Læknaneminn - 01.12.1974, Blaðsíða 18
En þaS er af sem áður var. Upp úr kreppunni um
1930 þegar miðborgarhúsin voru orðin gömul og
ódýr í leigu fluttu þar inn svertingjar og annaS efna-
minna fólk.
LöghlýSni tók aS minnka eins og vill verSa í fá-
tækrahverfum og lífshættir færSust á lægra stig. Var
þá tekiS til þess ráSs aS rífa öll þessi gömlu hús og
byggja svæðiS upp með köldum steingörðum, gos-
brunnum og stórum skrifstofubyggingum. FærSust
þeir dökku í austur, upp með og umhverfis Euclid-
götu, þar sem heitir Austur-Cleveland. Þar voru í
kringum 1960 ca. 90% íbúanna hvítir, en nú 1974
95% svartir og margfalt fleiri en þeir hvítu voru
áður.
Margir búa í húsum sem Rockefellarnir reistu á
fyrstu áratugum þessarar aldar og voru þá ætluS
efnameiri fjölskyldum. HreinlætisaðstaSa er að
verða léleg og húsin láta á sjá. Nokkur fræg svert-
ingjafélög eiga uppruna sinn á þessu svæði.
Euclid er nú ein alræmdasla gata Bandaríkjanna.
Glæpir, rán, árásir og fleira hlómstra þar og menn
lítt hultir þar um slóðir. Nú er verið að byggja upp
Austur-Cleveland á sama hátt og miðborgina áður,
með stórum háskólum, háskólahverfum og sjúkra-
húsum. Svertingjum fjölgar og þeir smá nálgast út-
borgirnar á breiðri framlínu og þeir hvítu hörfa.
Hús snarfalla í verði ef spyrst til þeirra dökku í
hálfrar mílu fjarlægð. ÞaS sem eftir situr eru al-
menningsstofnanir, skólar og sjúkrahús, sem verSa
að laga sig eftir breyttum aSstæðum.
Sjúhrahúsið
Huron Röad Hospital er staðsettur á mörkum
borgarhlutanna Austur-Cleveland og Euclid. Huron
Road er reyndar gata í vesturhluta Cleveland, en
nafnið var látið halda sér er stofnunin flutti þaðan
um aldamótin síðustu. Spítalinn hélt sitt 100 ára af-
mæli nú í ár. I H.R.H. eru um 460 rúm og um 12
þús. innlagnir á ári. 24 þús. sjúklingar koma á slysa-
varðstofuna og um 12 þús. koma á göngudeild hvert
ár.
MeSal legutími á skurðdeild er um 10 dagar, en á
lyflæknisdeild heldur fleiri. 150 sjúklingar liggja aS
meðaltali á skurðlæknisdeild í einu og hvern dag eru
aS meðaltali 14 innlagnir. H.R.H., sem er einn af
elztu spítölum í Cleveland, er viðurkenndur kennslu-
spítali, en þó ekki tengdur háskóla. Þetta veldur aft-
ur því að jseir fá ekki bandaríska kandídata til
vinnu. Enda mun hagstæðara aS rótera í sérnámi
milli stórra spítala tengda háskólum, en húka alltaf
á sama stað.
Þetta orsakar aftur að nær allir kandídatar og að-
stoðarlæknar (interns og residents) eru útlendir, þ-
e. a. s. frá Kóreu, Filipseyjum, Kína, Indlandi, Jór-
daníu, Sýrlandi, Tyrklandi, Argentínu, Perú, Guate-
mala og fleiri löndum, og voru þeir um 60 að tölu
plús einn eða tveir bandarískir. Kaup þeirra er eins
og gengur og gerist í sérnámi þar í landi, 10-12 þús.
dollarar á ári, hálfsmánaðar frí og borguSu sjálfir
fæði og húsnæði. Vinnan er mikil og mikils krafist
af þeim.
Við spítalann voru um 200 „attending physi-
cians“, þ. e. a. s. lögðu inn á spítalann sjúklinga sína
og sáu um aðgerðir eða aðra meðhöndlun. Þeir
voru að vísu mjög misstarfsamir enda höfðu margir
marga spítala til sinna innlagna. H.R.H. hefur breytt
mjög rekstri sínum á nokkrum árum enda hafa inn-
liggjandi sjúklingar breytzt mikið, frá 100% hvít-
um yfir í 60% svartra.
Þannig hefur nú verið byggt við gamla spítalann
allstór slysavarðstofa og göngudeild, sem þjónar
hlutverki heimilislækna. Þeir eru nú nær engir í
16
LÆKNANEMINN