Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 08.06.2023, Blaðsíða 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023 FRÉTTASKÝRING Umhverfismál: Bitamunur en ekki fjár – Vistfræðingar sammála um að gæta skuli hófs þegar sauðfé er beitt á viðkvæm vistkerfi Bryndís Marteinsdóttir, Isabel C. Barrio og Ingibjörg Svala Jónsdóttir birtu árið 2017 grein í Icelandic Acricultural Sciences sem er nefnd, í stuttu yfirliti á íslensku, „Áhrif sauðfjárbeitar á íslensk vistkerfi“. Í umræðukafla greinarinnar kemur fram að enginn vafi leiki á því að beit hafi haft mikil áhrif á vistkerfi landsins. Í gögnunum var marktækt samræmi sem benti til að rof í gróðurþekju væri meira á svæðum sem eru beitt. Uppbygging friðaðs lands sé ólík því sem er beitt en áhrif beitar á tegundafjölbreytni sé minni. Þetta er í samræmi við erlendar rannsóknir framkvæmdar á svæðum sem hægt er að heimfæra upp á Ísland. Skoðuðu 300 gögn Þessar ályktanir drógu þær eftir að hafa framkvæmt svokallaða safngreiningu (e. meta analys) í tilraun til að draga saman öll fyrirliggjandi gögn um viðfangsefnið. Helstu niðurstöður eru að; „beit hefur áhrif á uppbyggingu plöntusamfélaga og eykur rof í gróðurþekjunni. Úthaginn verður þar af leiðandi viðkvæmari fyrir jarðvegsrofi.“ Þær fóru í gegnum rúmlega 300 greinar, og eftir að hafa síað út gögn, voru 44 af þeim nothæfar í safngreininguna. Þessar 44 greinar byggja á 16 rannsóknum, að miklu leyti skýrslur kynntar á ráðunautafundum eða óútgefnar samantektir. Þótt safngreiningar sem þessar gefi almennt góða mynd af viðfangsefninu taka höfundar greinarinnar fram að rannsóknirnar séu of fáar til að hægt sé að draga almennar ályktanir út frá þeim. Þær kalla eftir frekari þekkingaröflun; „svo tryggja megi sjálfbæra sauðfjárbeit sem hæfa aðstæðum á hverju svæði fyrir sig.“ Sauðfé margt í sögulegu samhengi Í rannsóknunum er samhljómur sem bendir til aukins rofs í gróðurþekju og færri æðplantna á beittum svæðum. Þetta er í samræmi við erlendar rannsóknir sem hafa verið gerðar á heimskautasvæðum og er hægt að heimfæra yfir á Ísland. Sauðfjárbeit veldur rofi í gróðurþekjunni með traðki og beitarvali. Rof sem valdið er af beit getur flýtt fyrir öðru rofi þar sem óvarin moldin er viðkvæmari fyrir vindi og regni. Á freðmýrasvæðum erlendis getur gróðurþekjan verið í hundruð ára að jafna sig, eftir að hafa orðið fyrir rofi. Sauðfjárbeit getur hægt á þessu ferli enn frekar þar sem beitardýrin sækjast sérstaklega eftir græðlingum og ungum plöntum. Fram kemur að sauðfé sé mjög margt í sögulegu samhengi, en samkvæmt gögnum í mars á þessu ári var ásett fé 366.000 talsins. Fram til miðrar 19 aldarinnar hélst sauðfjárstofninn á milli 50.000 til 300.000 ásettra einstaklinga. Árið 1977 náði stofninn hámarki með 900.000 kindum, en höfundar greinarinnar taka fram að stór hluti gagnanna sem stuðst var við séu frá árunum þar á eftir. Sími 570 9090 • frumherji.is Komdu með hestakerruna á næs skoðunarstöð og hafðu hana klára rir vorið og sumarið. Deilt er um hvort beit eigi alltaf rétt á sér. Þegar sauðfjárstofninn náði hámarki í kringum 1980 er ljóst að landi hafði hnignað vegna mikils ágangs. Með aukinni gagnaöflun og betri stýringu væri hægt að finna hinn gullna meðalveg þar sem sauðfjárrækt og náttúruvernd geta lifað í sátt. Myndin er tekin í Aðaldalshrauni. Mynd / Áskell Þórisson Sauðfé er margt í sögulegu samhengi. Hámarkinu var náð, með 900.000 kindum, árið 1977. Tölur frá þessu ári segja að sauðfé sé færra en 400.000. Mynd / Jón Eiríksson Er rétt að friða allt land fyrir beit? Hér verður byrjað á að skoða grein í vísindariti sem reynir að draga saman öll fyrirliggjandi gögn um málefnið. Jafnramt er rætt við tvo af helstu sérfræðingum landsins á sviði beitar, en þeirra viðhorf eru ekki alltaf þau sömu. Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.