Gátt - 2013, Side 28
28
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
Frá árinu 2008 hefur verið boðið upp á námsleiðina Færni í
ferðaþjónustu hjá Mími- símenntun og unnið hefur verið eftir
námsskrám Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Tvær náms-
skrár hafa verið gefnar út, Færni í ferðaþjónustu I sem gerir
ráð fyrir 60 kennslustundum og Færni í ferðaþjónustu II sem
er lýsing á 100 kennslustunda námi. Námsleiðin var gerð
fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu eða þá sem stefna að starfi
í greininni. Um frekari tilurð og gerð námsins má lesa í inn-
gangi námsskránna.1 Hjá Mími er boðið upp á 160 stunda
nám sem byggt er á þessum tveimur námsskrám. Námsleiðin
heitir nú Þjónusta við ferðamenn.
Um það leyti sem námsskrárnar komu út varð hrun
í íslensku efnahagslífi og miklar breytingar áttu sér stað á
íslenskum vinnumarkaði. Áhrifin sem þetta hafði á símennt-
unarstöðvar eins og Mími-símenntun voru einkum þau að
nám sem upprunalega var ætlað fólki í virkri atvinnuþátt-
töku þurfti nú að aðlaga fólki í atvinnuleit. Í fyrstu náms-
hópunum sem fóru af stað í Færni í ferðaþjónustu hjá Mími
var ungt fólk í atvinnuleit og námið þurfti almennt að miða
við þarfir þess. Nú er hópurinn sem sækir í þetta nám fjöl-
breyttur og samanstendur af atvinnuleitendum svo og fólki
sem vill skipta um starfsvettvang og sér tækifæri á vettvangi
ferðaþjónustunnar. Markmið einstaklinga innan hópsins eru
1 Sjá t.d. á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins http://frae.is/namsskrar/
faerni-i-ferdathjonustu-i/ og http://frae.is/namsskrar/faerni-i-ferda-
thjonustu-ii/
mismunandi. Sumir hafa hug á að koma á fót eigin fyrirtæki,
aðrir sækjast eftir vinnu í þeirri flóru starfa sem ferðaþjón-
ustan býður upp á en þar má nefna störf á ferðaskrifstofum,
upplýsingastofum, bílaleigum, hótelum, veitingastöðum, auk
starfa á sviði afþreyingar.
Reynslan hjá Mími sýnir að einstaklingar í hópunum
sem sækja þetta nám hafa mismunandi bakgrunn og reynslu
bæði í menntun og starfi, (þjóðerni), tungumálakunnáttu
o.s.frv. og því hefur það reynst áskorun að finna sameigin-
legan flöt til að byggja námið á. Námsskrárnar bjóða upp á
möguleika til aðlögunar mismunandi þarfa og ólíkra hópa.
Í upphafi var lögð mikil áhersla á að kenna almennar
þjónustugreinar og vinnustaðamenningu en í námsskránum
eru margir námsþættir tengdir þessum þáttum. Margar end-
urtekningar eru í lýsingum þessara þátta. Til dæmis er talað
um að kenna um helstu réttindi og skyldur starfsmanna og
atvinnurekenda og samskipti á vinnustað í fjórum mismun-
andi námsþáttum: Vinnustaðurinn, Verkferlar á vinnustað,
Vinnusiðferði og hlutverk starfsmanns, Vinnubrögð og vinnu-
vernd. Lýsingar í þjónustugreinunum eru oft mjög áþekkar
enda eru a.m.k. fimm námsþættir beintengdir þjónustu í
námsleiðinni. Þessar endurtekningar og áþekku lýsingar geta
valdið því að kennslan verður einsleit og kennarar, sem eiga
að byggja kennslu sína á víðri skilgreiningu og vita ekki hvað
kennarinn á undan var að kenna, eru líklegir til að endurtaka
það sem hann gerði ef ekki er búið að þrengja efnið og engin
samvinna hefur átt sér stað.
Endurteknar ábendingar frá nemendum um sömu hlut-
ina urðu til þess að ákveðið var að breyta áherslum í náms-
leiðinni hjá Mími. Bent var á of mikla endurtekningu og skort
á kennslu um sérhæfða þjónustu við ferðamenn. Ljóst var
að of margir kenndu sömu hlutina og það skorti ákveðna
yfirsýn. Auðvitað er gott að hafa kennara sem eru á sérfræð-
ingar á sínu sviði en í framhaldsfræðslu er lítið ráðrúm fyrir
samvinnu kennara eða þróunarvinnu þeirra. Verkefnastjórar
skipuleggja námið og halda utan um það. Þeir eru ekki sér-
fræðingar í ferðaþjónustu og því nauðsynlegt að fagfólkið
(kennararnir) eigi gott samstarf við þá.
Niðurstaðan var að þróa námsleiðina í samstarfi við
Joanna DominiczakÞorbjörg Halldórsdóttir
ÞORBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR OG JOANNA DOMINICZAK
Þ J Ó N U S T A V I Ð F E R Ð A M E N N
Þróun námsle iðar innar Færni í ferðaþjónustu hjá Mími-s ímenntun