Gátt - 2013, Síða 121
121
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 1 3
SIGRÚN JÓHANNESDÓTTIR
K E N N S L U F R Æ Ð I M I Ð S T Ö Ð F A
Stöðug v ið le i tn i t i l að ef la gæði og auka árangur í fu l lorðinsfræðslu
Sigrún Jóhannesdóttir
Í þjónustusamningi FA við menntamálaráðuneytið er kveðið
á um að FA skuli þróa aðferðir í framhaldsfræðslu í sam-
vinnu við fræðsluaðila og miðla innlendum sem erlendum
nýjungum til fagfólks. Kennslufræðimiðstöð FA sinnir ofan-
greindum hluta þjónustusamningsins með námskeiðahaldi,
fræðslufundum, ráðgjöf og ýmsum öðrum leiðum. Sá hópur,
sem starfsemi kennslufræðimiðstöðvar FA snýr aðallega að,
er fræðslustarfsmenn sem sinna framhaldsfræðslu í símennt-
unarmiðstöðvum og kenna eftir þeim námsskrám sem þró-
aðar eru hjá FA en einnig þeir sem kenna og leiðbeina í fyrir-
tækjum og framhaldsskólum.
Frá árinu 2003 hefur FA byggt upp og þróað 20 mismun-
andi kennslufræðinámskeið fyrir fræðslustarfsmenn, kennara
og leiðbeinendur sem nefnast Stiklur. Námskeiðin eru á mis-
munandi sviðum með þarfir markhóps FA að leiðarljósi og í
samræmi við óskir og ábendingar samstarfsaðilanna. Einnig
hefur verið byggt upp gagnasafn um fullorðins- og fram-
haldsfræðslu, u.þ.b. 630 bækur og önnur gögn, og mótaðar
ýmsar aðferðir og mælistikur fyrir kennsluskipulag og náms-
efnisgerð. Þar að auki hafa verið hönnuð ýmis námsgögn
með Stiklunum svo sem glærusöfn, ýmiss konar myndefni og
tónlist. Frá árinu 2004 hafa alls verið haldin um 70 mislöng
kennslufræðinámskeið og fræðslufundir fyrir fræðslustarfs-
menn og leiðbeinendur, samtals 13.066 nemendastundir og
1.233 nemendur. (Staðan 1. september 2013).
Starfsmenn fræðslumiðstöðvarinnar hafa einnig tekið
þátt í ýmsum þróunarverkefnum í samstarfi við aðrar þjóðir.
Sem dæmi um þróunarverkefni, sem tengist kennslufræði-
miðstöð og unnið er að á þessu ári, má nefna verkefnið
„RETRAIN“. Það er verkefni sem er styrkt af Leonardó,
menntaáætlun Evrópusambandsins og unnið í samvinnu við
Íra og Austurríkismenn. Markmið þess er að hanna sérstakt
kennslufræðinám fyrir starfsþjálfa í verslunum. Verkefninu
er stýrt af Rannsóknasetri verslunarinnar og Háskólanum á
Bifröst. Stefnt er að því að aðlaga hluta Stiklunámskeiða að
kennslufræðum starfsfræðslu og verkþjálfunar í verslunum.
Annað kennslufræðilegt verkefni, sem FA tekur þátt í
núna, nefnist „Coach coach go“. Það verkefni er styrkt af
Grundtvig, menntaáætlun Evrópusambandsins, stýrt af
Belgum og er unnið í samvinnu við
Svía, Þjóðverja, og Ítali. Markmið
þess er að finna leiðir til að nýta
aðferðir markþjálfunar inn í full-
orðinsfræðslu og starfsþjálfun.
Markhópur FA er margþættur
og hluti markhópsins er fólk sem
ekki hefur náð nægilegri grunnleikni
til að eiga auðvelt með nám og
störf. Til að þróa aðferðir sem styðja
við þann hóp hefur FA í nokkur ár
tekið þátt í evrópsku tengslaneti um
grunnleikni, European Basic Skills
Network. Sú vinna hefur skilað sér
inn í Stiklunámskeið um læsis- og ritunarvanda og stærð-
fræðikennslu (Stiklur 12 og 13).
Verkefni um þróun kennslufræði í FA á næstu árum munu
mótast af töluverðum breytingum á vinnumarkaði, á mark-
hópnum og á áherslum í kennslufræðum. Vinnumarkaðurinn
gerir sífellt meiri kröfur um menntun og þjálfun í störfum,
yngra fólk í markhópi vill annars konar nálgun í námi en þeir
sem eldri eru og kennslufræðin breytist í samræmi við það.
Stiklunemendur úr Brunamálaskólanum, námskeið haldið á Akureyri haustið 2013.