Gátt - 2013, Page 84
84
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
hefur SÆNS útbúið skýrslu sem lýsir hugmyndafræðilegum
grunni fyrir upplýsinga- og ráðgjafarkerfi sem er í framtíðinni
ætlað að þjóna almenningi (ýmsum markhópum). Í verk-
efninu er lagður grunnur að þeirri framtíðarsýn með áherslu á
þarfir markhóps FA. Þetta er því eins konar grunnútgáfa sem
nær til afmarkaðra þátta sem lýst er hér á eftir. SÆNS hefur
einnig starfrækt rýnihópa með helstu hagsmunaaðilum og
skráð niðurstöður þeirra í skýrslu sem nú nýtist sem grunnur
að lýsingu á virkni vefgáttar sem þarf síðan að útfæra með
tækniaðila. SÆNS hefur virkjað tengsl sín við erlenda sér-
fræðinga í málaflokknum sem hafa veitt ráðgjöf við mótun
vefsins. Samstarf er einnig við mennta- og menningarmála-
ráðuneytið um þróun mála.
L Ý S I N G Á 5 0 0 S T Ö R F U M O G
N Á M S L E I Ð U M A Ð Þ E I M
FA hefur hafið söfnun á lýsingum á 500 störfum í samstarfi við
hagsmunaaðila. Grunnurinn að vali á störfum var lagður með
starfsgreinaráðunum og tekur mið af þeim vísbendingum
sem fram koma um framtíðarfærniþarfir vinnumarkaðsins.
Lýsingar á störfum munu byggjast á ýmsum heimildum, s.s.
á hæfnikröfum starfa (unnin af starfsgreinaráðum), upplýs-
ingum frá fagfélögum, lögum og reglugerðum og bókunum
Starfslýsingar I–III (270 störfum lýst) sem Gerður G. Óskars-
dóttir ritstýrði. Í sumum tilfellum er að finna ítarlegt efni sem
hægt er að byggja á, t.d. hæfnikröfur starfa sem starfsgreina-
ráðin hafa unnið fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið,
í öðrum tilfellum er lítið sem ekkert til og þá þarf að draga
fram lýsingarnar eftir öðrum leiðum eins og í gegnum við-
töl og rýni í erlend gögn. Hannað hefur verið sniðmát fyrir
lýsingarnar til samræmingar og verður texti hverrar lýsingar
borinn undir helstu hagsmunaaðila viðkomandi starfs svo að
sátt ríki um það sem birt verður. Stefnt er að því að textinn sé
einfaldur, hnitmiðaður og aðlaðandi til notkunar fyrir mark-
hópinn. Þá er einnig verið að huga að skýrri starfaflokkun
sem getur gagnast einstaklingum við að fá heildaryfirsýn yfir
störf á vinnumarkaði og mögulegar tengingar þeirra á milli.
SÆNS vinnur lýsingar á námsleiðum í þar til gert sniðmát
sem tengjast þeim 500 störfum sem lýst er. Þær geta verið
í gegnum formlega skólakerfið og/eða vettvang framhalds-
fræðslunnar. Þessar lýsingar verða einnig einfaldar og hnit-
miðaðar með tenglum á tengda fræðsluaðila. Unnið er í sam-
starfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið.
K A N N A N I R Á Á H U G A O G F Æ R N I
A U K A Ð G E N G I S A Ð N Á M S - O G
S T A R F S R Á Ð G J Ö F
Á vefnum er ætlunin að bjóða upp á áhugasviðskönnun
fyrir markhópinn. Í gegnum áhugasviðskönnun getur ein-
staklingurinn fengið aukna sjálfsþekkingu sem styður hann
jafnframt í ákvarðanatöku um færniþróun. Sif Einarsdóttir,
dósent við námsbraut í náms- og starfsráðgjöf í HÍ, hefur
unnið að þróun áhugasviðskönnunarinnar Bendils (sjá www.
bendill.is) fyrir ungt fólk og er ætlunin í þessu verkefni að
þróa áfram sérstaka könnun fyrir fullorðna. Bendill byggist á
kenningu John Holland og miðar að því að draga fram upp-
lýsingar um starfsáhuga. Niðurstöður könnunarinnar munu
síðan tengjast lýsingum á störfum og námsleiðum og hvatt
verður til þess á vefnum að einstaklingar leiti til náms- og
starfsráðgjafa til að ræða þær nánar og skipuleggja næstu
skref.
Einstaklingar munu geta mátað sig við þær raunfærni-
matsleiðir sem opnar eru með því að svara spurningum í
sérstökum skimunarlistum á vefnum sem náms- og starfs-
ráðgjafar nýta þegar kannað er hvort fólk eigi erindi í raun-
færnimat í ákveðinni grein. Einnig verður hægt að nálgast
gátlista (hæfniviðmið) greinanna í sjálfsmatsformi á vefnum.
Með sjálfsmatinu gefst einstaklingum tækifæri til að máta
færni sína við viðmið greinanna og geta í kjölfarið haft beint
samband við nám- og starfsráðgjafa á fræðslu- og símennt-
unarmiðstöðvum um land allt til að ræða möguleika sína á
þátttöku í raunfærnimati.
Mynd 1: Samráðshópur verkefnisins í námsheimsókn á Írlandi.