Læknaneminn - 01.12.1974, Blaðsíða 25
hef ég ekki séð meðferð fyrir aðgerð nema í þeim
tilvikum, sem ég stakk upp á því. Meðferð eftir að-
gerð er ekki hafin nema sjúklingur fái skyndilega
vaxandi sótthita, eða slím heyrist greinilega. Sjúkra-
þjálfarinn fær oftast engar upplýsingar um hvar í
lunganu íferðin er, eða hvort röntgenmynd hefur
verið tekin. Tilmælin hljóma stutt og laggott:
Lungnabank. Sjúkraþjálfarinn meðhöndlar sjúkling-
inn 2-3 á dag, en fær ekkert álit ffeed-hack) frá
læknunum um meðferðina. Ég ætla, að koma hefði
mált í veg fyrir marga lungnabólguna, sem ég hef
séð í starfi mínu, ef lungnaterapíunni hefði verið
beitt af ögn meiri fyrirhyggju.
Núverandi ástand er ekki aðeins misnotkun á
sjúkraþjálfaranum heldur einnig, að minni hyggju,
sóun á kröftum sjúklingsins. Það er léleg meðferð.
inn er miðdepillinn.
Góð meðferð er því aðeins möguleg, að allir sem
hlut eiga að, sameinist um sjúklinginn. Sjúklingur-
Ef til vill er þetta, sem fyrr er rakið, að nokkru
orsök þess mikla skorts, sem er á sjúkraþjálfurum á
íslandi. Enn er enginn skóli fyrir sjúkraþjálfun, en
þegar hann kemur, mun kennslan sjálfsagt að hluta
fara fram á Landsspítalanum - hann er jú kennslu-
spítali. En ef áhuginn á að gera sjúkraþjálfarann að
raunverulegum hlekk í spítalastarfinu eykst ekki,
held ég, að erfitt verði að fá verðandi sjúkraþjálfara
til að húa áfram á Islandi. Það hlýtur að vera þeim
og ekki síður verðandi læknum stórt verkefni að
reyna að fá sjúkraþjálfarana með í meðferð sjúkl-
ingsins, á jafnréttisgrundvelli við annað sérmennt-
að starfslið. Bezt er, að samvinnan hefjist þegar á
námstímanum.
21
læknaneminn