Gátt - 2013, Page 37

Gátt - 2013, Page 37
37 Þ R Ó U N F R A M H A L D S F R Æ Ð S L U N N A R G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 að safna námseiningum á lengri til tíma til formlegra námsloka hafi hann hug á því. Einnig er gert ráð fyrir meiri sveigjanleika í útfærslu og innihaldi námsins allt eftir áherslum fræðsluaðila. Niðurstöðum úr tilraunaverkefni í ferðaþjónustu er ætlað að vera yfirfæranlegar yfir á aðrar starfsgreinar og verða fyrir- mynd um skipulag náms í framhaldsfræðslu ef vel tekst til. M I S M U N A N D I T E G U N D I R V E R K - E F N A Verkefnin, sem lýst er hér á undan, eru þrenns konar: • Kannanir, á aðstæðum tiltekins hóps og á þörf fyrir fræðslu. • Greiningar, á störfum og hæfnikröfum starfa. • Námsskrárritun, sem byggist á undanfarandi greiningu. Mynd 1 endurspeglar þessa skiptingu en hún sýnir bæði hvernig verkefni vetrarins skiptast milli starfsgreina, hvert eðli þeirra er og hvaðan fjármögnun kemur. Kannanir Maskína ehf. gerði kannanir þær sem hér er lýst og fólust þær að mestu í spurningakönnunum en einnig í svokölluðu fjarumræðuborði á netinu og djúpviðtölum. Niðurstöður má finna á www.frae.is og einnig í umfjöllun annars staðar í þessu riti. Í könnun, sem gerð var meðal almenns starfsfólks í mat- vælaiðnaði, kemur fram mikill áhugi á frekari menntun en tæp 60% svara því til að þau hafi mjög mikinn eða frekar mikinn áhuga á að mennta sig frekar. Svipaðar niðurstöður komu fram þegar spurt var um áhuga á styttri námskeiðum til að efla færni í starfi en þar svara 54,4% því að þau hafi mikinn eða frekar mikinn áhuga á því. Meðalstarfsaldur reyndist vera 8,67 ár og næstum helmingi svarenda finnst líklegt að þeir verði enn starfandi innan greinarinnar eftir 5 ár. Könnunin fór fram á sjö stöðum á landinu og voru 356 einstaklingar spurðir. Svarhlutfall var 59,5%. Í svörum stjórn- enda í matvælaiðnaði á fjarumræðuborði komu þó einnig fram vísbendingar um að einhver hluti þess hóps, sem starfar í greininni, sé illa staddur félagslega en þar voru svörin fá og ekki rétt að draga of miklar ályktanir af þeim. Segja má að þar sé viðfangsefni sem vert er að skoða. Í könnun, sem gerð var meðal stjórnenda og starfs- manna á gisti- og veitingastöðum, var megináherslan lögð á að draga fram mynd af því hvaða störfum og verkefnum almennir starfsmenn sinna. Fram kom að tæpur helmingur stjórnenda segir að mjög fáir eða enginn starfsmaður í eld- húsi sé með sveinspróf og þrír af hverjum fjórum stjórnenda segir að það sama eigi við í veitingasal. Um 40% stjórnenda segjast sáttir við skiptingu milli faglærðra og ófaglærða á sínum vinnustað. Samkvæmt könnuninni eru verkefni almennra starfsmanna oftast þess eðlis að nám á fyrsta eða öðru þrepi væri góður undirbúningur fyrir starf þeirra. Stjórnendur á þessum vinnustöðum sýndu mikinn áhuga á námskeiðum fyrir starfsfólk sitt en svör starfsmanna endur- spegluðu mun minni áhuga. Spurðir voru 503 starfsmenn Fe rð aþ jó nu st a Könnun Greining A A B Sk óg ræ kt Greining Ma tv æ la ið na ðu r Könnun Greining D C E Há se ta r Greining Greining Ve rs lu n F Námsskrá H G Fjármögnun: Þróunarsj. framhaldsfr. Starfsmenntasj. Félagsmálarn. MRN. Nám er vinnandi vegur Tilraunaverkefni í ferðaþjónustu Námsskrá framhaldsfræðsla Námsskrá framhaldsskóli Mynd 1. Yfirlit verkefna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Gátt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.