Gátt - 2013, Side 72
72
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
Árið 2008 urðu á Íslandi viðamiklar sviptingar og
breytingar á atvinnumarkaði og segja má að raunveru-
legt atvinnuleysi hafi þá komið til sögunnar, í fyrsta
sinn frá upphafi 10. áratugarins. Stór hópur einstak-
linga með stutta formlega skólagöngu missti vinnuna.
SÍMEY og Vinnumálastofnun hófu samstarf með það
að leiðarljósi að bjóða atvinnuleitendum úrræði sem
hentaði hverjum og einum. Samstarfið gekk vel og
atvinnuleitendum fjölgaði í námsleiðum Fræðslumið-
stöðvar atvinnulífsins, námskeiðum á vegum SÍMEY
og stór hluti þeirra leitaði sér ráðgjafar hjá náms- og
starfsráðgjafa. Það var ekki alltaf einfalt mál að finna
nám við hæfi en þá kviknaði hugmyndin að þróa raun-
færnimat fyrir atvinnuleitendur til að styrkja persónu-
hæfni þeirra og stöðu á vinnumarkaði. Raunfærnimat er líklega ein besta leiðin til að örva fólk til að sækja sí- og
endurmenntun sem og að byggja upp sjálfstraust einstaklinga.
HILDUR BETTÝ KRISTJÁNSDÓTTIR OG VALGEIR BLÖNDAL MAGNÚSSON
R A U N F Æ R N I M A T F Y R I R A T V I N N U L E I T E N D U R
Valgeir Blöndal MagnússonHildur Bettý Kristjánsdóttir
A Ð D R A G A N D I O G U N D I R B Ú N I N G U R
Ástæðan fyrir vali okkar á viðfangsefninu, Raunfærnimat fyrir
atvinnuleitendur, er að áhugasvið okkar hefur lengi tengst
vinnu með fólki. Í starfi okkar sem náms- og starfsráðgjafar
höfum við komið að mörgum sviðum ráðgjafar og höfum
átt þess kost að aðstoða fólk við að finna námstækifæri
við hæfi. Í ráðgjöfinni hafði viðtölum við atvinnuleitendur
fjölgað og var eitt af hlutverkum okkar að meta hvers konar
nám hentaði hverjum og einum. Það var ekki alltaf einfalt
mál að finna nám við hæfi þar sem námsáhugi atvinnuleit-
enda er misjafn og flestir vilja komast út á vinnumarkaðinn
sem fyrst. Á þeim tímapunkti gerðum við okkur grein fyrir því
að mikilvægt væri að geta boðið upp á raunfærnimat fyrir
atvinnuleitendur óháð fyrri starfsreynslu og um leið að þeir
gætu tengt það við stöðu sína á vinnumarkaði.
Haustið 2010 hófst vinnan við að þróa Raunfærnimat
fyrir atvinnuleitendur með heimsókn til Finnlands. Þar tók
Anni Karttunen, sérfræðingur í fullorðinsfræðslu hjá Savo, á
móti okkur og kynnti fyrir okkur hvernig raunfærnimat fyrir
atvinnuleitendur fer fram þar í landi. Megináherslan í Finn-
landi var sú að yfirvöld greiddu kostnað við raunfærnimats-
ferlið og veittu jafnframt stuðning við að öðlast þá menntun
sem þörf var á í framhaldinu. Heimsóknin og samstarfið
leiddu til umsóknar um styrk í þróunarverkefni til Starfs-
menntaráðs og fékkst sá styrkur. Eftir að hafa kynnt okkur
hugmyndafræði annarra þjóða á Norðurlöndum töldum
við okkur vera í stakk búin að hefjast handa við að þróa
raunfærnimatsferli fyrir atvinnuleitendur hér á landi. Eitt
af meginhlutverkum SÍMEY er að veita einstaklingum með
stutta formlega skólagöngu tækifæri til að afla sér mennt-
unar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Daglega lærum
við eitthvað nýtt, hvort sem er í starfi, við lestur bókar, í sam-
skiptum, heima eða á námskeiðum sem við sækjum. Þetta er
kallað óformlegt nám en formlegt nám er allt það nám sem
er skipulagt af fræðslu- og menntastofnunum. Hefð hefur
verið fyrir því að meta frekar formlegt nám en óformlegt.
Breytingar hafa átt sér stað á síðustu árum sem hafa leitt til
þess að ekki er lengur einblínt á hið formlega nám heldur er
mun meiri áhersla lögð á að meta heildarhæfni einstaklinga
(Green, 2007; Åsa Hult og Per Andersson, 2008, bls. 20).
Náms- og starfsráðgjöf er hluti af íslenska raunfærnimats-
ferlinu og þykir órjúfanlegur þáttur þess.
Raunfærnimat á Íslandi hefur verið í örri þróun á síðustu