Gátt - 2013, Síða 47
47
Þ R Ó U N F R A M H A L D S F R Æ Ð S L U N N A R
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
í daglegu lífi allra hvort sem er í einkalífi eða á vinnumarkaði
og eru yfirfæranlegir, í þeirri merkingu að þeir nýtast á hvaða
vettvangi sem er.
H V E R N I G E R S T A Ð A N Í E V R Ó P U ?
Ef niðurstöður eru skoðaðar einvörðungu út frá gögnum
þeirra aðildarlanda Evrópusambandsins sem tóku þátt í
könnuninni má sjá að 20% vinnuaflsins býr yfir lítilli kunn-
áttu í læsi og talnalæsi og 25% vinnuafls skortir kunnáttu og
getu til að nota upplýsingatækni við úrlausn daglegra verk-
efna. Töluverður munur er á milli landa hvað þetta varðar og
birtist sá munur meðal annars í því að kunnátta einstaklinga,
sem eru nýútskrifaðir úr framhaldsskóla, er í sumum löndum
svipuð eða betri heldur en kunnátta nýútskrifaðra háskóla-
stúdenta í öðrum löndum. Þannig er læsisgeta nýútskrifaðra
framhaldsskólanema í Finnlandi og Hollandi betri heldur en
læsisgeta nýútskrifaðra háskólastúdenta á Spáni og Ítalíu.
Þá er líka athyglisvert að læsiskunnátta drengja í Evrópu-
sambandslöndunum sautján virðist aukast eftir því sem þeir
eldast því niðurstöður PIAAC sýna lítinn sem engan mun á
læsiskunnáttu ungra manna og kvenna þrátt fyrir að niður-
stöður PISA hafi iðurlega sýnt annað, þ.e. að læsiskunnátta
drengja væri slakari en stúlkna.
Æ V I M E N N T U N T A K I V I Ð A Ð L O K -
I N N I G R U N N M E N N T U N
Almennt sýna niðurstöður PIAAC að skýr tengsl eru á milli
aukinnar grunnleikni og betri afkomu einstaklings. Þannig
eru einstaklingar sem búa yfir lítilli læsisgetu líklegri til að
hafa lágar tekjur, vera við lélega heilsu, taka síður virkan þátt
í samfélaginu og bera minna traust til annarra heldur en þeir
sem eru sterkari í læsi. Þá voru um 80% einstaklinga með
læsisgetu á 4. eða 5. stigi með atvinnu á meðan helmingur
einstaklinga með læsisgetu á 1. stigi var í starfi. Hvort það
er félagslegi bakgrunnurinn sem hefur áhrif á getu, eða hitt,
að skortur á getu leiði til verri félagslegrar afkomu einstak-
lings verður ekki svarað með niðurstöðum PIAAC en engu
að síður er nauðsynlegt að finna leiðir til að rjúfa vítahring-
inn. Þátttaka í fullorðinsfræðslu og ævimenntun er meðal
annars talin vera leið að viðhaldi lykilhæfni og grunnleikni
og leggur OECD þess vegna til að stjórnvöld hugi bæði að því
að tryggja hágæða grunnmenntun þegnanna en byggi sam-
hliða upp kerfi ævimenntunar þar sem allir hafa möguleika
á að halda við og endurnýja þekkingu sína og hæfni. Þá eru
atvinnurekendur einnig hvattir til að huga vel að símenntun
og þjálfun starfsfólks og að tengja saman þjálfun í grunn-
leikni og dagleg verkefni á vinnustað.
V I R K N Á M S - O G S T A R F S R Á Ð G J Ö F
O G G O T T A Ð G E N G I A Ð U P P L Ý S -
I N G U M
OECD hvetur til þess að byggð verði upp hágæða náms- og
starfsráðgjöf þar sem einstaklingum er leiðbeint um störf og
leiðir til menntunar og þjálfunar. Þá sé nauðsynlegt að gera
upplýsingar um störf og nám aðgengilegar, sér í lagi fyrir
þann hóp sem verst stendur með grunnleikni og lykilhæfni.
Eins er lagt til að hæfni einstaklinga verði viðurkennd og
vottuð formlega því það hvetji til frekara náms og þjálfunar.
Gegnsæir staðlar, sem byggja á viðmiðaramma um hæfni og
áreiðanlegar matsaðferðir eru nauðsynlegar til að þetta megi
ganga upp. Mat á raunfærni getur einnig skv. OECD stytt
þann tíma sem þarf til að byggja upp ákveðna hæfni eftir við-
miðaramma og þannig minnkað þann kostnað sem annars
hlytist af ónauðsynlegu námi og þjálfun.
Þessar ábendingar OECD samræmast að mörgu leyti
verkefnum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) sem eru
meðal annars að þróa náms- og starfsráðgjöf fyrir fullorðna
og auka aðgengi að námi. Þá eru ábendingarnar einnig
fyllilega í takt við markmið IPA-verkefnis FA um að koma á
fót gagnagrunni um störf og nám og áframhaldandi þróun
raunfærnimats þar sem raunfærni fólks á vinnumarkaði sem
ekki hefur lokið formlegu framhaldsskólanámi er dregin fram
og metin.
N O R R Æ N T S A M S T A R F U M P I A A C
Á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar (ráðherranefndir
um vinnumarkað og menntun) hefur um árabil verið unnið
að undirbúningi norræns gagnagrunns um grunnleikni full-
orðinna. Grunnurinn mun byggja á upplýsingum úr PIAAC-
könnuninni sem hægt er að tengja samanburðarhæfum
gagnaskrám frá Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð. Upplýsingar verða uppfærðar annað hvert ár og
er ætlunin að birta fyrstu skýrslu byggða á upplýsingum úr
grunninum árið 2014. Þá munu fræðimenn geta sótt um sér-
stakan rannsóknaraðgang að gagnasafninu.