Gátt - 2013, Page 113
113
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
gjöf; undirbúningi og framkvæmd ráðstefnu um færni ráð-
gjafans í Svíþjóð; og undirbúningi og framkvæmd málþings
um ráðgjöf fyrir fullorðna á Íslandi í júní.
Ráðgjafarnetið hefur einnig það hlutverk að styðja við
þróun gagnagrunns með upplýsingum um nám og störf í
tengslum við IPA-verkefni FA. Í þeim tilgangi var rýnihópa-
vinna (tveir hópar) á fundi ráðgjafarnetsins í febrúar, þar
sem fram fór þarfagreining á því hvað upplýsinga- og ráð-
gjafarvefur ætti að innihalda, ásamt því að fengin var sýn
ráðgjafanna á útfærslu á atriðum í vefgáttinni, svo sem upp-
lýsingar og notkun vefsins út frá sýn ráðgjafa annars vegar
og markhópsins eða notenda hins vegar.
G Æ Ð I F R Æ Ð S L U S T A R F S O G
R Á Ð G J A F A R H J Á V O T T U Ð U M
F R Æ Ð S L U A Ð I L U M
FA hefur frá upphafi unnið að því að efla gæði hjá fræðslu-
aðilum með þróun gæðaviðmiða sem unnin voru í samstarfi
og samráði við samstarfsaðila. Fyrstu gæðaviðmið FA voru
gefin út árið 2006 og á árinu 2011 gerði FA samning við vott-
unarstofuna BSI á Íslandi um gæðavottunarúttekt og bauð
fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum, sem eru í samstarfi við
FA, að sækja um fyrstu úttektirnar. Viðbrögð voru jákvæð og
í júní 2012 hlutu fyrstu miðstöðvarnar EQM-vottun. Í janúar
2013 var staðan þannig að þrettán fræðslu- og símenntunar-
miðstöðvar höfðu staðist gæðaúttekt og hlotið vottun skv.
EQM-gæðamerkinu og í maí sama ár barst umsókn frá fyrsta
fræðsluaðilanum utan samstarfsnets FA. Í ágúst 2013 barst
svo umsókn frá öðrum fræðsluaðila utan samstarfsnets FA.
Í janúar 2013 stóð FA fyrir könnun á EQM-gæðakerfinu
og framkvæmd gæðaúttektar meðal þeirra 13 fræðsluaðila
sem sótt höfðu um EQM-vottun og bárust svör frá 12 aðilum.
Helstu niðurstöður voru þær að fræðsluaðilar voru almennt
ánægðir með þátttöku sína í gæðavottunarferlinu og töldu
að þátttakan hefði skilað skýrari verkferlum og skipulagðari
vinnubrögðum. Nokkrir lýstu þó óánægju sinni með að vott-
unin næði einungis yfir fræðslustarfsemina en ekki náms- og
starfsráðgjöf eða raunfærnimat. Þá kom einnig fram viss
óánægja með úttektina, meðal annars þótti ferli úttektar
ekki nægilega skýrt.
Á fyrri hluta árs 2013 var gengið frá skipulagsskjölum í
samvinnu við BSI og gerður var gæðavottunarferill þar sem
skýrt er kveðið á um ábyrgð hvors aðila fyrir sig. Þann 24.
apríl var opnuð undirsíða á vef FA www.frae.is/gaedavottun
með upplýsingum um EQM-gæðavottunina, feril hennar og
tenglum í umsóknareyðublöð og fleiri gögn sem tengjast
EQM-vottuninni. Í byrjun júní 2013 fékk vottunarstofa sent
yfirlit yfir þá aðila sem gengið höfðu frá greiðslu árgjalds
2013 og hófst þá formlega ferill framhaldsúttekta, en úttektir
eru gerðar árlega fyrstu þrjú árin. Nánari umfjöllun um tilurð
og þróun EQM-viðmiðanna European Quality Mark for non-
formal learning providers – further development, er að finna
í grein Guðfinnu Harðardóttur hér í Gátt.
FA hefur einnig unnið að þróun gæðaviðmiða í náms-
og starfsráðgjöf í samráði við samstarfsnet ráðgjafa hjá
fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum. Þann 27. maí var
fjallað almennt um gæði og gæðavottun á samstarfsfundi
náms- og starfsráðgjafa en einnig var farið yfir forsögu EQM-
vottunarinnar og fjallað um aðferðafræði EQM. Markmiðið
er að fljótlega verði hægt að taka út náms- og starfsráðgjöf
samstarfsaðila skv. EQM-gæðakerfinu. Þá haldast í hendur
þróun gæðaviðmiða í raunfærnimati og IPA-verkefni FA.
N E M E N D A B Ó K H A L D
Námsnetið/MySchool er í eigu Studia ehf. FA leigir afnot
og greiðir fyrir aðlögun kerfisins að starfsemi sinni. Í Náms-
netinu/MySchool eru aðskilin viðmót fyrir kennara, nem-
endur og starfsmenn sem annast skipulag náms og umsýslu
gagna vegna námsins. Þrjú umsýslusvið eru í Námsnetinu/
MySchool; Brautir, Stök námskeið og Samskipti kennara og
námsmanna. Umsýslusviðið Brautir er ætlað fyrir vistun og
umsýslu gagna vegna náms samkvæmt námsskrám sem FA
skrifar og gefur út. Umsýslusviðið Stök námskeið er ætlað
fyrir vistun og umsýslu gagna vegna annars náms sem sam-
starfsaðilar FA standa að.
Skinna er gagnagrunnur sem mennta- og menningar-
málaráðuneytið fyrirhugar að taka í gagnið fyrir miðlæga
vistun allra gagna um formlegt og óformlegt nám einstak-
linga. Gögn sem eru vistuð í Námsnetinu/MySchool verður
hægt að flytja yfir í Skinnu.
Þrettán fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar og Félags-
málaskóli alþýðu sjá um nám samkvæmt námsskrám sem
FA skrifar og gefur út. Vegna þessa náms færa símenntunar-
miðstöðvarnar og Félagsmálaskóli alþýðu nemendabókhald
í Námsnetið/MySchool. Tíu símenntunarmiðstöðvar, Starfs-
mennt, IÐAN fræðslusetur og Fræðsluskrifstofa rafiðnaðarins
nota námsnetið í tengslum við skráningu og umsýslu gagna
um náms- og starfsráðgjöf.