Læknaneminn - 01.12.1974, Blaðsíða 44
Kannabis
Halldór 3ónsson lœknanemi
Cannabis sativa hampjurtin vex sums staðar villt í Bandaríkjunum.
Innguntfur
ÞaS er mögulegt, að kannabis
sé mest notaða ávana- og fíkni-
efnið í heiminum í dag. Það er
því eðlilegt, að það sé mikið um
það rætt.
Þessari grein er ætlað að skýra
frá helstu atriðum, sem þekkt eru
um kannabis, en af eðlilegum á-
stæðum er stiklað á stóru.
Uppruni
of/ sainsetninfiur
Kannabis er fengið úr ind-
versku hampjurtinni Cannabis sa-
tiva, sem er einær jurt og vex í
heittempruðu loftslagi. Hún er
tvíkynja og víða var talið, að
virku efnin væru aðeins í kven-
jurtinni, en fyrir nokkrum árum
kom í Ijós, að bæði kynin inni-
halda sama magn af þeim (Sny-
der). Hún vex villt í Ameríku,
Asíu og Afríku og getur vaxið í
Norður-Evrópu, en vegna skorts
á sólarljósi þar inniheldur hún
lítið af virkum efnum. Mest er út-
breiðslan í Afríku, Suðaustur-
Asíu og Suður-Ameríku.
Meðal nafna sem notuð eru yfir
kannabis í hinum ýmsu heimsálf-
um má nefna hass, hassiss, mari-
júana, bhang, ganja, dagga, kif
og charas. Meðal slangyrða á
Vesturlöndum má nefna pot,
grass, shit, hay, weed, tea og
Mary Jane. Skipta má samsetn-
ingum í þrjá flokka, en hér á
landi eru aðeins tvær samsetning-
ar þekktar. Marijúana er amer-
ískt heiti á þurrkuðum blóm- eða
aldinklasa og fellur í veikasta
38
LÆKNANEMINN