Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
LESENDARÝNI
Fráfarandi stjórn Hampfélagsins fer yfir farinn veg
Fráfarandi stjórn Hampfélagsins. Frá vinstri: Logi Unnarson Jónsson,
Oddný Anna Björnsdóttir, Þórunn Þórs Jónsdóttir, Gísli Ragnar Bjarnason
og Sigurður Hólmar Jóhannesson.
Nemendur í Hallormsstaðaskóla tína hamp í Gautavík á námskeiðinu Sjálfbærnilausnir úr iðnaðarhampi. Hampinn
nýttu þau í fjölbreytt þróunarverkefni um veturinn. Myndir / Aðsendar
Á aðalfundi Hampfélagsins þann
28. maí sl. komu sex nýir ein-
staklingar inn í stjórn sem nú er
skipuð sjö stjórnarmönnum í stað
fjögurra.
Sigurður Hólmar Jóhannesson,
sem hefur verið formaður frá
stofnun, Oddný Anna Björnsdóttir
og Logi Unnarson Jónsson
gáfu ekki kost á sér til áfram-
haldandi stjórnarsetu því þau töldu
mikilvægt, eftir tæplega fjögurra
ára baráttu, að nýtt fólk með nýjar
hugmyndir og eldmóð kæmist að og
tæki næstu skref.
Þórunn Þórs Jónsdóttir, sem hefur
verið varaformaður frá stofnun, mun
halda áfram í nýrri stjórn og bæði
Sigurður og Oddný verða nýrri
stjórn innan handar í nýstofnuðu
ráðgjafaráði Hampfélagsins. Ný
stjórn mun funda á næstunni og
skipta með sér verkum.
Hampfélagið hefur verið
óþreytandi við að fræða
þjóðina um notagildi hampsins,
bæði í fjölmiðlum og á
samfélagsmiðlum, fundum með
stjórnmála- og embættismönnum
og fulltrúum félagasamtaka, en
einnig með stuðningi við gerð
heimildarmyndarinnar Græna
Byltingin – hampur á Íslandi; að
ógleymdri ráðstefnunni Hampur til
framtíðar, haustið 2019, sem var
einstaklega vel sótt og má segja
að hafi hleypt félaginu formlega af
stokkunum.
Stærstu sigrarnir voru þegar
reglugerð var breytt vorið 2020 og
svo lögum 2021 sem tók af allan
vafa að löglegt væri að flytja inn
hampfræ af sáðvörulista ESB á
sama hátt og önnur lögleg fræ sem
skilgreind eru sem sáðvara, rækta
hamp án sérstaks leyfis og vinna
úr honum. CBD hefur verið mikið
í fjölmiðlum síðustu árin en lagaleg
staða kannabínóða sem matvöru er
enn óljós. Matvælaráðuneytið vill
ekki taka afstöðu til málsins fyrr
en ESB hefur gefið út sinn úrskurð
sem er bagalegt, því á meðan eru
stofnanir ekki með fulla vissu og
leiðbeiningar um það hvernig þau
eigi að vinna. Sú staða er að valda
því að innflutningur á löglegum
vörum er stöðvaður og stofnanir eins
og Matvælastofnun, Tollurinn og
Lögreglan taka handahófskenndar
ákvarðanir í hvert skipti, sem skaðar
bæði fyrirtæki og einstaklinga.
Í dag er þó fjölbreytt úrval
hampvara, bæði innlendra og
erlendra selt í verslunum hér
á landi. Íslenskt hampte, heil
hampblóm, húðsmyrsl og fleira er
sem dæmi selt í tugum matvöru- og
sérvöruverslana og innfluttar vörur
í enn fleiri.
Hampfélagið hefur svarað
óteljandi fyrirspurnum sem koma
í gegnum Facebook-síðuna og
aðra miðla og leitast við að beina
fólki í réttar áttir; ekki síst frá
nemendum á öllum skólastigum
og þeim jafnvel útvegaðar afurðir
hampsins til að gera tilraunir með.
Hampfræðsla hefur verið hluti
af námi nokkurra skóla, þ.m.t.
Hallormsstaðaskóla sem hefur
nú verið með námskeið Pálma í
Gautavík, Sjálfbærnilausnir úr
iðnaðarhampi, í fjóra vetur. En
betur má ef duga skal, því ef
hampur á að verða sjálfsagður hluti
af fjölbreyttum iðnaði hér á landi
þarf menntakerfið að taka hann upp
á sína arma.
Facebook-síða Hampfélagsins
er mikilvægur vettvangur til að
halda áhugamönnum um hampinn
upplýstum um gang mála og
hópur Hampfélagsins, Hamp-
ræktendur og markaðstorg, mikil-
vægur samskiptavettvangur.
Það markverðasta sem hefur
gerst hér á landi síðastliðið hálft
annað ár er eftirfarandi:
• Hampurinn prýddi bakgrunninn í
hinum geysivinsæla skemmtiþætti
Það er kominn Helgi á RÚV í
Covidinu.
• Lúdika arkitektar upplýstu í
fjölmiðlum að til stæði að reisa
tilraunahús úr hampsteypu úr
íslenskum hampi, í samvinnu við
Hampfélagið. Kastljós fjallaði
um verkefnið í nóvember og mun
fylgja því eftir þar til húsið hefur
verið byggt.
• Bókin Illgresi andskotans eftir
Þorstein Úlfar Björnsson kom út,
en hún fjallar um nytjaplöntuna
hamp í sinni víðustu mynd.
• Félagið Hampfirma ehf. upplýsir
í fjölmiðlum að þau hyggist
byggja fyrsta hampsteypuhúsið
á Íslandi.
• Hjónin Pálmi og Oddný á bænum
Gautavík í Berufirði, Geislar
Gautavík ehf., fengu viður-
kenningu og verðlaun frá Verð-
launasjóði iðnaðarins fyrir frum-
kvöðlastarf á sviði iðnaðar vegna
tilraunaræktunar á iðnaðarhampi
og úrvinnslu vara úr honum, sem
voru veitt af formanni Samtaka
iðnaðarins í Húsi atvinnulífsins.
• Ræktun iðnaðarhamps fimm-
faldaðist milli ársins 2020 (30 ha)
og 2021 (150 ha) en dróst eilítið
saman árið 2022. Enn vantar tölur
fyrir árið í ár. Samdrátturinn var
viðbúinn enda komu margir sem
fóru af stað 2021 uppskerunni
ekki í not og/eða verð, þar sem
tækjabúnaður og markaður var
ekki orðinn nægilega þróaður.
• Hjónin Sigríður og Bergsteinn á
bænum Hrúti í Ásahreppi gáfu
almenningi færi á að koma og
tína hampblóm af akrinum þeirra
gegn greiðslu sem var nýlunda hér
á landi og kom töluverður hópur
fólks til að tína.
• Lúdika arkitektastofa, í samstarfi
við Hampfélagið, stóð fyrir
vinnustofum um hampsteypugerð
rétt fyrir utan Selfoss. Uppselt og
biðlisti var á bæði námskeiðin sem
voru afar vel heppnuð.
• Hampfélagið varð meðlimur
í European Industrial Hemp
Association (EIHA) og einn
stofnfélaga fyrsta Alþjóða-
sambands hampfélaga í gegnum
EIHA.
• Iðnaðarhampur stöðvaður í
tolli og fór þá Hampfélagið,
ásamt Hauki Erni lögmanni
og Gunnari Sigurðssyni frá
Samtökum iðnaðarins, á fund
með sérfræðingum matvæla-
ráðuneytisins til að fá það á hreint
að hrár hampur væri löglegur til
innflutnings. Sá fundur varð til
þess að MAST samþykkti að leyfa
innflutning á hráum hampi.
• Frumkvöðlaverkefnið Bio-
Building fékk styrk frá Íslands-
banka. Verkefnið snýst um að
þróa aðferðir til að nota innlent
ræktaðan iðnaðarhamp og nýta
hann sem byggingarefni aðlagað
að íslensku loftslagi og aðstæðum
og stuðla þannig að sjálfbærum og
umhverfisvænum byggingariðnaði.
• Fyrsti þáttur Hampkastsins, um-
ræðuþáttaraðar Hampfélagsins
í hljóði og mynd, fór í loftið í
byrjun desember, en þættirnir eru
nú orðnir sjö talsins. Gunnar Dan
Wiium skrifar frétt um hvern þátt
sem er birt á vef Mannlífs.
• Heimildarmyndin Græna
Byltingin - Hampur á Íslandi sem
framleidd var af Hókus Fókus
Iceland ehf. í samvinnu við
Hampfélagið kom út; sýnd í
Sjónvarpi Símans Premium.
Myndin fjallar um fyrstu löglegu
skrefin í ræktun á iðnaðarhampi
hér á landi.
• Þingmaðurinn Ásmundur Friðriks-
son mælir aftur fyrir þings-
ályktunartillögu um þróunar-
áætlun og tilraunaverkefni fyrir
ræktun lyfjahamps og notkun
kannabislyfja í lækningaskyni.
Hampfélagið sendi inn umsögn
um málið.
• Tollurinn fer aftur að stöðva
sendingar á hráum hampi og einnig
á CBD olíum sem eru fluttar inn
sem húðvörur. Unnið er að því að
fá rétta aðila að borðinu til að lausn
náist sem fyrst.
Við teljum okkur hafa sýnt fram á
að hampurinn sé góð viðbót við aðrar
iðngreinar og mikilvægur hlekkur í
að stuðla að aukinni sjálf- bærni hér á
landi. En til að það verði fjárhagslega
hagkvæmt að stunda hampræktun
þarf til dæmis stórvirkar vinnsluvélar
þar sem bændur geta farið með
uppskeruna til vinnslu.
Viðurkenning Verðlaunasjóðs
iðnaðarins gaf væntingar um að
iðnaðurinn væri búinn að opna
augum fyrir notagildi hampsins og
þeim tækifærum sem felast í nýtingu
hans, enda sagði m.a. í tilkynningu:
„Stjórn sjóðsins vill með þessu vali
beina sjónum að þeim tækifærum
sem geta fylgt hampframleiðslu á
Íslandi þar sem jákvæðir eiginleikar
nytjaplöntunnar geta meðal
annars gagnast í byggingariðnaði,
matvælaframleiðslu og húsgagna-
framleiðslu.“
Við trúum því að framtíðin sé
björt fyrir hampræktun og hampiðnað
á Íslandi, en það þarf sannarlega að
halda stjórnvöldum og stofnunum
við efnið og stöðugt minna bæði
almenning og forsvarsmenn
fyrirtækja á mikilvægi hampsins fyrir
sjálfbæra framtíð.
Fráfarandi stjórn
Hampfélagsins.
FLUGUVEIÐISETT
Vesturröst ehf Laugavegur 178, 105 Reykjavík. S 5516770
Frí heimsending
68.900kr. 39.900kr.38.900kr. 19.900kr.
Airflo DC2Orvis ClearwaterOrvis Encounter Airflo