Læknaneminn - 01.03.1980, Blaðsíða 19
þrýstings og minna bakflæðís, en óhljóðið vegna lek-
ans á púlmónallokunni eykst vegna aukins innflæð-
is til hægri hluta hjarta.
Ohljóð yfir apex við mítrallokuþrengsli líkist ó-
hijóði við leka á aortaloku (Austin-Flint murmur).
Við amyl nitrit eykst flæði um mítrallokuna vegna
aukins innflæðis. Auk þess lækkar díastólískur þrýst-
ingur í vinstri ventriculus þannig að þrýstingsfall
um mítrallokuna eykst og óhljóðið eykst. Hið gagn-
stæða á sér stað við Austin-Flint óhljóðið. I þessum
tilvikum hefur phenylephrine gagnstæð áhrif. Varð-
andi frekari notkun lyfja til að breyta hjartaóhljóð-
um vísa ég til heimildaskrár.
Hér að framan hef ég reynt að gera grein fyrir
eðli, uppruna og merkingu hjartahljóða. Þessi rit-
smíð er langt frá því að vera tæmandi en þó er
fjallað um öll helstu óhljóð. Eg hef sleppt sjaldgæf-
ari óhljóðum og afbrigðum af algengari óhljóðum,
svo og mörgum óhljóðum við meðfædda hjartasjúk-
dóma. Nánari vitneskju geta lesendur fengið í bók-
um þeim og ritgerðum, sem talin eru fram í heim-
ildaskrá.
TAFLA 1
Ahrif lyfja á algengustu hjartaóhljóð
Sýstolísk óhtjóð Amyl nitrite Phenylephrine
Starfrænt óhljóð Eykst Minnkar
Stenosis valv. pulm. Eykst Breytist ekki
Stenosis valv. aortae Eykst Minnkar
IHSS Eykst Minnkar
Insuff. val. mitralis Minnkar Eykst
Díastolísk óhljóð
Insuff. valv. aortae Minnkar Eykst
Austin Flint óhljóð Minnkar Eykst
Stenosis valv. mitralis Eykst Minnkar
HEIMILDIR:
1. Snorri P. Snorrason: Hjartahlustun, Læknaneminn 1. tbl.
15. árg., mars 1962.
2. Leonard J. J., Kroetz, F. W.: Examination of the Heart.
Part Four. Auscultation. American Heart Association. Pu-
blication 1974.
3. Wayne, II. H.: Noninvasive Technics in Cardiology. Year
Book Medical Publishers, 1973.
4. Physiologic Principles of Heart Sounds and Murmurs.
American Heart Association Monograph nr. 46, 1975.
5. Leon, A. C., Ilarvey, W. P.: Pharmocological Agents and
Auscultation, Modern Concepts of Cardiovascular Disease,
May 1975.
6. Tavel, M. E.: Clinical Phonocardiography and External
Pulse Recordings. Year Book Medical Publishers. 1978.
7. Constant, J.: Bedside Cardiology: Little, Brown and Com-
pany 1976.
8. Braunwald, E.: Heart Disease. Saunders 1980.
ORÐSENDING
Kæri áskrifandi!
í Ijósi þess hve áskrifendur
Læknanemans hafa tíð aðset-
ursskipíi eru þeir eindregið
hvaítir til að tilkynna þau strax.
Áskrifendur eru einnig hvattir
íil að greiða gíróseðla strax og
þeir berast, til þess að hægt
sé að halda spjaldskránni í
horfinu, annars fellur áskriftin
út sjálfkrafa.
Virði ngarfyllst,
Dreifingarstjóri.
Dreifingarstjóri Læknanemans,
Félagsstofnun stúdenta
v/ Hringbraut, 101 Reykjavík.
læknaneminn
17