Gátt - 2013, Side 116

Gátt - 2013, Side 116
116 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3 N Ý I R H Ó P A R Í F R A M H A L D S - F R Æ Ð S L U FA er ætlað að undirbúa aðkomu nýrra hópa að framhalds- fræðslu. Einkum er horft til fatlaðs og aldraðs fólks, öryrkja, innflytjenda utan vinnumarkaðar, notenda félagsþjónust- unnar og annarra þeirra sem standa utan vinnumarkaðar. Ekki er um stóra hópa að ræða, þar sem allur þorri fólks sem ekki hefur lokið framhaldsskóla er á vinnumarkaði eða í atvinnuleit og tilheyra því markhópi FA. Unnið hefur verið með Fjölmennt að vottun námsleiða fyrir skjólstæðinga þeirra og greiningu hæfniþrepa náms- leiðanna. Frekari útfærsla bíður þess að gæðaviðmið í fram- haldsfræðslu verði tilbúin. Endurskoðun námsskrárinnar Grunnmenntaskólinn tekur einnig til þess hóps sem er markhópur Fjölmenntar á grundvelli tilraunakennslu náms- skrárinnar á Vestfjörðum. Boðið var upp á kennslufræðinámskeið á Akureyri í sam- starfi við Fjölmennt fyrir kennara á símenntunarmiðstöðvum og í framhaldsskólum í kennslu fatlaðs fólks. Um er að ræða námskeiðið Stiklur 15, um kennslu fatlaðs fólks sem var haldið á Akureyri fyrir SÍMEY 27. nóvember. Jafnframt býðst kennurum Fjölmenntar að sækja öll kennslufræðinámskeið sem FA heldur í eigin húsakynnum. Að frumkvæði Fjölmenntar var í gangi samstarf á síðasta ári við að samþætta starfsemi Fjölmenntar, FA og Fræðslusjóðs. Fjölmennt sendi minnisblað til stjórna FA og Fræðslusjóðs í maí og vitnaði þar til minnisblaðs fram- kvæmdarstjóra beggja aðila frá 16. maí 2012. Leitaði stjórn Fjölmenntar staðfestingar á vilja FA og Fræðslusjóðs til sam- starfs. Báðir aðilar svöruðu jákvætt og var það staðfest í bréfi til Fjölmenntar 23. maí. Þann 18. júní barst bréf frá Fjölmennt þar sem fram kemur að Fjölmennt óskar eftir frestun við- ræðna um óákveðinn tíma, meðal annars vegna erfiðrar fjár- hagsstöðu stofnunarinnar og ákveðinnar andstöðu við hug- myndina. Málinu var vísað til nýrrar stjórnar sem yrði skipuð í ágúst 2013. N O R R Æ N T T E N G S L A N E T U M N Á M F U L L O R Ð I N N A ( N V L ) NVL (Norrænt tengslanet um nám fullorðinna) er verkefni starfrækt á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hlutaðist til um það að FA tæki að sér að vista NVL á Íslandi. Samningur um þetta verkefni er í gildi til loka ársins 2016 og er Sigrún Kristín Magnúsdóttir fulltrúi í tengslanetinu fyrir Íslands hönd. Á tímabilinu sept- ember 2012 til ágúst 2013 stóð FA, í samstarfi við NVL, fyrir nokkrum viðburðum sem lesa má nánar um í greininni Nor- rænt tengslanet um nám fullorðinna í Gátt. I P A - V E R K E F N I : Þ R Ó U N R A U N - F Æ R N I M A T S T I L A Ð E F L A S T A R F S - H Æ F N I F U L L O R Ð I N N A M E Ð L I T L A F O R M L E G A M E N N T U N FA fékk verkefnastyrk frá Evrópusambandinu, Instrument for Pre-Accession Assistance – IPA, í tengslum við aðildarum- sókn Íslands að sambandinu. Verkefnalýsingin var unnin í samráði við mennta- og menningarmálaráðuneytið, vel- ferðarráðuneytið og aðila vinnumarkaðarins ásamt fjár- málaráðuneyti og Sérfræðisetri í ævilangri náms- og starfs- ráðgjöf. Fræðslusjóður tryggir verkefninu það mótframlag sem Evrópusambandið fer fram á. Verkefnið hófst formlega 1. september 2012 og er til þriggja ára. Markmið verkefnisins er að auka starfshæfni fólks á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið námi á framhaldsskóla- stigi. Þessu markmiði verður náð með því að auka skilvirkni framhaldsfræðslunnar með áframhaldandi þróun raunfærni- mats og gagnagrunns um störf og nám. Starfsemi FA hefur beinst að þessum hópi, sem jafnframt er markhópur Fræðslu- sjóðs. Verkefnið fellur að markmiðum þjónustusamnings FA við mennta- og menningarmálaráðuneytið og er fjármagnað sérstaklega með þessum styrk. Nánari lýsing á verkefninu er í grein Fjólu Maríu Lárus- dóttur verkefnissjtóra annars staðar í Gátt. F J Á R M Ö G N U N F R Æ Ð S L U S J Ó Ð S Á F R A M H A L D S F R Æ Ð S L U Vottaðar námsleiðir Á árinu 2012 greiddi Fræðslusjóður tæplega 444 milljónir króna til framkvæmdar á vottuðum námsleiðum hjá sam- starfsaðilum sínum, sem á árinu 2012 voru 13 fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar. Vottað nám er skilgreint sem nám samkvæmt námsskrám sem hafa verið sérhannaðar fyrir fólk á vinnumarkaði sem ekki hefur lokið námi við framhalds- skóla og metnar hafa verið til eininga á framhaldsskólastigi. Fjöldi þátttakenda á árinu 2012 í vottuðum náms- leiðum sem Fræðslusjóður fjármagnar var 2.698 í 220 náms-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.