Gátt - 2013, Page 33

Gátt - 2013, Page 33
33 Þ R Ó U N F R A M H A L D S F R Æ Ð S L U N N A R G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 F A G L Æ R T S T A R F S F Ó L K Þegar stjórnendur er spurðir um fjölda starfsmanna í eld- húsi sem hafa lokið sveinsprófi kemur í ljós að minnihluti starfsfólksins er með sveinspróf. Í tæplega helmingi tilfella er minnihluti starfsfólks eða ekkert af því með sveinspróf. Fjöldi starfsmanna á vinnustað skiptir þar máli, eftir því sem færri starfsmenn eru á vinnustað virðist að jafnaði lægra hlutfall starfsmanna vera faglært með sveinspróf. Ekki kemur fram marktækur munur eftir tegund vinnustaðar eða staðsetningu vinnustaðar. Þannig virðist menntun starfsmanna ekki háð því á hvers konar vinnustöðum þeir starfa. Þegar litið er til starfsmanna í veitingasal sést mun hærra hlutfall, en í tæp- lega 72% tilfella er minnihluti starfsfólks eða ekkert af því fagfólk með sveinspróf. Þar sem ljóst er að hlutfall ófaglærðra starfsmanna í eldhúsum og veitingasölum er nokkuð hátt er áhugavert að vita hvort stjórnendur séu sáttir við það hlutfall eða vilji hafa það öðruvísi. Tæplega 40% stjórnenda segja að hlut- fall faglærðra og ófaglærðra í eldhúsi sé eins og þeir myndu kjósa á sínum vinnustað. Það virðist því ekki vera áhugi hjá þeim hópi stjórnenda að fjölga faglærðum. Hvort sem þeir telja það óþarft eða vegna þess að þeir telja að það muni kalla á aukinn launakostnað skal ósagt látið. Athyglisvert er þó að næstum því jafn stór hópur segir að hlutfallið sé ekki eins og hann vill, að það séu of margir ófaglærðir. Greinilegt er að þessi hópur hefur áhuga á því að fjölga faglærðum starfsmönnum á sínum vinnustað. Þetta hlutfall er hærra fyrir veitingastaði á landsbyggðinni en í Reykjavík. S T Y T T R A N Á M Í framhaldi af umræðu um fjölgun faglærðra starfsmanna er áhugavert að velta fyrir sér áhuga stjórnenda á framboði á styttri námskeiðum fyrir starfsfólk sem myndi veita þeim aukna færni í störfum sínum. Niðurstöður sýna greinilegan áhuga stjórnenda á því en næstum þrír af hverjum fjórum stjórnendum hafa mikinn áhuga á því. Stjórnendur í Reykja- vík hafa meiri áhuga á að boðið væri upp á slík námskeið en stjórnendur af landsbyggðinni. Þeir sem sögðust hafa lítinn áhuga á slíkum námskeiðum voru spurðir nánar út í þá afstöðu sína og nefndu þá nokkrir að styttri námskeið gætu skemmt fyrir því fagnámi sem þegar er til staðar og nokkrir að þeir héldu að tímasetningar námskeiða myndu henta illa. Athyglisvert er að skoða þessar niðurstöður í samhengi við það sem áður hefur komið fram að áhugi starfsfólks á að mennta sig frekar innan síns geira er frekar lítill. Viðhorf stjórnenda og starfsmanna til aukinnar menntunar starfs- manna ríma því illa saman, líkt og sjá má af mynd 3. Stjórnendur voru að lokum spurðir að hve miklu leyti starfsmenn starfa undir beinni stjórn yfirmanns og að hve miklu leyti þeir starfa sjálfstætt og var spurt um starfsfólk í móttöku, eldhúsi, veitingasal og þvottum og þrifum. Greini- legt er að fæstir starfsmenn vinna sjálfstætt í störfum sínum en stærstur hluti starfsmanna í móttöku, eldhúsi, veitingasal og þvottum og þrifum vinnur beint undir stjórn yfirmanns líkt og sjá má á mynd 4. Það er í móttöku þar sem starfsmenn starfa helst sjálfstætt en síst í veitingasal. L O K A O R Ð Niðurstöður rannsóknarinnar voru þáttur í stærra verkefni sem unnið er að um færni í ferðaþjónustu. Ítarlegar niður- stöður um eðli starfanna, sem ekki eru tíundaðar hér, munu án efa nýtast vel í þeirri vinnu. Af niðurstöðum má sjá að almennt er menntunarstig starfsmanna innan ferðaþjónustunnar lágt og starfsaldurinn er ekki hár. Þá eru álíka margir sem telja það líklegt og ólík- Mynd 3. Viðhorf stjórnenda og starfsmanna til aukinnar menntunar Mynd 4. Vinna undir stjórn yfirmanns eða sjálfstætt 45,2% 41,4% 41,4% 41,4% 21,8% 20,4% 13,9% 11,7% 0% 100% Starfsfólk í móttöku Starfsfólk í þvottum og þrifum Starfsfólk í eldhúsi Starfsfólk í veitingasal Bein stjórn yfirmanns Vinnur að hluta sjálfstætt Vinnur sjálfstætt 6,8% 20,2% 20,5% 50,6% 0% 100% Mikill Í meðallagi Lítill Áhugi stjórnenda á að boðið væri upp á námskeið fyrir starfsfólk Áhugi starfsfólks á að mennta sig frekar innan starfsgeirans
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.