þessi
vinna alltaf verið unnin í samstarfi við atvinnulífið. Með
öðrum orðum hafa vinnuveitendur stutt verkefnið og sterkir
fagaðilar tekið fullan þátt í að skilgreina starfið og starfa-
viðmið. Með þessu hefur tenging við atvinnulífið verið styrkt
og innsýn í verkefnið aukist til muna. Meðfram gerð starfa-
viðmiða fæst einnig mynd af stærð viðkomandi hóps og
umfangi þarfarinnar fyrir endurnýjun í hópnum. Gögnin sem
þessi vinna skilar eru svo aftur ómetanleg fyrir þróun náms-
eða matsleiða fyrir hópinn.
O G S V O T I L F R A M T Í Ð A R …
Okkur hjá FTR hefur fundist að þegar þessum áfanga er lokið
þá ætti að bjóðast val um hvert haldið verður. Þarna er búið
að afmarka hóp, ljóst er hve fjölmennur hann er, hve marga
þurfi til viðbótar á ári og hvaða kröfur eru gerðar fyrir fagið.
Ekki er víst að aðeins ein leið verði fyrir valinu, framhaldið
gæti falist í því að velja saman fleiri en eina. Hér á eftir eru
nokkur dæmi um leiðir sem koma til greina:
• Þróa raunfærnimat fyrir hópinn, hvort sem það raun-
færnimat er byggt á viðmiðum fyrirliggjandi námskrár
eða á starfaviðmiðum atvinnulífsins.
• Þróa námskrá fyrir viðkomandi fag og í framhaldi af
því að semja við fræðslustofnanir um að bjóða upp á
námið.
• Ef um lítinn en mjög sérhæfðan hóp er að ræða væri
unnt að þróa starfsnámsleið og/eða einhvers konar
mentor yrði skipaður til að fylgja eftir framvindu í sjálfs-
námi og þjálfun á vinnustað.
Sjá má fyrir sér eina leið enn en hún yrði væntanlega umfangs-
mesta leiðin. Hún gæti verið vel til þess fallin að hægt sé að
bjóða upp á óhefðbundna menntunarleið með mikilli sérhæf-
ingu án þess að sérstök námsbraut sé í raun þróuð.
Með því að fylgja síðastnefndu leiðinni væru færni-
viðmiðin nýtt til að búa til námskrá. Þar yrði skeytt saman
hlutum úr öðru námi auk sérhæfingar sem þörf er fyrir. Loka-
mat fer svo fram á svipaðan hátt og lokaverkefni í námi á
háskólastigi, þ.e. einstaklingurinn vinnur að rannsókn og fær
þjálfun eða sérhæft nám utan skólakerfisins. Slík verkefni eru
oft unnin í samstarfi við atvinnulífið en umsjónaraðili innan
skólakerfisins hefur yfirumsjón með framþróun þess.
Ef við hugsum okkur tæknifólkið þá er mjög mikið af
þekkingu til innan menntakerfisins sem gæti nýst þeim hópi.
Oftar en ekki hefur komið í ljós að orðfærið er að einhverju
leyti ekki það sama hjá þeim sem ekki hafa farið hefðbundnu
menntaleiðina og hinum sem gætu haft margt fram að færa
fyrir viðkomandi fag. Lausnin gæti falist í að leiða rétt fólk
saman. Kerfishönnuður fyrir sjónvarpsstöðvar hefur margt að
sækja í eðlisfræði, tölvunarfræði, rafmagnsfræði, verkfræði,
mikil eftirspurn er eftir jafnt í íslenska kvikmyndageir-
anum, tölvuleikjagerð og í Hollywood en er engu að
síður skráður með grunnskólapróf og einn af þessum
brottföllnu.