Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
Í bernskuminni mínu, líklega fyrir
1970, er minning vonar og ótta. Þá
hafði pabbi, við annan mann, farið
á sjó á tveggja tonna trillu að hausti
að vitja haukalóðar (línu) sem gaf
von um skötu og lúðu.
Þeir ætluðu að skjótast milli lægða
að vitja um og reiknuðu með að koma
aftur um hádegið. Brælan var fyrr
á ferðinni og ekkert sást til þeirra í
hádeginu. Þeir voru án björgunarbáts,
talstöðvar og síma. Engin leið var að
vita hvernig gengi eða hvort allt væri í
lagi. Ég sat límdur við gluggann, milli
vonar og ótta. Undir síðdegiskaffið
var sjórinn orðinn ískyggilegur, en
viti menn, birtist ekki smáskektan,
inn á milli öldutoppa og smábrota á
landleið. Það var glaður lítill hnokki
sem tók sprettinn niður á bryggju að
fagna pabba sínum. Pabbinn var ekki
síður glaður að fá að taka strákinn sinn
í fangið aftur. En það hafa ekki alltaf
allir verið jafn heppnir og glaðir.
Sjómennska var saga sjóslysa
Saga Íslendinga er að hluta til saga
sjóslysa. Frá upphafi sjómannadagsins
í Vestmannaeyjum árið 1944 hafa
rúmlega 1.100 sjómenn farist. Það er
því ekki að undra að sjómannadagurinn
er dagur sorgar og söknuðar ekki síður
en gleði sjómanna og fjölskyldna þeirra.
Í Vestmannaeyjum er ávallt haldin
messa til minningar um drukknaða
sjómenn þar sem minning þeirra er
heiðruð í sérstakri athöfn. Í ár var
einnig afhjúpaður í Vestmannaeyjum
minnisvarði um drukknaða frá árinu
1227. Alls höfðu 502 drukknað frá
þeim tíma, langflestir sjómenn.
Forvarnir og færri slys
Slysavarnaskóli sjómanna var
stofnaður árið 1985. Við fengum
Hilmar Snorrason, skólastjóra skólans,
til að fara yfir þróun slysa á sjó og
hvers vegna þeim hefur fækkað.
„Þetta var hrikalegt hér á árum áður.
Þegar ég var að alast upp og man eftir
mér, um og upp úr 1970, og fór síðar
á sjó sem unglingur, þá voru forsíður
blaðanna oft með myndum af mönnum
sem höfðu farist á sjó. Heilu og hálfu
áhafnirnar. Þarna voru fjölskyldur að
missa ástvini sína og börn feður sína.
Stundum fórst fjöldi manna úr sömu
byggð. Þetta var hreinlega skálmöld.
En þetta er allt að breytast sem betur
fer,“ segir Hilmar.
Margt hefur breyst á undanförnum
árum. Skip eru betri en áður, þau eru
stærri og tæknivæddari, hafa betri
siglingatæki og aðbúnað sjómanna. En
það eru fyrst og fremst nýrri skipin.
Svo hafa veðurspár batnað, sjósókn
er ekki eins kappsfull því meginhluta
fiskveiða Íslendinga er stýrt með
kvótakerfi þar sem hvert skip eða
fyrirtæki er með ákveðinn kvóta og
því ekki ástæða til að róa í vondum
veðrum eða veðurútliti. En það er ekki
bara að menn hugi að aðstæðum og
aðbúnaði um borð í skipum. Við þetta
bætast tilkynningarskylda sjómanna
sem nú er orðin sjálfvirk, öflugri
björgunartæki Landhelgisgæslunnar
og fleira. Allt þetta hefur haft jákvæð
áhrif til fækkunar sjóslysa. En hvert
er mat Hilmars á að sjóslysum hafi
fækkað? „Það eru margar ástæður
fyrir því,“ segir Hilmar. „Frá stofnun
skólans er það fyrst og fremst
öryggisfræðsla. Öryggisbúnaður sem
var sjaldan notaður er nú notaður,
eins og öryggishjálmar, öryggisvesti,
líflínur og fleira. Menn eru farnir að
nota þetta við vinnu um borð í skipum.
Þetta hefur leitt af sér fækkun slysa um
borð í skipum. En allt byggir þetta á
hugarfari sjómannsins og stjórnenda
skipanna. Menn verða að vera vakandi
fyrir umhverfi sínu í vinnunni og hafa
rétt hugarfar. Það skiptir mestu máli.“
Hver er ábyrgð eigenda
og útgerða skipanna?
En hvað með eigendur og
útgerðarmenn? Hvernig hafa þeir
staðið sig? „Ég hef alltaf verið þeirrar
skoðunar að útgerðarmenn eiga að vera
harðir þegar kemur að öryggismálum
og það á að gera kröfur til þess að
öryggismál séu í lagi. Það er skylda
að halda æfingar, það er skylda að vera
með áhættumat og það er skylda að vera
með öryggisnefnd í vissum stærðum
skipa. Allt er þetta liður í forvörnum
um borð. Menn munu ekki ná niður
slysatíðni nema með forvörnum. Þess
vegna eiga útgerðarmenn að vera
harðir við sína menn á sjó,“ segir
Hilmar. ,,Það stendur hvergi í lögum
að sjómenn eigi að fiska en það stendur
í lögum að menn skuli halda æfingar.“
Með stærri og aflmeiri skipum
verður allt stærra og þyngra. Þegar
eitthvað fer úrskeiðis þá verður hættan
mun meiri heldur en á minni bátum.
Nætur sem verið er að snurpa í dag
eru gríðarstórar og þungar og dregnar
af aflmiklum spilum en í árdaga voru
þær dregnar á höndum. Það leiðir
að sjálfsögðu til þess að sjómenn
verða að meta vinnustaðinn sinn með
gagnrýnum hætti. Áhöfn hvers skips
þarf því að vera samhæfð og æfð. Slys
verða oftast vegna þess að einhver var
að gera það sem hann átti ekki að gera.
Yfirvegun og skynsamar ákvarðanir
skipta miklu nú í sjómennsku en ekki
djöfulgangur og að rjúka í verkin með
böðulsskap eins og áður var.
Hvíldartími sjómanna
Vökur sjómanna voru þekktar og hér á
árum áður voru vökulög sett sem kváðu
á um lágmarkshvíld sjómanna. Nú eru
skipin betri, eins og áður sagði, og
vinnan ekki eins líkamlega erfið, þótt
auðvitað geti hún verið það í mörgum
tilfellum, en eru menn þá ekki betur í
stakk búnir til að takast á við verkefni
dagsins?
„Auðvitað er þetta miklu betra, en
það er ekki alveg allt í góðu lagi þar,“
segir Hilmar. „Menn hafa vissulega
betri aðbúnað, eru einir í klefa, jafnvel
með sérstakt baðherbergi og sturtu fyrir
sig, og internettengingu inni í sínum
klefa, þá er ekki öll sagan sögð. Menn
verða að hugsa líka um sjálfan sig.
Það gengur ekki að nota hvíldartíma
sinn til að hanga á netinu til að horfa
á bíómyndir í klefanum eða vera á
spjallrásum samfélagsmiðla og sofa
svo 2–3 tíma og koma örþreyttir til
vinnu. Það gengur auðvitað ekki. Við
tókum það saman hjá rannsóknarnefnd
samgönguslysa að algengasta ástæða
stranda skipa var að skipstjórnendur
höfðu verið vakandi allt að sólarhring
og upp í tvo og sofnuðu svo allt í einu.“
Launajafnrétti, fjölmenning
og framtíðin
Með fjölgun útlendinga um borð
í skipum er augljóst að samskipti
verða kannski ekki jafn auðveld og
áður. Skipulag skiptir augljóslega öllu
þegar hættu ber að höndum. Hvernig
er það, getur þetta ekki haft áhrif? „Jú,
útlendingar eru margir hörkugóðir
sjómenn. En samskiptin og samhæfing
þarf að vera í lagi. Það er ekki bara
dagsdaglega vinnan sem skiptir máli,
heldur líka hvað gerist þegar neyðin
kemur upp. Áhöfn er einfaldlega eitt
lið. Því skiptir skipulag, samhæfing
og æfing kannski enn meira máli en
áður,“ segir Hilmar en bætir svo við
um framtíðina: „Sjómennskan í dag
er orðin hátæknistarf með tilkomu
allrar þeirrar tækni sem er um borð í
skipunum. Hún er að verða allt öðruvísi
en hún var.
Okkur vantar ungt fólk með
tækniþekkingu til sjós og konur
líka. Það má ekki gera lítið úr því að
það er launajafnrétti til sjós. Þar eru
allir á jöfnum hlut, hvort heldur það
eru karlar eða konur og hefur alltaf
verið. Okkur hefur ekki auðnast það
að auka hlut kvenna í sjómennsku,
því miður. Konur eru lagnari við
tæki en karlar og því er engin ástæða
til annars en að hvetja þær til að ráða
sig til sjós. Við verðum að gefa þeim
tækifæri í framtíðinni.“
Sigurgeir B. Kristgeirsson
binni@vsv.is
NYTJAR HAFSINS
SeaRanger og Rescue Runner
eru trúlega ein mögnuðustu björgunartæki
sem í boði eru í dag.
Getum boðið nýja báta á góðu verði.
Leitið tilboða hjá okkur.
Svansson ehf, Melabraut 19, 220 Hafnarfjörður
Sími 697 4900, Netfang : sala@svansson.is
Svanson ehf
Öryggismál sjómanna
– „Okkur vantar konur til sjós“, segir Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna
Magnús Ríkarðsson skipstjóri, til vinstri, og Hilmar Snorrason, skólastjóri
Slysavarnaskóla sjómanna, til hægri. Hér eru þeir við afhjúpun minnisvarða
um drukknaða í Vestmannaeyjum á sjómannadaginn um liðna helgi.
Loðnuveiðar um vetur. Sjómennskan í dag er orðin hátæknistarf með tilkomu allrar þeirrar tækni sem er um borð
í skipunum. Mynd / Þráinn Kolbeinsson