Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
Það er kominn júní og það þýðir
að, hvað sem tautar og raular,
grilltímabilið er hafið! Regnhlíf
og stuttbuxur virðast mögulega
vera okkar besta kombó með
grillgræjunum. Alla vega hérna
sunnan heiða – svona til að byrja
með að minnsta kosti.
Hvernig svo sem viðrar þarf
að grilla eitthvað og er ekki alltaf
best að grilla góða steik? En bestu
kjötbitarnir á grillið eru ekki alltaf
þeir dýrustu.
Heil nautalund er til dæmis
ekkert sérstaklega góður grillbiti.
Hún er bæði fullmögur og svo
er annar endinn miklu mjórri en
hinn. Því verður sá þunni löngu
ofeldaður þegar sá þykki er klár.
Rifjaraugað er auðvitað alger sæla
er ansi dýr og því kannski ekki á
borðum hvunndags og illa varla um
helgar. Þetta eru sparibitar.
Kjúklingur er frábær á grillið,
svínahnakki og þéttur fiskur líka
svo ekki sé talað um lambakjöt. En
stundum vill grillarinn bara grilla
nautakjöt og þá er gott að grípa í
síðubita. Bita sem alla jafna enda
sem hakk nema þeim sé bjargað
úr hakkvélinni. Til dæmis kjötbita
sem kallast flanksteik.
Hana er orðið tiltölulega
auðvelt að finna í sérverslunum
en fer minna fyrir henni í
stórmörkuðum. Svo ef leitað er
dýpra og jafnvel nokkur símtöl
tekin er hægt að fá systursteikurnar
skirt og hanger líka. Allir þessir
vöðvar eiga það sameiginlegt að
hafa unnið mikið í þágu öndunar
og meltingar nautgripsins og ættu
að fást á hakkverði eða þar um bil.
Ananasmarínering
Flanksteik er tiltölulega auð-
þekkjanleg á því að hún er stór, flöt
og vöðvaþræðirnir eru sýnilegir
utan frá. Steikin er svo gott sem
röndótt. Á annarri hliðinni er
himna sem er æskilegt að fjarlægja
með því að skera örþunnt í hana
og toga hana af. Þægilegt að nota
eldhúspappír eða dulu til að ná á
henni taki.
Þessi vöðvi vann frekar mikið á
líftíma nautgripsins og getur orðið
svolítið seigur. Til að forðast það
er best að elda heitt og snöggt. Eins
er gott að marinera steikina vel til
að losa um helstu stoðvefi. Ananas
kemur þar sterkur inn stútfullur af
ensímum til verksins.
Setja allt í marineringuna í
blandara og blanda vel. Hella yfir
kjötið og nudda smá. Gott að hafa
kjötið í gleríláti eða rennilásapoka.
Alla vega ekki í málmíláti. Það
getur verið vesen með alla þessa
sýru. Ef enginn er blandarinn þarf
að rífa allt smátt með míkrórifjárni
og kaupa virkilega góðan
anananssafa í staðinn fyrir þann
í dósinni. Eða mauk. Það getur
virkað líka.
Geyma kjötið í að minnsta kosti
nokkra klukkutíma eða jafnvel
sólarhring í maríneringunni.
Funhiti
Grillið á að vera funheitt. Ef kol
eru notuð eru kolin beint undir
kjötinu og loftflæðið um þau eins
mikið og hægt er.
Á gasgrilli er bara ein regla að
þessu sinni og hún er, nei, ekki að
negla heldur að setja alla brennara í
blússandi botn. Gott að loka grillinu,
hvort sem það er kola eða gas til
þess að grípa allan reyk sem kemur.
Hann gerir punktinn yfir i-ið í
grillinu. Flanksteikin þarf sirka
5-7 mínútur á hvorri hlið en þegar
svona mikill hiti er notaður þarf
að flippa að minnsta kosti fjórum
sinnum til að ekkert brenni. Þetta
á að vera svolítið rautt í miðjunni,
miðlungssteikt sirka. Örlítið rautt.
Gott að pipra vel og salta örlítið
alveg í lokin. Saltmagn fer eftir
smekk og hversu lengi steikin
var í marineringunni. Munum að
sojasósan er sölt.
Þegar steikin er komin af
hitanum þarf að láta hana hvíla í
að minnsta kosti 10 mínútur áður
en hún er svo skorin í þunnar
sneiðar þvert á vöðvaþræðina.
Sérstaklega gott að sjá hvernig þeir
liggja út af röndunum. Líka gott
að skera sneiðarnar með örlitlum
flága. Þá fara þræðirnir í sundur á
mismunandi stöðum og verða síður
erfiðir undir tönn.
Hvað svo?
Það er hægt að borða þessa
steik með hverju sem er; frábær
með hrísgrjónum og spergilkáli
eða maís og kartöflum. En þetta
er sirka-bát besta taco/fajitaskjöt
í heimi.
Hlaða nokkrum þunnum
sneiðum á glóðaða tortillu
með smá sýrðum rjóma, osti,
grilluðu grænmeti og mögulega
lárperumauki er ansi nálægt
himnaríki.
Marinering
Ananas 430 g
(Stór dós með safa)
Límónusafi, 2 límónur
Sojasósa ½ dl
Hvítlaukur 2-4 rif
Ólífuolía ¼ dl
MATARKRÓKURINN
Grill/rigningarsumarið mikla
Með framtíðina fyrir sér
Hafdís Laufey er kraftmikil stelpa
sem á fimm gælukýr, nokkrar
golsóttar kindur og kanínu.
Nafn: Hafdís Laufey Ómarsdóttir.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Lambhagi á Rangárvöllum.
Skóli: Grunnskólinn á Hellu.
Skemmtilegast í skólanum:
Íþróttir.
Áhugamál: Íþróttir og bústörf.
Tómstundaiðkun: Spila á trompet
og æfi fótbolta og fimleika.
Uppáhaldsdýrið: Kýr.
Uppáhaldsmatur: Hakksúpan
hennar mömmu.
Uppáhaldslag: Oh My God með
Adele.
Uppáhaldslitur: Gulur.
Uppáhaldsmynd: Mamma Mía.
Fyrsta minningin: Sitjandi í rólunni
í mjaltarbásnum í gamla fjósinu.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú hefur gert: Farið tvöfalt
heljarstökk í fimleikum.
Hvað langar þig að verða þegar þú
verður stór: Íþróttakona og bóndi.
ERFINGJAR LANDSINS
Setja skal inn tölur frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt
- og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins
Þung Þyngst
Létt Miðlungs
Haraldur Jónasson
haradlur@gmail.com
Hafdísi Laufey með uppáhaldskúnni sinni, henni Þoku.
Fátt er betra en flanksteikartaco.Skera steikina í þunnar sneiðar þvert á rendurnar.