Gátt


Gátt - 2013, Blaðsíða 110

Gátt - 2013, Blaðsíða 110
110 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 frá HRSG sem hefur að geyma yfir 300 þrepaskiptar lýsingar á færni og annað eins af lýsingum starfa. Í framhaldi af því hófst vinna við þýðingar og aðlögun. Hugmyndir FA um verklag við greiningu færnikrafna á Íslandi voru kynntar á nokkrum fundum. Aðferðinni var beitt í nokkrum verkefnum og reyndist vel en áfram bíður frekari þróun, þýðingar og aðlögun, meðal annars að íslenskum viðmiðaramma. Mikilvægt er að fylgjast með því sem gert er í öðrum löndum og hjá öðrum aðilum hér á landi í tengslum við hæfni- kröfur starfa og tengingu við viðmiðaramma. Það hefur verið gert með því að fylgjast með erlendum vefsíðum, skýrslum og fréttabréfum. Sem dæmi hefur fjölbreytt útgáfa CEDEFOP verið rýnd og lykilskýrslur frá OECD. Fyrirkomulag menntunar í atvinnulífi og færnikröfur til ýmissa starfa í öðrum löndum hafa verið skoðaðar og fjölmargir viðburðir hafa verið sóttir innanlands á vegum stjórnvalda og annarra hagsmunaaðila sem tengjast málefninu. Starfshópur vegna tilraunaverkefnis í ferðaþjónustu, skipaður fulltrúum frá FA, SAF, SGS, MK og starfsgreina- ráði matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina lagði fram fyrstu drög að tillögu um skipan náms í ferðaþjónustu innan framhaldsfræðslunnar í nóvember. Drögin fengu að mestu jákvæðar undirtektir í baklandinu en á fundi í starfsgreina- ráði matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina komu fram neikvæð viðbrögð og niðurstöður FA úr hæfnigreiningu voru tortryggðar. Starfshópurinn ákvað því að fara í frekari upp- lýsingasöfnun. SAF fékk styrk frá Þróunarsjóði framhalds- fræðslu til að gera könnun, sem starfsmenn FA tóku þátt í að móta. Maskína ehf. vann könnunina og voru niðurstöður kynntar þann 27. nóvember 2012 og má nálgast þær á vef FA, www.frae.is. Niðurstöður könnunarinnar styðja fyrri greiningu FA og veita gagnlegar viðbótarupplýsingar. Starfs- hópurinn lauk störfum í ársbyrjun 2013 með því að leggja fram tillögu að nýju fyrirkomulagi í skipan náms. Fulltrúar starfsgreinaráðsins skrifuðu ekki undir tillöguna. Náms- hönnun og námsskrárritun fyrsta hluta náms í ferðaþjónustu lauk í maí 2013 og þar með lauk tilraunaverkefninu. Greinar- gerð þess efnis var undirrituð af samstarfsaðilunum FA, SGS og SAF í ágúst 2013. Eftir stendur að halda áfram þróun sam- kvæmt tillögum starfshóps og láta reyna á nýtt fyrirkomulag. Tillaga starfshóps felur í stórum dráttum í sér að hægt verði að ljúka námi innan framhaldsfræðslunnar á tilteknu þrepi (hér var miðað við 2. þrep) til að styrkja stöðu á vinnu- markaði eða halda áfram námi í framhaldsskóla. Mikilvægur hluti tillögunnar snýst þó um þá áherslu sem lögð er á að ein- staklingar geti á löngum tíma safnað upp í skilgreind náms- lok með því að taka þátt í stuttum námskeiðum. FA fékk sumarið 2012 sjö verkefnastyrki frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu í tengslum við átakið Styrkir til eflingar starfsmenntunar. Verkefnin hófust flest haustið 2012 og lauk öllum í maí 2013. Verkefnin byggðust öll á nánu sam- starfi við aðila í atvinnulífinu og sum einnig á samstarfi við aðra fræðsluaðila. Í nokkrum tilvikum var um aðkeypta sér- fræðivinnu að ræða. Greinargerðir og afurðir þessara verk- efna hafa verið send styrkveitendum og samstarfsaðilum. Lýsing á verkefnunum, samstarfsaðilum, vinnunni og niður- stöðum er að finna í Gátt í grein Guðmundu Kristinsdóttur, Greining á fræðsluþörfum, verkefni síðasta árs. Í öllum greiningarverkefnum var beitt þeirri aðferða fræði sem er í þróun hjá FA með þrepaskiptum hæfnilýsingum sem keyptar voru frá HRSG. Með því fékkst dýrmæt reynsla sem vinna þarf úr og var því sótt um styrk til mennta- og menningar málaráðuneytisins í maí síðastliðnum til að þróa aðferða fræðina, gera handbók og þjálfa fleiri til að beita aðferðinni. Sá styrkur var veittur og skal því verkefni lokið í maí 2014. Nokkur ný hæfnigreiningarverkefni eru í farvatninu en engar ákvarðanir hafa verið teknar. Mest er um vert að fylgja nýloknum verkefnum úr hlaði og fullmóta þau gögn og aðferðir sem byggt er á. Þ R Ó U N A Ð F E R Ð A Í F R A M H A L D S - F R Æ Ð S L U Frá árinu 2003 hefur FA byggt upp kennslufræðamiðstöð og þróað 20 námskeið og gagnasafn fyrir fræðslustarfs- menn, kennara og leiðbeinendur á sviði fullorðinsfræðslu. Námskeiðin nefnast Stiklur. Starfið hefur frá upphafi falist í þróunarvinnu, námskeiðahaldi, fræðslufundum og ráðgjöf. Námskeiðin eru á mismunandi sviðum með þarfir markhóps FA að leiðarljósi og í samræmi við óskir og ábendingar sam- starfsaðilanna. Nánari lýsing er í grein Sigrúnar Jóhannes- dóttur, Starfsemi kennslufræðimiðstöðvar í Gátt. Eftirtalin Stiklunámskeið voru haldin sl. vetur: • Stiklur 2–3, Grunnnámskeið var haldið fyrir Austurbrú á Reyðarfirði 15. október. • Stiklur 12, Úrræði við læsis- og ritunarvanda var haldið í Reykjavík fyrir Mími-símenntun 16. nóvember. • Stiklur 11, Að takast á við einstaklinga í erfiðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Gátt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.