Læknaneminn - 01.03.1980, Side 33
Skdkmót lœknadeildar 1980
Guðmundur J. Elíasson stud. med.
Mánudaginn 10. marz 1980 var haldið hið árlega
skákmót læknadeildar. Mótið var haldið í stofu 301
í Arnagarði, þar sem keppnisaðstaða er hin bezta.
Frá hverju ári voru 8 skákmenn í liði og tefldi hver
maður tvær fimm mínútna skákir við andstæðing
sinn af hinum árunum. Þannig gat hver sveit fengið
mest 16 vinninga eftir hverja umferð, og minnst
auðvitað engan vinning. Sú sveit, sem eftir allar
umferðirnar hafði flesta vinninga, taldist því sigur-
vegari.
Skákkeppnin var að þessu sinni geysilega hörð og
stundum tvísýn. Þeir fáu áhorfendur og skákaðdá-
endur, sem kornu til að fylgjast með keppninni,
fengu mikið fyrir ómak sitt, nefnilega spennandi og
taugatrekkjandi kvöldskemmtun. — Á mótinu voru
harðar sviptingar, áhorfendur sáu til skiptis rauðan
og sveittan, fagnandi sigurvegara, og niðurbrotinn,
gráan og gugginn andstæðing hans. Sumir reyndu
að fela mestu sigurgleðina og brostu máske bara út
í annað munnvikið, og aðrir reyndu að dylja von-
brigði sín eftir tapaða skák.
Undirbúningur liðanna var að vonum mjög mis-
Harðar sviptingar.
Sigurvegarar aj 4. ári.
jafn. Oruggar beimildir herma, að a.m.k. sumar
sveitirnar hafi stundað stífar æfingar fyrir mótið
og ætlað sér stóra hluti. Vonbrigði þeirra, sem biðu
lægri hlut, voru því sár, en ánægja sigurvegaranna
að sama skapi meiri.
Um gang keppninnar er helzt að segja, að eftir
tvær umferðir hafði 4. árið tekið 4 vinninga for-
skot á 6. árið. Eftir 4. og næstsíðustu umferð, hafði
4. árið enn sama forskotið, þannig að úrslitin réðust
í síðustu umferð, sem varð þess vegna geysispenn-
ar.di. í lokaumferðinni fékk 6. árið 14 vinninga, en
4. árið 10^2 vinning. Fjórða árs menn höfðu þann-
ig sigrað á mótinu með % vinningi og 6. árið í 2.
sæti! Um einstök úrslit vísast til meðfylgjandi töflu,
svo og um beztan árangur einstaklinga á hverju
borði.
Vonbrigði 6. ársins voru mikil, þeir ætluðu sann-
arlega að kveðja deildina með sigri í skákmótinu,
en máttu þola svo naumt tap. Gárungarnir létu þó
þau orð falla, eftir að úrslitin voru ráðin, að 4. árið
hafi sigrað með % vinningi af eintómum skepnu-
skap til að skaprauna þeim sjötta árs mönnum. And-
legir yfirburðir 4. ársins verða varla dregnir í efa.
læknaneminn
31