Gátt - 2013, Page 63
63
F U L L O R Ð I N S F R Æ Ð S L A
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
TORMOD SKJERVE
M I N D T H E G A P
– yf i r færs la yf i r í s já l fbært samfélag krefst nýrrar færni!
Tormod Skjerve
G R Æ N F Æ R N I K A L L A R Á S A M -
S T A R F
Virke átti frumkvæði að því að samþætta kröfur og markmið
um umhverfi að stefnu um færni þróun í Noregi. Samhengi
af þessu tagi hefur ekki verið hluti af pólitískri stefnu, en
við teljum það afar mikilvæg. Gott dæmi úr heimi norskra
stjórnmála væri efling samlegðarárhrifa á milli stefnu
umhverfisráðuneytisins um loftslagsbreytingar (n. klima-
tilpasning i Norge) og menntamálaráðuneytisins sem stýrir
ferli við þróun stefnu um færni. Í báðum ferlum er lögð rík
áhersla á að atvinnulífið taki þátt, en þróunin er í samhliða
ferlum með ólíkum þátttakendum án sameiginlegs vettvangs
eða stefnumiða.
Atvinnulífið getur lagt sitt af mörkum við úrlausn vanda
í umhverfismálum. Það á ekki einungis við um að draga úr
losun heldur einnig um að virkja þjónustugeirann til þátttöku
við lausn umhverfismála. Geirinn er sá stærsti á vinnumark-
aði og innan hans eru fulltrúar umsvifamikilla kaupenda
sem eiga bein samskipti við viðskiptavini. Um er að ræða
ríka ábyrgð og fjölbreytt tækifæri til þess að gera atvinnu-
lífið grænna.
G R Æ N N I S T Ö R F S K A P A S T Í G E G N -
U M G R Æ N A F Æ R N I Þ R Ó U N
Sköpun svokallaðra grænna starfa (e. green jobs) hefur á
undanförnum árum haft víðtæk áhrif á mótun stefnu þjóða
um þróun sjálfbærs hagkerfis. Alþjóðlegar stofnanir á borð
við Alþjóðavinnumálastofnunina
(ILO), Evrópusambandið (ESB) og
Efnahags- og framfarastofnunina
(OECD) hafa í auknum mæli mælt
með því að þróun í átt að grænum störfum snúi aðeins að
litlu leyti að því að leggja niður fyrirtæki sem hafa neikvæð
áhrif á umhverfið og stofna til nýrra sem eru umhverfisvænni.
Það þjónar heldur ekki tilgangi að beina sjónum aðeins að
útvöldum geirum atvinnulífsins eins og til dæmis orku- og
flutningageirunum. Þróun í átt að grænni störfum er ferli til
þess að gera öll störf grænni. Græn færniþróun snýst um að
bjóða öllum launþegum tækifæri til þess að uppfæra þekk-
ingu sína til þess að geta lagt meira af mörkum við að gera
starfsemina umhverfisvænni og bæta nýtingu auðlinda. For-
senda þess að það takist að draga úr losun og bæta nýtingu
auðlinda er að vinnustaðir verði virkjaðir til þess að efla
græna þekkingu og færni. Grænt hagkerfi mun því hafa
áhrif á færniþörf atvinnulífsins í heild. Almennar upplýsingar
um þjóðarátök á sviði færniþróunar og ævimenntunar er
því afgerandi til þess að skilja áskorunina sem felst í þróun
grænnar færni.
A Ð G E R Ð I R K A L L A Á Þ E K K I N G U
Innan Virke komu fram óskir um betri þekkingu á því hvernig
þjónustugreinar takast á við áskoranir þróunar grænnar
færni. Rannsóknastofnuninni NIFU (Nordisk institutt for
studier av innovasjon, forskning og utdanning) var falið að
taka viðtöl við tíu aðildarfyrirtæki sem sýnt hafa ábyrgð
Græn færniþróun snýst um að bjóða öllum launþegum tækifæri til þess að uppfæra þekkingu
sína með það fyrir augum að leggja sitt af mörkum við að gera starfsemina umhverfisvænni
og draga úr nýtingu auðlinda. Grænt samfélag mun hafa áhrif á alla færni atvinnulífsins.
Nú er tímabært að leggja drög að víðtækri stefnu um færniþróun í atvinnulífinu – grænni
færniþróun.
Virke er önnur stærstu atvinnurekendasamtökin í Noregi. Í samtökunum eru 1.700
aðilar úr öllum geirum einkarekinnar þjónustu svo sem verslunar, þekkingar, tækni, ferða-
þjónustu, þjónustu, heilbrigðis, menntunar, þjálfunar og menningar. Samtals telja störfin í
aðildarfyrirtækjunum um 220.000.