Gátt - 2013, Síða 92
92
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
S O Ð I Ð T I L G A G N S
Eins og þekkt er hefur fjöldi manns
verið án atvinnu frá árinu 2008
og margir leitað sér nýrrar þekk-
ingar meðal annars til að auka eigin hæfni og fjölga þannig
atvinnutækifærum. Til þess að koma til móts við hluta þess-
ara einstaklinga og um leið auka þekkingu á málmsuðu, sem
málmiðnaðurinn hefur þörf fyrir, hóf IÐAN að þróa suðu-
smiðjur. Suðusmiðjur falla undir liðinn opin smiðja hjá FA og
eru fjármagnaðar af stærstum hluta í gegnum Fræðslusjóð.
Í smiðjunum er fyrst og fremst lögð áhersla á verklega
þjálfun. Stefnt er að því að skapa þægilegt andrúmsloft og
hvetja til samvinnu, auk þess sem reynt er að efla metnað
þátttakenda til að bæta færni sína.
Suðusmiðja er 80 klukkustunda nám í ákveðinni málm-
suðuaðferð, t.d. í Pinnasuðu, TIG, MIG/MAG eða logsuðu.
Smiðjan hefur það að markmiðið að veita ófaglærðum inn-
sýn í suðuvinnu, veita þeim þjálfun, tryggja öryggi í hand-
bragði og skapa hugsanleg störf í vélsmiðjum. Ítarlega er
farið í öryggismál á vinnustöðum í smiðjunum. Að lokinni
þjálfun geta þátttakendur stillt upp fyrir suðuvinnu, punktað
og soðið (með viðkomandi aðferð) þar sem ekki eru gerðar
kröfur til hæfnisvottunar. Þetta veitir þeim sem sótt hafa
smiðjuna og tileinkað sér þær aðferðir sem þar eru kenndar
tvímælalaust forskot á vinnumarkaði hafi þeir hug á að vinna
í vélsmiðjum.
Þegar þetta er ritað er fjórum suðusmiðjum lokið, þremur
Pinnasuðusmiðjum og einni TIG-suðusmiðju. Sú fimmta á
árinu er í gangi og er það TIG-suðusmiðja.
Fyrsta smiðjan (Pinnasuðusmiðja) var haldin fyrir atvinnu-
leitendur hjá Starf – vinnumiðlun og ráðgjöf.
Alls sóttu smiðjuna níu þátttakendur, átta karlmenn og
ein kona. Öll luku þau smiðjunni og fengu þrír þátttakendur
atvinnu í kjölfarið.
HILDUR ELÍN VIGNIR
S O Ð I Ð T I L G A G N S
IÐAN fræðslusetur hefur þróað suðusmiðjur til að koma til móts við vaxandi eftirspurn eftir
suðuþekkingu á vinnumarkaðnum. Suðusmiðjurnar falla undir liðinn opin smiðja hjá FA og
eru fjármagnaðar af stærstum hluta í gegnum Fræðslusjóð. Fjórum suðusmiðjum er lokið á
árinu, þremur Pinnasuðusmiðjum og einni TIG-suðusmiðju. Heildarfjöldi þátttakenda var 35
manns, þar af voru 32 karlmenn og þrjár konur. Fjöldi sem lauk smiðjunum var 30 manns,
þar af voru tvær konur. Fjöldi þeirra sem hefur fengið vinnu er 11 eða 32% (þar af fengu
þrír vinnu án þess að ljúka námskeiðinu) og þrír hafa fengið vinnumarkaðsúrræði í gegnum
VMST eða 9%.
Hildur Elín Vignir