Læknaneminn - 01.03.1980, Síða 58
1. ár Sigríður Dóra Magnúsdóttir
2. ár Eiríkur Jónsson
3. ár Jón Jóhannes Jónsson
4. ár Asgeir Haraldsson
5. ár Hannes Stephensen
6. ár Sigurður Orn Hektorsson.
Verður nú fjallað um nokkur helstu mál er fyrir
kennslunefnd komu:
1) Endurskoðun náms í lœknadeild
Starfandi hafa verið tvær nefndir til að endur-
skoða námið í deildinni, ein fyrir 1.-3. ár og ein
fyrir 4.-6. ár. Endanlegar tillögur liggja ekki íyrir,
en sl. haust komu niðurstöður nefndar fyrir 4.-6. ár
er lagði m.a. til að kennsla í lyflæknis- og handlækn-
isfræði yrði á 4. og 5. ári og lyki með prófum í lok
5. árs. Á 6. ári yrði kennt barnalæknis-, geðlæknis-,
kvensjúkdóma- og fæðingarfræði ásamt „smá“
greinunum, sem nú eru kenndar á 6. ári. Var málið
síðan sett í aðra nefnd og hefur í henni komið fram
mikil gagnrýni á þessa hugmynd og kennarar í hand-
læknis- og lyflæknisfræði hafa sett sig upp á móti
þessari breytingu. Vandséð er því hvaða stefnu mál-
ið kann að taka, en hér er um mjög mikilvægt mál
að ræða, sem þarf að vanda vel til, en einnig flýta
eftir mætti. Sárlega hefur vantað í þessar umræður
að tekið hafi verið tillit til náms í nágrannalöndun-
um þar sem skipulagning náms er að mörgu leyti
til fyrirmyndar. Hafa umræður um þessi mál verið
á mjög misháum plönum.
2) Fílumálið
Fyrir því máli er gerð grein annars staðar í þess-
ari skýrslu, en mikil umræða varð um mál þetta í
kennslunefnd og héldu allir stóiskri ró í þeim um-
ræðum.
3) Þorkell Jóhannesson
Þorkell Jóhannesson prófessor í lyfja- og eilur-
efnafræði hefur yfirleitt ekki farið troðnar slóðir
við gerð og mat prófa og sl. vor bryddaði hann upp
52
LÆ KNANEMINN