Gátt - 2013, Síða 90

Gátt - 2013, Síða 90
90 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 í aðferðafræði hönnuða og handverksfólks auk þess sem þeir lærðu að skilgreina ýmis hugtök og nýta sér vinnudagbók/ skissubók til að safna upplýsingum og þróa hugmyndir. Í seinni lotunni nýttu nemendur sér það sem þeir lærðu í fyrri lotunni til að hanna og búa til prufueintök til framleiðslu. Farið var í skoðunarferðir og fjölmargir sérfræðingar kallaðir til, ýmist til að halda stuttar kynningar og fyrir- lestra eða til að kenna ákveðið handverk, aðferðafræði og/ eða meðferð efnis. Einnig var fjallað um ýmsar aðferðir við markaðssetningu, gæðaeftirlit og vöruþróun. Nemendurnir fóru saman í gegnum ferli þar sem þeir skoðuðu og greindu helstu sérkenni fjórðungsins, kortlögðu mögulega sölustaði, rannsökuðu viðfangsefnið – skötuna og aðalbláberin – frá ýmsum hliðum, kynntu sér stöðu og þróun ferðaþjónustunnar á svæðinu og sköpuðu eigin útfærslur af söluvarningi sem féllu að þemanu sem unnið var með. Í lokin var haldinn opinn kynningarfundur þar sem ferli og aðferðafræði smiðjunnar var kynnt almenningi og hver og einn þátttakandi sýndi prufueintök og sagði frá sínu verkefni. Á H E R S L U R Eins og áður sagði voru þátttakendur á ýmsum aldri og með ólíkan bakgrunn og reynsluheim. Við framkvæmd smiðjunnar var lögð áhersla á að leiða allan hópinn saman í gegnum ferlið en jafnframt að leyfa hverjum og einum að njóta sín. Tekið var mið af því hve þarfir og eðli einstaklinga er mis- munandi, vinnan var aðlöguð hverjum og einum eins og kostur var og fylgst með því að allir væru virkir allan tímann. Þátttakendur unnu ýmist sjálfstætt, tveir eða fleiri saman eða allur hópurinn sem ein heild. Við kennsluna var lögð áhersla á samhjálp, samvinnu og jafningjafræðslu. Dregin var fram eftir fremsta megni sérþekking hvers og eins og henni komið á framfæri þar sem við átti. „Áttatíu prósent velgengninnar felst í því að mæta á staðinn,“ er haft eftir frægum manni (eða konu). Mætingar- skylda í smiðjunni var 80% að lágmarki og án þessa ákvæðis myndu kennsluaðferðir smiðjunnar ekki nýtast sem skyldi og skila litlum árangri. Stundataflan var í daglegri endurskoðun og mikilvægt reyndist að aðlaga hana aðstæðum reglulega; framvindu verkefnisins, einstaklingunum sem að því komu og því umhverfi sem unnið var í. Afar brýnt er að þeir sem leiða verkefni af þessum toga hafi góða reynslu af skapandi verkefnum sem byggjast á jafningjafræðslu, að þeir hafi kunnáttu til að leiða breiðan hóp einstaklinga með ólíkan bakgrunn og reynsluheim og þekki menningarsvæðið sem unnið er með, inniviði þess, mannauð og möguleika. Ú T K O M A Almenn ánægja var meðal þátttakenda með smiðjuna, bæði skipulag hennar og allt það efni sem þeir náðu að til- einka sér með því að vera leiddir í gegnum ferlið. Það þótti mjög gefandi að fá að vinna með efnivið og hugmyndir úr nærumhverfinu. Eins var mikil ánægja með alla þá hönnuði, handverksfólk og sérfræðinga á ýmsum sviðum sem komu að smiðjunni með ýmiss konar handleiðslu og fróðleik. Leiðsagnarmatið, sem unnið var eftir, reyndist hins veg- ar of margþætt og flókið. Við vinnuferli af þessu tagi þarf skýrslugerð að vera hófleg og hnitmiðuð. Ef of mikill tími fer Fjölmargir sérfræðingar á ýmsum sviðum koma að smiðjunni með ýmsum hætti.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Gátt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.