Bændablaðið - 08.06.2023, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 8. júní 2023
FRÉTTASKÝRING
Umhverfismál:
Bitamunur en ekki fjár
– Vistfræðingar sammála um að gæta skuli hófs þegar sauðfé er beitt á viðkvæm vistkerfi
Bryndís Marteinsdóttir, Isabel C.
Barrio og Ingibjörg Svala Jónsdóttir
birtu árið 2017 grein í Icelandic
Acricultural Sciences sem er nefnd,
í stuttu yfirliti á íslensku, „Áhrif
sauðfjárbeitar á íslensk vistkerfi“.
Í umræðukafla greinarinnar
kemur fram að enginn vafi leiki á
því að beit hafi haft mikil áhrif á
vistkerfi landsins. Í gögnunum var
marktækt samræmi sem benti til
að rof í gróðurþekju væri meira á
svæðum sem eru beitt. Uppbygging
friðaðs lands sé ólík því sem er beitt
en áhrif beitar á tegundafjölbreytni
sé minni. Þetta er í samræmi við
erlendar rannsóknir framkvæmdar
á svæðum sem hægt er að heimfæra
upp á Ísland.
Skoðuðu 300 gögn
Þessar ályktanir drógu þær eftir
að hafa framkvæmt svokallaða
safngreiningu (e. meta analys)
í tilraun til að draga saman öll
fyrirliggjandi gögn um viðfangsefnið.
Helstu niðurstöður eru að;
„beit hefur áhrif á uppbyggingu
plöntusamfélaga og eykur rof í
gróðurþekjunni. Úthaginn verður
þar af leiðandi viðkvæmari fyrir
jarðvegsrofi.“
Þær fóru í gegnum rúmlega
300 greinar, og eftir að hafa síað
út gögn, voru 44 af þeim nothæfar
í safngreininguna. Þessar 44
greinar byggja á 16 rannsóknum,
að miklu leyti skýrslur kynntar á
ráðunautafundum eða óútgefnar
samantektir. Þótt safngreiningar
sem þessar gefi almennt góða mynd
af viðfangsefninu taka höfundar
greinarinnar fram að rannsóknirnar
séu of fáar til að hægt sé að draga
almennar ályktanir út frá þeim. Þær
kalla eftir frekari þekkingaröflun;
„svo tryggja megi sjálfbæra
sauðfjárbeit sem hæfa aðstæðum á
hverju svæði fyrir sig.“
Sauðfé margt
í sögulegu samhengi
Í rannsóknunum er samhljómur sem
bendir til aukins rofs í gróðurþekju og
færri æðplantna á beittum svæðum.
Þetta er í samræmi við erlendar
rannsóknir sem hafa verið gerðar á
heimskautasvæðum og er hægt að
heimfæra yfir á Ísland.
Sauðfjárbeit veldur rofi í
gróðurþekjunni með traðki og
beitarvali. Rof sem valdið er af beit
getur flýtt fyrir öðru rofi þar sem
óvarin moldin er viðkvæmari fyrir
vindi og regni. Á freðmýrasvæðum
erlendis getur gróðurþekjan verið í
hundruð ára að jafna sig, eftir að hafa
orðið fyrir rofi. Sauðfjárbeit getur
hægt á þessu ferli enn frekar þar sem
beitardýrin sækjast sérstaklega eftir
græðlingum og ungum plöntum.
Fram kemur að sauðfé sé mjög
margt í sögulegu samhengi, en
samkvæmt gögnum í mars á þessu
ári var ásett fé 366.000 talsins.
Fram til miðrar 19 aldarinnar hélst
sauðfjárstofninn á milli 50.000 til
300.000 ásettra einstaklinga. Árið
1977 náði stofninn hámarki með
900.000 kindum, en höfundar
greinarinnar taka fram að stór hluti
gagnanna sem stuðst var við séu frá
árunum þar á eftir.
Sími 570 9090 • frumherji.is
Komdu með hestakerruna á næs
skoðunarstöð og hafðu hana klára
rir vorið og sumarið.
Deilt er um hvort beit eigi alltaf rétt á sér. Þegar sauðfjárstofninn náði hámarki í kringum 1980 er ljóst að landi hafði hnignað vegna mikils ágangs. Með aukinni gagnaöflun og betri stýringu væri
hægt að finna hinn gullna meðalveg þar sem sauðfjárrækt og náttúruvernd geta lifað í sátt. Myndin er tekin í Aðaldalshrauni. Mynd / Áskell Þórisson
Sauðfé er margt í sögulegu samhengi. Hámarkinu var náð, með 900.000
kindum, árið 1977. Tölur frá þessu ári segja að sauðfé sé færra en 400.000.
Mynd / Jón Eiríksson
Er rétt að friða allt land fyrir beit? Hér verður byrjað á að skoða grein
í vísindariti sem reynir að draga saman öll fyrirliggjandi gögn um
málefnið. Jafnramt er rætt við tvo af helstu sérfræðingum landsins á
sviði beitar, en þeirra viðhorf eru ekki alltaf þau sömu.
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is