Læknaneminn - 01.12.1974, Blaðsíða 52
b) Raunveruleg psykosa.
Weil segir, að þetta fólk haldi
sig frá kannabis eftir að hafa
reynt það.
Onnur flokkun hefur komið
fram samkvæmt reynslunni í lönd-
um þar sem kannabis hefur verið
notað í aldir. Þar ber meira á
æðisköstum. Hún getur e. t. v.
verið afleiðing lélegs heilbrigðis-
eftirlits í þessum löndum, þar sem
aðeins sé tekið eftir mest áberandi
aukaverkunum.
Þar sem kannabis getur valdið
breyttri skynjun á umhverfinu
hefur verið talið, að neysla þess
gæti valdið hættum í umferðinni.
Við tilraunir komu hins vegar
fram niðurstöður sem bentu til
þess, að hún hefði lítil áhrif á
akstursöryggið. Sumir neytendur
stóðu sig jafnvel betur í einföld-
um prófum undir áhrifum kanna-
bis, en þeir sem ekki voru í vímu.
En þegar prófin urðu flóknari og
stóðu lengur versnaði frammi-
staða kannabisneytenda hlutfalls-
lega, en það var breytilegt eftir
einstaklingum.
Kannabis hefur haft orð á sér
sem aphrodisiac, þar sem aukin
ánægja getur fengist af kynlífi
undir áhrifum þess. Líklega losar
kannabis um hömlur og örvar
þannig framtakssemi og veldur
því að nautnin skynjast meiri.
Það er athyglisvert, að við til-
raun í rannsóknarstofu þar sem
„potheads“ fengu annað hvort
hreint saltvatn eða alkóhól í æð
og annað hvort „reefer“ með
hreinu marjúana eða „reefer“
þar sem THC var ekstraherað úr
að reykja, gekk þeim mjög illa
(og var oft á tíðum lífsins ómögu-
legt) að greina milli áhrifa THC
og etanóls (Snyder).
Óneitanlega bendir ýmislegt til
þess að mörg „áhrif“ kannabis
stafi af sefjun frá umhverfinu. Ef
svo er, skýrir það hina miklu
þörf fyrir kúltúr kringum neysl-
una hjá flestum þeirra sem neyta
efnisins að staðaldri.
Elutjsanletiur
verleunarmáti kannahis
Reynt hefur verið að skýra
geðræna verkun kannabis, þann-
ig að fjarlægt sé takmarkandi
„hlið“ eða „loka“ á flæði upplýs-
inga frá skynfærum og á þann
hátt hleypt inn „flóði áhrifa“
(Paton). Talið er, að tímaskynið
byggist á tíðni skynjunaráhrifa
og aukið flæði þeirra muni þess
vegna stuðla að þeirri tilfinningu,
að tíminn sé lengur að líða.
Minni felur í sér a. m.k. 3 ferla,
fyrst fer upplýsing í „skynjunar-
skráningu“ og þaðan í „skamm-
tímageymslu“, síðan í upprifjun,
meðvitaða eða ómeðvitaða, sem
Ieiðir til styrkingar og flutnings í
,langtímageymslu“ og loks kem-
ur endurupprifjun. Það virðist
sem endurupprifjun sé ekki skert
af kannabis og innkoma virðist
eðlileg, en vitað er að umbreyt-
ing skammtímaminnis í langtíma-
minni er trufluð af auknu flæði
upplýsinga frá skynfærum og á
sama hátt er líklegt, að kannabis
trufli styrkingu nýlegra upplýs-
inga. Þar sem minnið er skert,
verður einbeitingin áhrifaminni.
Þetta allt hefur í för með sér, að
athyglinni er beint meira að nú-
tíðinni á kostnað fortíðar og
framtiðar. Sú kenning hefur kom-
ið fram, að þetta sé aðalverkun
kannabis og öll önnur áhrif stafi
af því, að reynslan sé einangruð í
nútíðinni. Þessi áhrif á minnið
skýra e. t. v. það, hvers vegna
kannabisneytandi undir áhrifum
man stundum ekki upphaf setn-
ingarinnar sem hann er að segja,
eða man ekki hvernig hann ætlaði
að ljúka henni. Honum tekst yf-
irleitt að bæta fyrir þetta með því
að slá öllu upp í kæruleysi og fá
þannig aukna sjálfsstjórn.
ICannahis setn ligf
Kannabis hefur verið notað til
lækninga í Austurlöndum í árþús-
undir og það var einnig notað hér
á Vesturlöndum um og eftir síð-
ustu aldamót, fyrst og fremst sem
verkjalyf. Síðan dró úr notkun-
inni þegar syntetisk verkjalyf
komu á markaðinn. Upp á síð-
kastið hefur áhuginn á efninu
sem lyfi vaknaði aftur og ítarleg-
ar rannsóknir verið gerðar sem
enn standa yfir um notkun kanna-
bis gegn jafn ólíkum sjúkdómum
og einkennum, svo sem angina-
pectoris, asthma bronchiale og
alkóhólisma. Nýlega hefur verið
nokkur áhugi í Austur-Evrópu á
kannabis sem sýklalyfi (Laurie).
Það er sagt vera virkt gegn gram-
pósitivum bakteríum í styrkleik-
anum 1/100000. Þar sem það er
óvirkt í blóði virðast not þess
takmörkuð við háls, nef og eyru.
Kannahis «« þjnðífélffitjið
Menn hljóta að velta því fyrir
sér hvað valdi því að stór hópur
ungs fólks hefur á síðustu árum
séð ástæðu til að neyta hins ólög-
lega vímugjafa, kannabis. Hér
42
LÆKNANEMINN