Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
LÍF&STARF
Alþjóðasamband dreifbýliskvenna:
Raddir þeirra heyrist hátt
– Loftslagssnjall landbúnaður, heilsa kvenna og menntun í brennidepli
H e i m s þ i n g
Alþjóðasambands
d re i f b ý l i s k v e n n a
ACWW var haldið í Kuala
Lumpur í Malasíu 17.–25. maí sl.
og sóttu það um 450 manns.
Samtökin beita sér fyrir
hagsmunum dreifbýliskvenna um
heim allan og bættri stöðu þeirra
innan eigin samfélaga. Ellefu
Íslendingar sóttu þingið undir
merkjum Kvenfélagasambands
Íslands (KÍ) og var markmiðið
að kynnast betur starfi ACWW,
sem KÍ hefur verið aðili að síðan
1980. Um 10 milljónir kvenna í 80
löndum eru meðlimir samtakanna
sem hafa staðið að mörgum þörfum
og merkum verkefnum, meðal
annar að stuðningi við konur í
þróunarríkjum. Áherslur verkefna
ACWW til næstu þriggja ára beinast
að loftslagssnjöllum landbúnaði
(Climate-Smart Agriculture),
heilsu og menntun kvenna í
dreifbýli og samfélagsþróun í öllum
kjarnaverkefnum samtakanna.
Jenný Jóakimsdóttir, starfsmaður
KÍ, var ein þeirra sem sóttu
þingið og fór með atkvæði KÍ
sem fulltrúi stjórnar á þinginu.
Hún segir yfirskrift þess hafa
verið „Fjölbreytileikinn er okkar
styrkur“ og það verið grundvöllur
þinghaldsins. „Kvenfélagið í Pahang
í Malasíu var gestgjafi þingsins og
skipulögðu konurnar ótrúlega flotta
og glæsilega dagskrá í kringum
hina hefðbundnu þingfundi,“
segir Jenný. „Skemmtanir voru á
hverju kvöldi, skoðunarferðir og
menningu landsins var gerð góð skil.
Hápunkturinn hjá þeim í dagskránni
var gala-hátíðarkvöldverður í
Konungshöllinni í Malasíu, en
drottning þeirra, Queen Azizah, er
formaður félagsins í Pahang og var
gestgjafi kvöldsins,“ segir Jenný.
Valdefling undir forystu kvenna
Aðspurð um hvað íslensku þátt-
takendurnir taki með sér heim,
íslenskum dreifbýliskonum til
handa, segir Jenný áherslu þingsins
hafa verið á konur í dreifbýli í
fátækustu löndum heims.
„Í stefnu ACWW segir: „Til að
ná fram sjálfbærum breytingum er
nauðsynlegt að byggja upp víðtækt
net dreifbýliskvenna og stuðla að
valdeflingarverkefnum undir forystu
kvenna. Hlusta þarf á raddir þeirra
og þeirra þarfir“,“ segir Jenný og
heldur áfram:
„Þó svo að við hér á Íslandi séum
með ansi mikil forréttindi miðað við
konur í fátækari ríkjum heims þá
er sama sagan hér; raddir kvenna
í dreifbýli þurfa að heyrast. Þarfir
kvenna á Íslandi eru mikið til þær
sömu. Sem dæmi þá er ekki nóg
að byggja stór og flott sjúkrahús
ef konur komast síðan ekki
þangað þegar á reynir. Á þinginu
heyrðum við meðal annars sögur
frá Afríku þar sem konum blæðir út
í vegkantinum og deyja þar vegna
þess að þær þurfa að fara langan
veg til að komast í fæðingarhjálp.
Stærstur hluti kvenfélaga innan
KÍ eru í dreifbýli og við þurfum
að tryggja að raddir þeirra kvenna
heyrist hátt,“ segir hún.
Rödd innan SÞ og UNESCO
KÍ mun, að sögn Jennýjar, koma
upplýsingum um hvað fram fór
á þinginu til sinna félagskvenna.
„Kynna þarf betur starf ACWW og
athuga hvaða leiðir við getum farið
til að styrkja samstarfið og styðja
við verkefni ACWW. Það er mikið
horft til Íslands í jafnréttismálum
og við getum vonandi lagt þar
okkar af mörkum. Það er dýrmætt
að eiga aðgang að neti yfir 10
milljóna kvenna um allan heim
og það eykur okkur víðsýni. Við
sem fórum á þingið lögðum mikla
áherslu á kynna okkur betur starf
ACWW og að kynnast konum á
þinginu og því sem þær eru að fást
við. Næsta alheimsþing verður svo
í Ottawa í Kanada í apríl 2026 og
við munum kynna það fyrir okkar
konum og vonandi náum við stærri
hóp frá Íslandi þangað. Heimsforseti
ACWW, Magdie de Kock frá Suður-
Afríku, hefur mikinn áhuga á að
koma til Íslands og vonandi tekst
okkur að finna tíma og stund fyrir
þá heimsókn,“ segir Jenný jafnframt.
Alþjóðasamband dreifbýlis-
kvenna hefur ráðgefandi stöðu við
margar af stofnunum Sameinuðu
þjóðanna. „Á þinginu var sagt
frá því að undanfarið hefur mikið
verið unnið í því að styrkja þá stöðu
enn frekar, til að raddir kvenna
í dreifbýli nái eyrum þeirra sem
taka ákvarðanir er varða líf þeirra.
Einn af starfsmönnum ACWW var
nýlega kosinn formaður landsnefnda
félagasamtaka við UNESCO og mun
í haust stjórna málstofu á þeirra
vegum sem fengið hefur vinnuheitið
„Breyting hugarfars fyrir jafnrétti
kynjanna“. Þessi staða setur ACWW
við ákvörðunarborð innan UNESCO
og felur í sér tækifæri til að koma á
framfæri röddum dreifbýliskvenna,“
segir Jenný að endingu.
Steinunn Ásmundsdóttir
steinunn@bondi.is
Íslenskir fulltrúar á 30. heimsþingi Alþjóðasambands dreifbýliskvenna. Sitjandi f.v.: Guðrún Þórðardóttir, Drífa
Hjartardóttir og Helga Guðmundsdóttir. Efri röð f.v.: Sólveig Ólafsdóttir, Guðrún Finnbjarnardóttir, Ólína Hulda
Guðmundsdóttir, Þórunn Drífa Oddsdóttir, Áslaug Birna Ólafsdóttir, Linda B. Sverrisdóttir og Jenný Jóakimsdóttir.
Myndir / Jenný Jóakimsdóttir
Helstu ályktanir heimsþings ACWW 2023
Stofnun aðgerðaáætlana um atvinnu kvenna í dreifbýli
ACWW hvetur allar ríkisstjórnir til að sinna sérstökum þörfum dreifbýlis
kvenna með því að vinna með fulltrúum kvennahópa til að koma á, innleiða
og fylgjast reglulega með aðgerðaáætlun um atvinnumál kvenna sem tryggir
aðgang þeirra að þjálfun og menntun; sanngjarna og örugga starfshætti; vin
nuskilyrði þeirra og laun; aðgang að auðlindum eins og fjármagni, efni, tækni
og landi/eignum og; þar á meðal en ekki takmarkað við ráðgjöf varðandi
starfsferil, viðskipti og frumkvöðlastarfsemi.
Að taka á matarsóun
ACWW leggur áherslu á að taka á matarsóun í öllum sínum verkefnum,
aðgerðum og málflutningi með því að viðurkenna að matarsóun á sér stað
um alla alþjóðlegu fæðuframboðskeðjuna og að samræmdar aðgerðir eru
nauðsynlegar til að draga úr matartapi og matarsóun á hverju stigi.
Kynjaáhrifagreining á landsbyggðinni
ACWW hvetur ríkisstjórnir til að greina áhrif þess á öll kyn að búa í dreifbýli
þegar hugað er að áætlana og stefnugerð. Tryggja þarf að skoðuð verði áhrif
þessara tveggja breytna, að vera kona og að búa í dreifbýli. Lögð er áhersla
á að tekið verið fullt tillit til kynjabreytunnar í dreifbýli þannig að dregið verði
úr skaðlegum áhrifum fyrirhugaðra áætlana og stefnu um landsbyggðina er
varða konur.
Suzuki á Íslandi
Skeifunni 17
Sími 568 5100
www. suzuki.is
VERÐ FRÁ KR.
809.000
Nánari upplýsingar á suzuki.is
ÖFLUGIR
UTANBORÐSMÓTORAR
FRÁ SUZUKI
Það liggur þrotlaus ransóknar- og prófunarvinna
á bakvið utanborðsmótora Suzuki sem skilar sér
í krafti, sparneytni, áreiðanleika og endingu.
Komdu við og kynntu þer úrvalið og möguleikana.
Við tökum vel á móti þér
Glaðbeittar konur á þingfundi. F.v.: Ólína Hulda Guðmundsdóttir, Áslaug
Birna Ólafsdóttir, Guðrún Finnbjarnardóttir og Helga Guðmundsdóttir.
Þú finnur Bændablaðið
á www.bbl.is,
Facebook & Instagram